Stjarnan - 01.08.1939, Side 1

Stjarnan - 01.08.1939, Side 1
STJARNAN ÁGÚST, 1939 LUNDAR, MAN. Hið fullkomna líf “VeriÖ því ful'lkomnir.” Matt. 5, 48. “Það er aðeins eitt Mf, sem er ávinningur, og það er líf Jesú Krists. Hver maður verður að eignast þetta Mf.” Charles G. TrumbeM. “Hr. Emerson er meðlimur safnaðar yðar, er ekki svo ?” Eg leit steinhissa framan í ungu ‘konuna, er mælti þessi orð. “Já, það er hann,” svaraði eg, “eg hélt að þér vissuð það.” “Eg vissi að hann var það, en eg hefi oft séð hann konm úr bænum á laugardögum með böggul í hendinni, og Mildred f er stöðugt í leikhúsið.” Þó að þessi unga kona væri ekki meðiimur safnaðar vors, var hún honum þó vel kunnug. Hún var alls ekki gjörn á að baktala eða dæma aðra, en shkt opinbert ósamræmi kom henni til að undrast yfir því, ef þessir fremur ungu kunningjar hennar væru meðhmir safn- aðarins. Sá skuggi, sem lagðist yfir andht mitt, og þau fáu orð, sem eg talaði um þetta mál, gáfu ekki fylHlega til -kynna J>au beisku vonbrigði og hugarangur, sem frásögn hennar olli mér. Eg J>ekti Mildred Emmerson og föður hennar vel, iþó funduim okkar hefði sjaldan borið saman á seinni árurn. Eg hafði áHtið hann fyrirmyndar hvíldardagsskólaformann. Hún var einnig meðlimur safnaðarins og var gædd ágætum hæfileiikum til notkunar í þjónustu Meistarans. Þau voru bæði elskuverð, og méf þótti mjög vænt ttm þau, en hvers vegna stóðu þau á svona lágu stigi í andlegtt tilliti ? Hvers vegna .Mfðu þau þannig í ósamræmi við játningu sína? Prédikari nokkur spurði einu sinni ‘kaup- sýslulm&nn, hvort hann væri endurfæddur. “Nei, það get eg ekki sagt að eg sé, og þó veit eg ekki nema eg sé eins góður og flest safnaðarfólkið. Eg ætla að segja frá einu aíviki til dæmis. Eg tók mér í gær far með járnbrautarlestinni til Chicago. Kona ein, sem eg þekki vel og sem stendur framarlega í söfnuðinum, kom inn í klefann til mín, og settist við hliðina á mér. Hún þykist vera sannkristin og veit vel að eg er það ekki, en í þá þrjá tíma, sem ferðin stóð yfir, gerði hún ekki annað en baknaga og segja slúðursögur u'mi vinkonur sínar og nágranna,'xþangað til lestin nam staðar. Eg varð feginn þegar eg komst burt frá henni. Hvernig stóð á því, ,að þessi kona, sem þykist vera fylgjandi Krists, eyddi öllum tíma sínum í baktal Qg slúður, en hafði ekkert að segja um Meistara sinn ?” Já, hvers vegna tala kristnir menn svo lítið um Meistara sinn? Og hvers vegna afneita þeir honum oft með hreytni sinni? Það er sorgleg sannreynd, að þúsundir ungra, krist- inna manna og kvenna láta sér nægja að lifa samkvæmt .lágulml siðferðiskröfum, og hafa enga löngun eftir að vaxa upp til fyllingar Krists, enga viðleitni til að lifa hinu fullkomna Hfi. Þeir leggja ékki kapp á að vinna sigur yfir þeim syndum, sem á þá stríða. Þeir rétta ekki hinum þurfandi hjálparhönd. Á heirn- ilinu eru þeir ekki ávalt hjálpsamir, heldur oft og itíðum óvingjarnlegir. Þeir hafa engin veruleg áhrif á ikunningja sína. Þeir sækjast eftir sömu skemtunum, sömu bókum og sama hégómatildri eins og áður en þeir hneigðust að kristindóminum. Guðihræðsla þeirra er ekki á svo háu stigi, að þeir hafi gleði af bænasamkomum og öðrurn guðsþjónustum, en þeir hafa hana þó nógu mikla til þess, að gera þá órólega, þegar þeir taka þátt í skelmitunum, sem alment eru álitnar ósæmilegar. “Hvað er iljótt við það?” spyrja þeir. En spurning þessi gefur til kynna, að hætta sé á ferðum. Hún sýnir ætíð vöntun á andlegum krafti. Það væri ágætt ef allir ungir kristnir menn, vildu færa sér í nyt þá leiðbeiningu, sem móðir John Wesleys gaf honum viðvíkjandi skemtunum, þegar hann gekk í skóla. Hún skrifaði bonum á þessa leið: “Ef þú vilt vita

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.