Stjarnan - 01.11.1934, Side 1

Stjarnan - 01.11.1934, Side 1
.-4 STJARNAN NÓVEMBER, 1934 WINNIPEG, MAN. Hamingja, auður og heiður Foreidrar, óskiö þér eftir aÖ börn yðar hreppi þessi gæði, hamingju, auð og heiÖur? Já, vissulega, því áhugamál allra góðra for- eldra er farsæld og velgengni barnanna. Öll þessi dýrmætu gæði standa börnum yð- ar tii boða, og þér getið öllum öðrum fremur * hjálpað þeim til að öðlast þau. Þetta er að- ferSin: Snúið yður sjáif alvarlega til Guðs. Eiðjið hann að gefa yður sinn Heilaga Anda til að leiða yður í alian sannleika, svo þér getið leyst af hendi hið ábyrðarmesta, en um leið ánægju- legasta starf, sem Guð hefir falið nokkrum manni að gjöra, það er að ala upp börnin til að verða ljós í heiminum og erfingjar Guðs eilífa ríkis, sem innan skamms munu setjast með Jesú i hans hásæti. Því næst takið þér upp þann sið að lesa Guðs orð með öllu heimilisfólkinu reglubundið - á hverjum degi. Eg vildi stinga upp á að hafa * Nýjatestamentið fyrir lestrarbók, og um leið biðja til GuÖs, láta þetta aldrei farast hjá, * hversu mikiö sem annríkið kallar að. Um þreskingartímann er ágætt tækifæri til að vitna um kærleika Guðs í Jesú Kristi og traust vort á honum með því að bjóða öllum þreskingar- mönnunum að vera viðstaddir, þeir gætu held- ur ekki vel neitað því þar sem þeim er borgað fyrir tímann hvort sem er. Þótt þessi guðs- þjónusta tæki io til 20 mínútur, þá mundi Guð sjá svo um að öll vinna kæmist áfram eftir sem áður, blessun Guðs mundi hvíla yfir heimilinu, og kraftur og gleði Heilags Anda fylla sálir allra, sem af hjarta tækju þátt í slíkum guð- ræknisiökunum. Biðjið með eigin orðum ef * þér getið. Þakkið Guði fyrir varðveislu hans og náð, felið honum ástvini yðar, áform yðar -» og fyrirtæki, alt sem yður liggur á hjarta. Biðjið með þeim orðum, sem Jesús sjálfur kendi oss: “Faðir vor, þú sem ert á himnuin.” Kennið börnum yðar að biðja. Eg gleymi aldrei þegar elsku móðir mín kendi mér að biðja um nokkuð, sem eg með minu bráða skapi þurfti sérstaklega hjálpar með: “Voldugi Guð, mér vertu hjá, verndaðu tungu mina ónytsamlegum orðum frá, er styggja mildi þína, svo þér til dýrðar, Drottinn minn, í dag alt mitt framferði, vel skikkað verði, svo afmáist fyrir anda þinn illverkin sem eg gjörði.” Eg hafði áður lært mikið af bænum og versum utanbókar, og las það daglega án þess að skilja eða hugsa um efnið. En oft síðan hefi eg notið blessunar af því sem eg lærði utanbókar meðan eg var hugsunarlaust barn, það er eins og dýrmætt fræ, sem nú hefir spír- að og sprottið upp og ber ávöxt til eilífs lífs. Kennið því börnum yðar utanbókar Guðs bless- uðu boðorð og hans dýrmætu fyrirheit, áminn- ingar og aðvaranir. Það verður fyrir þau sá fjársjóður, sem enginn getur frá þeim tekið. “Kenn þeim unga þann veg, sem hann á að ganga, og þegar hann eldist mun hann ekki af honum beygja.” Gangið líka á udan þeim með góðu eftirdæmi og yðar verðlaun munu verða mikil á himnum, því þér munuð, ásamt börn- um yðar, verða hluttakendur í þeirri arfleifð, sem yður er geymd á himnum, sem er ófor- gengileg, flekklaus og aldrei fölnar. Blessun Drottins hvíli yfir yður og öllum, sem elska Frelsara vorn og þrá tilkomu hans. .S'. Johnson.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.