Stjarnan - 01.11.1933, Blaðsíða 14
174
STJARNAN
Þá fór drengurinn að lesa á þennan
hátt:
“Hann var særður vegna synda Johns
Dawis, og pindur vegna misgjörða Johns
Dawis, hegningin var lögð á hann, til þess
að John Dawis skyldi hafa frið, og fyrir
hans benjar var John Dawis læknaður.
Hinn deyjandi skipstjóri dró andann
léttara og sagði:
“Þakka þér fyrir, William Smith, þetta
hjálpar; þú þarft ekki að lesa meira, því
að nú veit eg, hvernig eg á að mæta
frammi fyrir mínum Guði.”
Hugrekki og bindindi
Victor Smith, hinn ungi flugmaður Sjö-
unda dags Aðventista flaug fyrir nokkuð
löngu síðan frá Suður-Afríku til Eng-
lands. Meðan hann dvaldi á Englandi
heimsótti hann Stanborough Park, þar
sem blaðið “Present Truth” er prentað.
Sagan um hugrekki hans og dugnað
kom í blöðunum, en það voru ýms atvik í
sambandi við ferðina, sem blöðin hafa
ekki sagt frá. Það eru verri hættur á
ferð flugvélastjórans heldur en eyðimörk-
in Sahara, og hann þarf að hafa siðferð-
isþrek ekki síður en hugrekki og þraut-
seigju.
Ölgerðarfélag eitt bauð honum 1,000
pund sterling ef hann vildi biðja um vín
og rnjólk til að hressa sig á strax er hann
lenti. Hann neitaði boðinu.
Vindlingafélag eitt bauS honum 400
pund ef hann vildi segja að hann hefði
reykt á leiðinni vindlingategund eina, sem
þeir nefndu. Aftur neitaði hann.
Veitingahús það er hann gisti á í Lund-
únum bar á borð honum til heiðurs áfengi
það, sem notað er í Suður-Afríku, en
hann hafnaði því. Hann álítur að hið
frábæra þol sitt sé ávöxtur af bindindi
og einnig því að að þakka að hann hefir
eingöngu lifaö á jurtafæðu.
Victor Smith hefir mikinn áhuga fyrir
flugferðum. Hann byrjaði þær þegar
hann var 17 ára gamall, og lærði flug á
styttri tíma, heldur en nokkur annar mað-
ur hefir áður gjört—það tók hann aðeins
einn mánuð. Móðir nans er hrifin af
flugferðum hans, en faðir hans, sem er
forstöðumaður eins af söfnuðum vorum
lætur sér fátt um finnast.
Bróðir hans og systir gengu á háskóla
vorn í Suður Afríku, og hann tók þau
oft fram og aftur í flugvélinni. Hann
hefir oft lent á leikvelli skólans.
Ein lítil frásaga sýnir upplag hans. Eft-
ir að hann var nýlega byrjaður að fljúga
stökk hann einu sinni út úr flugvélinni
áður en hún stöðvaðist, til þess að koma
í veg fyrir að vélin skemdist, en afleið-
ingin varð sú að hann braut annan fót-
inn um öklann. Þetta var alvarlegt slys,
og einn læknirinn hélt að hann mundi
missa fótinn. Honum var sagt að hann
yrði að minsta kosti að hvíla sig í 5 mán-
uði, en innan 6 vikna var hann kominn
upp í loftið aftur með spelkur á fætinum.
Um þetta bil fór hann á kirkjuþing sem
haldið var, og orð voru send til formanns
þingsins að þá vantaði prest til að jarð-
syngja mann 300 mílur í burtu, svo Victor
flaug með prestinn þangað, og kom aftur
eftir fáeina klukkutíma, þrátt fyrir veika
fótinn.
Victor þykir ákaflega vænt um móður
sína. Hann byrjaði ferð sína frá Suður-
Afríku til Englands kl. 2 að morgni dags,
og eftir að hann hafði flogiö um stund,
eða rétt í dögun, féll pappírsmiði niður á
vélina hjá honum, miðanum hafði verið
stungið gætilega inn i rifu, en hreifing
vélarinnar hafði hrist hann niður. Þessi
orð voru rituð á miðann: “Því að eg,
Drottinn Guð þinn held í hægri hönd þína
4