Stjarnan - 01.03.1941, Síða 8
24
ST J ARN'AN
Læknirinn sneri sér
til Kriáts
Einu sinni var lítill drengur fluttur á
sjúkrahúsið til að ganga undir uppskurð.
Læknirinn lagði hann á uppskurðarborðið
og sagði: “Nú átt þú að sofna stundar-
korn.” “Ef eg á að fara að sofa, þá verð
eg fyrst að lesa kvöldbænina niína,” svar-
aði drengurinn, svo spenti hann greipar og
bað:
“Nú legg eg aftur augun mín, en öndin
hvarflar Guð til þín. Þinn almáttuga ást-
arvæng, lát yfirskyggja mína sæng.”
Læknirinn hafði tár í augum er hann
byrjaði uppskurðinn. Um kvöldið náði
hann í Biblíuna, sem lengi hafði legið ó-
notuð, og er hann lauk henni upp varð
honum litið á Jóh. 6:37. “Alt sem faðir
minn gefur mér kemur til mín, og þann
sem til mín kemur mun eg ekki burt reka.”
Svo féll hann á kné fyrir frelsara sínum
og gaf sig honum á vald í bæn og trausti
til hans fyrirheita. Upp frá þeim degi
var líf læknisins gjörbreytt, og allir gátu
séð af framferði hans að hann var Jesú
lærisveinn.
E. S.
Smávegis
Þrjú pund af mat og 4 pund af vatni er
nægilegt til að viðhalda lífi manns. En
þetta kæmi að litlum notum nema maður
um leið gæti andað að sér 34 pundum af
lofti hverjar 24 klukkustundir.
4-4-4-
Þýzku yfirvöldin í Noregi hafa tekið
undir sig alt byggingarefni tii herbúnaðar.
Afleiðingarnar eru þær að Norðmenn geta
ekki framkvæmt áform sitt með að endur-
reisa borgir og bæi, eftir því sem norska
vikublaðið “Norges Industry” segir frá.
4-4-4-
Frá Noregi fréttist að 5,000 atvinnu-
iausir menn eig'i að fara til Þýzkalands til
að fá vinnu.
4-4-4-
Nærri 100 þúsund verkamenn í verk-
smiðjum Japana fengu leyfi að fara heim
í 10 daga að hjálpa til við uppskeruna.
STJARNAN kemur út einu sinni á nián-
uði. Verð: $i.oo á ári. Borgist fyrirfram.
Publishers: The Canadian Union Con-
ference of S. D. A., Oshazva, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can.
Skýrsla hefir komið frá Noregi um
skaðann, sem leiddi af stríðinu fyrir eignir
einstaklinga. Meðal annars voru 15,000
heimili að meira eða minna leyti eyðilögð.
Verð þeirra var metið 140 miljónir króna.
Með þessu er ekki talin eyðileggingin í
Narvik, Harstad eða Bergen. Auk alls
þessa hefir ákaflegur skaði orðið á opin-
berum stofnunum og almennings eignum.
4-4-4-
í Bandaríkjunum eru 1539 jarðgöng
fyrir járnbrautir að fara í gegn, lengd
þeirra er samtals 320 mílur.
4-4-4-
Sagt er að fleiri vísindamenn komi frá
Utah að tiltölu heldur en frá nokkru öðru
ríki. Ef Canada og Newfoundland eru
undantekin þá eru flestir útlendir vísinda-
menn i Bandaríkjunum fæddir á Rússlandi.
'4-4-4-
Bermuda hefir 32,000 íbúa og þeir hafa
vfir 18,000 reiðhjól.
4-4-4-
Bláhvalurinn, sem álitinn er stærsta
skepna heimsins getur orðið 150 skippund
að þyngd, það er á við þyngd 35 fíla.
4- 4- 4-
Herra von Ribbentrop á Þýzkalandi
kann ekki ítölsku og Ciano á ítalíu skilur
ekki þýzku, svo þegar þeir mæta á ráð-
stefnu, verða þeir að tala ensku, það mál
skilja þeir báðir.
4-4-4-
Samkvæmt uppástungu Lord Beaver-
brooks umsjónarmanns loftskipa fram-
leiðslunnar, hafa brezkar húsmæður gefið
aluminum potta sína og pönnur.. Sagt
er að þetta verði nóg efni í 500 doftskip.
4-4-4-
Áreiðanlegar fréttir hafa heyrst um það
að eitt þúsund brunnar séu grafnir á mán-
uði hverjum í Bandaríkjunum til að leita
að olíu. Sumir eru aðeins nokkur fet á
dýpt en aðrir alt að 2 mílum, og kostnað-
urinn er metinn um 250 þúsund dollarar.