Stjarnan - 01.02.1941, Blaðsíða 7

Stjarnan - 01.02.1941, Blaðsíða 7
15 stjarnan allan heim. Hvar sem Biblían er lesin 'erður skýr fyrir mönnum sú skylda að halda sjöunda daginn fyrir hvíldardag. En margir halda því fram samt sem áður að ('Uð sé ekki svo nákvæmur eða smámuna- samur að hirða um hver dagurinn sé hald- inn heilagur. Þeir álíta þetta ekki áríð- andi málefni. Allskonar afsakanir eru ^rambornar af þeim, sem vilja koma sér hjá að halda Guðs boðorð. En Guð hefir aldrei burttekið hlessun þá, er hann lagði yfir hvíldardaginn þegar hann helgaði irann. Lögmál Guðs, sem einnig felur í s^r hvíldardags-boðorðið, er endurskin eiginlegleika hans, og grundvallarlög ríkis hans, og hefir þess vegna ævarandi gildi. Sumir líta á hlýðni við kröfur lögmálsins sem væri það þrældómsok, en spámenn °g postular Drottins líta á það alt öðru- vísi. “Og eg vil ganga um rúmgóðan veg því eg leita skipana þinna.” Sálm. 119:45. Jakob postuli, sem skrifaði pistil sinn eftir himnaför Krists, kallar Guðs lögmál “konungleg boðorð” og “hið fullkomna frelsislögmál.” Jak. 2:8-12 og 1:25. Hlýðni við öll 10 boðorð Guðs er hin fullkomnasta guðsþjónusta, vegur heilagleikans, leiðin til að öðlast og njóta eilíflega ltærleika, friðar og gleði. f fjallræðunni sagði Jesús meðal annars: “Ekki munu allir þeir, sem til mín segja, herra, herra, koma í himnaríki heldur þeir einir sem gjöra vilja míns himneska föður. . . . Hver sein heyrir þessa mína kenningu og breytir eftir henni, honum vil eg líkja við for- sjálan mann, sem bygði hús sitt á bjargi.” Matt. 7:21-24. En hinum óhlýðnu líkir hann við mann sem bygði á sandi og þegar regn og stormur dundi á féll það hús, “og hrun þess var mikið.” Allir kristnir mens hljóta að viður- kenna gildi Guðs boðorða. “Einungis þau trúarbrögð, sem koma frá Guði geta leitt til Guðs . . . þau hreinsa hjartað og endur- nýja hugarfarið, þau gjöra oss færa um að þekkja Guð og elska hann. Þau gjöra oss fúsa til að hlýða öllum hans skipun- um. Þetta er sönn tilbeiðsla. Jesús sagði: “Eg hélt boðorð föður míns.” Jóh. 15:10. Hann gaf okkur full- komna fyrirmynd í hlýðni við öll Guðs boðorð. Engin óhlýðni við Guðs boðorð verður afsökuð á hinum mikla dóms og reiltningsskapar degi, ekkert ranglæti mun sleppa hjá fyrirdæmingu. Fyrir kraft Krists geta allir þeir, sem meðtaka hann, hlýtt ölluin Guðs boðorðum. (Róm. 8:3, 4). í síðasta kapítula Nýja testamentisins stendur: “Sælir eru þeir, sem breyta eftir hans hoðorðum, svo þeir nái að komast að lífstrénu og inegi inn ganga um borgar- hliðin inn í borgina.” Op. 22:14. H. ./. D. Hver er sinnar lukku smiður Starfsmaður einn á fólksflutningalest þurfti að fá hærra kaup. Börnin voru orðin mörg og mikil útgjöld, svo hann og kona hans töluðu um þetta, og það var afráðið að hann færi til yfirmannsins og segði honum að hann þyrfti meira kaup. En er hann kom að skrifstofudyrum hús- bónda síns, þá brast kjarkur hans, hann gat ekki gefið neina ástæðu fyrir því hvers vega þeir ættu að hækka kaup hans, svo hann gekk í burt og ásetti sér að gjöra eitthvað til að vekja eftirtekt á sér, svo kaup hans yrði hækkað. Hann gaf gætur að samverkamönnum sínum og sýndist þeir vera hv-er öðrum líkir. Þeir gjörðu skylduverk sín en aldrei meira. Hann reyndi nú að hugsa upp eitthvað er til bóta gæti orðið. Hann stakk upp á að menn þyrftu að hafa handklæði á lest- unum. Nú ásetti hann sér ennfremur að vera kurteisari við farþega, hjálpa þeim inn í lestina og út úr henni, sérstaklega kon- um og börnum. Einn dag var þar gamall maður, sein lagði spurningar fyrir hann. Hann svar- aði honum kurteislega og gaf allar þær leiðbeiningar, sem hann gat. Það hittist nú svo á að maður þessi var einn í stjórn- arnefnd þessarar járnbrautar. Nokkru seinna þurfti félagið lestarstjóra og þessi maður var kosinn, og í þessari nýju stöðu sinni fékk hann miklu hærra kaup en áður. Nú kyntist hann lestarstjórunum og ásetti sér að skara fram úr þeim. Hann hugsaði um hag félagsins og gjörði upp- ástungur sem spöruðu félaginu þúsundir dollara. Þar af leiðandi kusu þeir hann

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.