Stjarnan - 01.08.1944, Blaðsíða 5

Stjarnan - 01.08.1944, Blaðsíða 5
61 STJARNAN félagar hans að byggja upp kofann aftur. Þeir höfðu lokið viö það um sólarlag svo höfðinginn gat sofið í sínum eigin kofa um nóttina. Nú varð gagngjör breyting á öllu. Höfðinginn kallaði fólk sitt saman og réð því til að ganga á vorn skóla. Hann tók sjálfur kristna trú og notaði áhrif sín tii að styðja starf vort. Margir af þeim sem vÓfu erfiðastir viðureignar meðal eldra fólksins, bæði karlar og konur sneru sér nú °g meðtóku kristindóminn. Einn af kennurum vorum sendi út tvo °g tvo af nemendum sínum til að prédika. 'f'veir þeirra komu til konu sem sýndi engan áhuga fyrir neinu sem þeir sögðu. Þeir heimsóttu hana í tvær vikur en árangurs- faust, þeir undruðust yíir hvernig hægt mundi vera að vekja athygli hennar. Nú fóru þeir og unnu sér inn lítið eitt af peningum og keyptu salt fynr þá. Þegar þeir heimsóttu konuna næst spurðu þeir hvers vegna hún vildi ekki hlusta á Guðs orð. Hún sagðist vera svo fátæk að hún hefði enga ánægju af lífinu, og enginn hugsaði neitt um sig. Nú gáfu þeir henni saltið. Það var undravert hvernig það glaðnaði yfir henni. Þegar þeir komu næstu viku á eftir var hún fús til að hlusta á boðskapinn, sem þeir höfðu að flytja. Svo sendi hún barn sitt á skólann svo að gæti lært og kent henni á eftir. Árangurinn varð sá að konan sneri sér loks til Guðs og varð einlæg trúuð manneskja. Kennari eirin hafði farið heim til sín fyrir hvíldardaginn. Snemma um morgun- inn fór hann ofan að ánni til að þvo sér áður en hann færi á hvíldardagsskólann Niður við ána mætti hann drykkjumanni, sem var að baða sig, og spurði hví hann væri þar svo snemma morguns. Maðurinn spurði hann sömu spurningar. Kennarinn sagðist vera að fara á hvíldardagsskóiann. Hinn sagðist vera að fara í drykkjuveizlu. “Hvers vegna ekki heldur koma með mér?” spurði kennarinn. “Kom þú með mér í drykkjuveizluna,” sagði maðurinn. “Það má vera,” svaraði kennarinn, “ef þú vilt fyrst koma með mér á hvíldardagsskólann.” Klukkutíma seinna var drykkjumaðurinu uppá búinn og fór með kennaranum á guðs- þjónustuna. Þegar þangað kom var kennar- inn beðinn að prédika. Hann tók fyrir ræðu efni söguna um Símon töframann, sem lét svo mikið yfir sér, og sýndi fram á hvað hann var illa staddur og hafði ekkert. Drykkjumaðurinn hélt að ræðan hefði aðal- lega verið ætluð sér. Skömmu seinna fór kennarinn fram hjá þorpi hans og maður- inn kallaði til hans að bíða. Svo kom hann út með langa reykjarpípu lagði hana á stein, tók svo minni stein og braut píp- una í smátt með honum. Þorpsbúar sem höfðu horft á hann spurðu hvað hann væri að gjöra. Hann sagði þeim að þetta væri það sem hefði hindrað hann frá að lifa hamingjusömu sigursælu lífi, svo hann notaði þessa aðferð til að losast við freist- inguna. Svo kom hann á skóiann og bað um upptöku í Biblíunámsbekkinn, en hann kunni ekki að lesa, svo hann fór í bekk með litlu börnunum til að læra að lesa. Hann var 1 byrjenda bekknum í þrjú ár, svo tvö ár í þeim næsta. En þrautseigja hans og staðfesta öðlaðist endurgjald sitt að lok- um. Hann lærði að lesa Biblíuna sína. Nú er hann djákni í söfnuðinum. Kennari einn mintist þess að hann var lítill drengur þegar hann fór að fara á skólann 1914. Faðir hans var drykkjumað- ur og heiðingi. Á heimili hans var stöðugt ósamlyndi. Eftir nokkurn tíma fór hann að segja föður sínum guðspjalla sögurnar, sem hann heyrði á skólanum. Þegar faðir- inn heyrði um endurkomu Krists og enda- lok óguðlegra, þá fór hann að. hugsa Drengurinn var þangað til að, að hann fékk föður sinn til að koma með sér til kirkju. Árangurinn varð sá smámsaman að bæði faðir hans og móðir gáfu Guði hjarta sitt. Nú er þessi maður auðmjúkur og guð- rækinn meðstarfandi í söfnuði vorum. Prédikari nokkur segir frá því að nálægt heimili hans hafi verið lítið hús þar sem maður einn bjó með konu sinni. Konan var læs en maðurinn ekki. Á hverjum degi heyrðu þau kvöld og morgun guðsþjónust- una, sem prédikarinn hafði á heimili sínu, en þau fóru þangað ekki af því þau til- heyrðu annari kirkju. En þegar þessi ná- granni sá þau lesa Biblíuna og læra vers utanbókar þá vaknaði forvitni hans. Pré- dikarinn lánaði þeim nú smárit, sem konan las upphátt fyrir mann sinn. Það var um hvíldardag Drottins. Konan fékk áhuga fyrir að læra meira og sagði manni sínum að hún vildi verða Aðventisti. Hann mót- mælti því als ekki, en mánuði seinna bað hann prédikarann að stryka nafn konu sinn

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.