Stjarnan - 01.09.1932, Síða 13

Stjarnan - 01.09.1932, Síða 13
st-jarnan “Ó, eg ætlaði aÖ taka hana aS mér, Mrs. Shannasse,” sagtSi Mag'Öalena með hægS, “en ef þú vilt fá hana þá skal eg láta þér hana eftir.” “Já, eg held a'Ö mér hafi verið ætluð hún. Komdu meS vögguna sem er uppi á háa lofti, mamma, vögguna sem eg svaf í þegar eg var lítil, Jonah hjálpar þér a'Ö ná henni. Þakka ykkur öllum fyrir.” Erindi þeirra var nú loki'Ö og þau gengu hljóÖlega út. Um kveldið heyrÖu þeir sem framhjá fóru aÖ Olive söng vöggu vísur. MeÖ brosi sínu hafÖi litla ungfrúin áunnið sér heimili, vini, og öll þau gæði, sem heimurinn hefir aÖ bjóða. Mánuði seinna voru þær Olive og móðir hennar að pakka niður farangur 141 sinn til að flytja til New York. Davíð Eorsythe kom þangað eitt kveldið til að kveðja þær. “Já, mamma ætlar að koma með mér,” sagði Olive honum. “Eg hef oft beðið hana þess áður, en hún hefir aldrei viljað það. Nú segir hún að eg þurfi sín með. Það er indælt þegar einhver þarfnast þjónustu vorrar, Mr. Eorsythe.” “Já, eg held það sé hið dýrmætasta í lífinu, að geta verið öðrum til hjálpar,” svaraði presturinn. Annaðhvort var það mistrið, sem lá yfir fljótinu, eða það voru tár, sem sá- ust í augum hans er hann sagði þetta. Hafi nokkur vitað hvernig barnið kom til Greenacre, þá var að minsta kosti aldrei sagt frá því.—R.H. Frá Suður Ámeríku Þegar F. A. Stahl, fyrir nokkrum ár- um siðan, stofnsetti trúboðsstöð meðal villimanna í Metraro, fram með Perene fljótinu, langt frá því sem siðmenningin hafði náð, þá var hann alvarlega aðvaraS- ur móti því aS hætta sér inn í frumskóg- ana. En kærleiki Krists, til þeirra, sem sátu í myrkri heiðindómsins, fylti hjarta hans og knúði hann áfram, svo hann lagði af stað í öruggri trú til Guðs. Bless- un Drottins hefir frá því fyrsta verið með starfinú og starfsmönnunum, svo kristni- boðið hefir haft góðan árangur. Nii hefir ný trúboðsstöð verið bygð í Suteque, þriggja daga ferð lengra uppi í landi, og fólk hefir komið bæði langt og skamt að til að heyra fagnaðarerindið. Fyrsta skiftið er eg heimsótti þessa stöð, var þar aðeins lítið rjóður í skógin- um, upp að því lá mjór og krókóttur stíg- ur. Nú liggur þangað breið gata með ávaxtatrjám á báðar hliðar, alla leið neðan frá ánni, sem er um hálfa mílu frá rjóðrinu, nú er það orðið víðáttumikið með mörgum húsum og talsverðu akur- lendi. “Þetta er aðeins byrjun,” sagði Indíána höfðinginn, Shankey, “vér ætlum að leggja fleiri götur. Þarna á að byggja skólahúsið, og bænahúsið er orðið of lítið, vér ætlum að byggja annað miklu betra og stærra ofan yfir það, og þegar því er lokið rífum vér þetta niður.” Svo fór hann meö mér þangað sem útbúinn var lendingarstaður fyrir flugvélar, ef flug- menn skyldu verða neyddir til að lenda, þegar þeir fara þar hjá á leið sinni til Iquitos. Sem viðurkenning fyrir þessa hugsunarsemi, hefir yfirmaður flugferð- anna lofað að senda flugvél til hjálpar ef trúboðarnir aðeins setja upp merki, þegar sjúkdómar eða önnur vandræði béf að höndum. Þetta eru ómetanleg hlunnindi fyrir fólkið, sem oft hefir verið svift öllu sambandi við umheiminn meðan á rigningartíðinni stendur, því þá er áin alveg ófær. Nafnkunnur maður af Amuesha kvn-

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.