Stjarnan - 01.03.1941, Page 1

Stjarnan - 01.03.1941, Page 1
STJARNAN MARZ, 1941 LUNDAR, MAN. Trúarbrögð og heilbrigði Er nokkuð samband milli trúarbragða og heilbrigði eða líkamshreysti? Með öðr- Uin orðum: Er nokltuð sameiiginlegt með kristindóminum og heilbrigði líkamans? Heilög Ritning gefur oss skýringu á þessu. “Vitið þér ekki að þér eruð Guðs must- eri og að Guðs andi býr í yður. Hver sem skemmir Guðs musteri þeim mun Guð hegna, þvi Guðs musteri er heilagt og þetta musteri eruð þér.” I. K'or. 3:16.17. “Eða vitið þér ekki að líkami yðar er musteri Heilags anda, sem í yður býr, sem þér hafið frá Guði og þér eruð ekki yðar eigin eign.” I. Kor. 6:19. Þessar Ritningargreinar sýna, að mað- urinn hefir ábyrgð gagnvart líkama sín- um, og það er partur af hans kristindómi að varðveita hann svo hann skemmist ekki. Líkami vor og kraftar er eitt af því sem oss er ætlað að annast og gjöra Guði reikningsskap fyrir. Það er þess- vegna áríðandi málefni hvernig vér förum með heilsuna. Nokkur orð frá hinum nafnkunna vís- indamanni Herbert Spencer má vel heim- færa hér: “Ef hægt væri að koma mönn- um í skilning um að það er skylda að varð- veita heilsuna, þá mundi það leiða til þess að menn smámsaman bæru jafnmikla um- hyggju fyrir likamlegri eins og andlegri velvegnun. Það lítur út eins og fáir skilji að þeir hafa siðferðislegar skyldur gagn- vart líkama sínum.” Orð og skoðanir manna bera það með sér að þeir álíta sig hafa rétt til að fara með líkama sinn eins og þeim sjálfum líkar. Sjúkdómar sem þeir líða vegna óhlýðni sinnar við lögmál náttúrunnar álita þeir óverðskuldaða erfið- leika, en ekki afleiðingar breytni sinnar. Jafnvel þó hinar erfiðu afleiðingar heilsu- leysis þeirra, sem ástvinir og hin komandi kynslóð verður að líða, séu ekkert léttari heldur en það sem ástvinir glæpamanns- ins verða að bera, þá álíta þeir sig alls ekk- ert seka í því. Öll brot móti heilbrigðis- lögunum er synd. Allir vita að Guð gaf þjóð sinni ísraels- mönnum vissar heilbrigðisreglur, jafnvel þó þeir viti ekki hverjar þær eru. En hitt vita ekki allir, að þessar hreinlætis og heilbrigðisreglur, sem gefnar voru fyrir hér um bil 3,000 árum sían, eru af nútíðar læknum álitnar framúrskarandi góðar. Eitt ákaflega áríðandi atriði, sem menn höfðu með að gjöra í stríðinu mikla 1914—1918, var heilsa hermannanna, tii að leiðbeina mönnum hvernig bezt mátti var.ðveita heilsu hersins, þá var það Pró- fessor Percival Wood sem hélt fyrirlestur fyrir yfirmönnum hersins á Egyptalandi. Þar hrósaði hann Móses mikið fyrir sið- ferðislegan kraft, djúpskygni og vizku, sem enginn gæti jafnast við. Prófessorinn tal- ar aðeins um Móses, en athugar ekki að hann var sendiboði Guðs sem flutti fólkinu Guðs lög og skipanir. Svo fær Móses alt hrósið, sem Guði ber fyrir þessi ágætu lög. Prófessor Wood talar um Móses sem höfund heilbrigðislaganna og segir að hreinlætisreglurnar í Móse-bókunum hafi verið og séu enn í miklu igildi. “Jafnvel á vorum tíma,” segir hann, “er Gyðinga- þjóðin óhrekjandi vitni þess, hve skýran skilning Móses hafði á því sem snerti lík- amlega heilbrigði þjóðarinnar.” Hann segir enn fremur: “Varnarmeðulin móti sjúkdómum — þó það ef til vill hafi verið að honum óafvitandi —- byrjaði með Móses.” Svo gefur hann nokkur dæmi. Hann segir að alment teljist svo til að 100 af hverjum 1,000 tæringarveikum deyi, en hjá Gyðingum eru það aðeins rúmir 30. Af öðrum þjóðflokkum taldist svo til að 336 geðveikir fyndust meðal hverra 1,000,- 000 manna, en meðal Gyðinga ekki fleiri en 45.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.