Stjarnan - 01.09.1932, Síða 9

Stjarnan - 01.09.1932, Síða 9
ST J ARN AN 137 byrjaður. Grundin var öll snæyi þakin og glitraÖi af frosti. Eftir átta daga ferð nálguÖumst vér Irkutsk. Eg hafSi enn ekki afráÖið hvernig eg skyldi bera mig að þegar þang- að kæmi. Jafnvel þó eg hefði haft nóg.x peninga þá hefði eg ekki getað keypt mér farseðil yfir landamærin. Auk þess var nærri því hver einasti ungur maður þar í einkennisbúningi hersins, svo manni í borgaraklæðum yrði veitt því meiri eftir- tekt. Hér við bættist að eg hafði ekkert vegabréf, og jafnvel fyrir stríðið hafði oft verið heimtað að eg sýndi vegabréf mitt. Særður vélameistari hafði aftur og aftur reynt að komast í samræður við mig, og eg gat ekki alveg vísað honum á bug. Hann hlýtur að hafa rent grun í kringumstæður rnínar, því þótt ekkert væri að því vikið, þá bauð hann mér, smámsaman að selja mér einkennisbúning sinn, og farseðil sinn með brautinni. Hann sem var særður og hafði fengið lausn frá hernaði gat vel ferðast í borgara búningi, og hann gat fengið farseðil sinn með járn- brautinni endurnýjaðan í hvaða stórborg, sem hann kæmi til. Farseðillinn, sem hann bauð mér var til Vladivostok, til að komast þangað verður brautin að fara gegnum Manchuria. Þannig mundi þessi farseðill hjálpa mér til að kornast yfir landamærin. Var það af meðaumkvun að þessi ungi hermaður bauð mér þetta, eða var það aðeins til að eignast þessar fáu rúblur, sem hann setti upp? Eða-ætlaði hann að leiða mig í gildruna, og koma því til leið-- ar að eg yrði tekinn fastur. Eg bar traust til hans svo eg þáði boðið. Óhultasti staðurinn fyrir oss að fram- kvæma kaupin hélt eg væri heimili prests- ins okkar í Irkutsk. Eg hafði útanáskrift hans, svo þegar við komum til borgar- inna'r, leigðum við vagn á brautarstöðinni og ókum svo eins hratt og hesturinn gat farið, til heimilis prestsins. Frá Eritrea Bæði menn og konur ferðast yfir landa- mærin milli Eratreu og Ætiópíu, til að leita uppi trúboðsstöðvar vorar. Stund- um eru þeir svo vikum skiftir á leiðinni og spyrjast fyrir urn oss í hverju þorpi. Einu sinni kom til vor innfæddur mað- ur alveg yfirkominn af þreytu. Hann sagði svo frá: “Fyrir nokkrum árum síð- an heyrði eg um trúboð Aðventista í Asmara. Mér var sagt að trúboðar þess- ir prédikuðu móti áfengum drykkjum, og að þeir hlýddu Guðs orði. Einu sinni dreymdi mig að sagt var við mig: “Statt upp og gakk.” Morgunin eftir fór eg af stað. Drottinn var með mér. Eg komst yfir landamærin og náði fram til Asmara eftir fjóra daga. Þar mætti eg manni og raust nokkur talaði til mín og sagði: “Spyr hann eftir trúboðsstöð Að- ventista.” Eg gerði svo, og maðurinn sagði mér að hún væri aðeins 500 metra í burtu. Eg fór þangað, rnætti trúboð- anum og sagði: “Eg er hingað kominn herra minn, til að læra þann sannleika sem þú prédikar. Vér þurfum sannleik- ann einnig hinum megin við landamærin. Þar eru menn sem þyrstir eftir orði hins lifandi Guðs. Sendið oss kennara, inn- fædda ef þér hafið ekki aðra. Komið og kennið oss sanrileikann. Færið oss Ijósið.” Nú er þessi maður skírður og tilheyrir söfnuði vorurn.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.