Stjarnan - 01.12.1945, Page 4

Stjarnan - 01.12.1945, Page 4
92 STJARNAN XII.--Hinn góði hirðir Frelsari vor, kallaði sjálfan sig hirði, og lærissveina sína kallaði hann hjörð sína. Hann sagði: “Eg er góði hirðirinn, og eg þekki mína, og mínir þekkja mig.” (Jóh. 10, 14). Jesús átti innan skamms að yfirgefa lærisveina sína, og hann sagði þetta til þess að hughreysta þá. Hann vissi, að þegar hann væri farinn frá þeim, þá mundu þeir minnast orða hans. Hvar sem þeir sæu hirði gæta hjarðar sinnar, þá hlytu þeir að hugsa til hinnar kærleiksfullu umönnunar, sem frelsarinn bar fyrir þeim. Það var siður þar í landi, að hirðirinn væri yfir hjörð sinni bæði nótt og dag. Á daginn fór hann með hana yfir klungur og kletta og gegnum skógana, alt til hinna yndislegu beitilanda á árbakkanum. Á nóttunni hélt hann vörð yfir henni og verndaði hana fyrir villidýrum og ræn- ingjum, sem oft voru þar í grend. Hann annaðist með mikilli nákvæmni, það sem var sjúkt og veikburða í hjörð hans. Hann tók litlu lömbin í fang sér og bar þau við brjóst sér. Hvað stór sem hjörðin var, þekti þó hirðirinn hvern einasta sauð. Hann gaf sérhverjum þeirra nafn, svo að hann gæti kallað á þá með því nafni. Þannig ber Kristur, hinn himneski hirð- ir, umhyggju fyrir hjörð sinni, sem er dreifð út um allan heiminn. Hann þekkir nöfn vor allra. Hann þekkir húsið, sem vér búum í. Hann ber slíka umhyggju fyrir hverjum einstakling, eins og það væri eng- inn annar til í heiminum. Hirðirinn gekk á undan hjörðinni og bægði frá allri hættu. Hann varð að berj- ast við villidýr og ræningja, og stundum var hann drepinn, meðan hann var að verja hjörð sína. Þannig verndar frelsarinn lærisveina- hjörð sína. Hann hefir gengið á undan oss. Hann hefir lifað á jörðunni eins og vér. Hann var barn, ungmenni og fulltíða mað- ur- Hann yfirvann Satan og allar freisting- ar hans, svo að vér gætum einnig unnið sigur yfir honum. Hann dó til þess að frelsa oss. Þótt hann sé á himnum, gleymir hann oss ekki eitt augnablik. Hann mun trúlega gæta hvers einasta sauðs. Óvinurinn getur ekki tekið einn einasta af þeim, sem fylgja honum eftir. Einn hirðir gat haft hundruð sauða, en ef einn þeirra vantaði, varð hann ekki eftir hjá þeim, er vísir voru. Hann fór að leita að því, sem tapað var. Hann fór út í náttmyrkrið, í regn og storm, yfir fjöll og dali. Hann hafði enga ró, fyr en sauðkindin var fundin. Og þá er hann hafði fundið hana, tók hann hana sér í fang og bar hana til hjarð- arinnar. Hann kvartaði ekki yfir hinni erfiðu leit, en sagði glaður: “Samgleðjist mér! því að eg hefi fundið sauðinn minn, sem var týndur”. (Lúk. 15, 4—7). Þannig ber frelsis-hirðirinn ekki einungis umhyggju fyrir þeim, sem vísir eru. Hann sagði: “Mannsins sonur er kominn til að leita að hinu týnda og frelsa það.” (Matt. 18, 11). “Eg segi yður, þannig mun verða gleði á himnum yfir einum syndara, sem gerir iðrun, fremur en yfir níutíu og níu rétt- látum, er ekki þurfa iðrunar við. (Lúk- 15, 7). Við höfum syndgað og ráfað burt frá guði. Kristur segir, að vér séum einc og villuráfandi sauðir. Hann kom til að hjálpa oss til að lifa án syndar, og það kallar hann að leiða oss á hinn rétta veg. Þegar vér snúum við með hirðinum og höldum oss frá syndinni, þá segir Kristur við englana á himnum: “Samgleðjist mér því að eg hefi fundið sauðinn minn, sem var týndur.” Og fagnaðarríkur lofsöngur heyrist frá englasöngflokknum, sem fyllir allan him- inn með unaðsfögrum hljóm. Kristur talar ekki um hryggan hirði, sem kemur aftur án þess, að hafa fundið sauðinn. Vér getum því verið vissir um, að ekki einn einasti villuráfandi sauður af hjörð guðs er gleymdur, enginn er hjálpar- laus, sérhvern þann, sem vill frelsast, mun frelsarinn losa úr fjötrum syndarinnar. Látum því alla villudáfandi fá nýtt hug- rekki. Góði hirðirinn leitar að þér. Mundu, að verk hans er að “frelsa það týnda”. Og það ert þú. Að efast um, að mögulegt sé að frelsa

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.