Stjarnan - 01.12.1945, Qupperneq 8
96
STJARNAN
lært að treysta honum af öllu hjarta, ætíð
og í öllum hlutum þá getum vér líka glatt
aðra, styrkt og uppörfað þá, sem eiga við
alskonar erfiðleika að stríða; og sem ekki
þekkja hann sem einn getur hjálpað, eða
sem ennþá eru of trúarveikir til að varpa
allri sinni áhyggju upp á hann. Það eykur
líka vora eigin hamingju hér, að geta létt
byrði lífsins fyrir aðra og hjálpað þeim að
meðtaka heimboðið til hins himneska brúð-
kaups.
Hefir þú meðtekið boðið? Gleðst þú óút-
málanlegum og dýrðlegum fögnuði fyrir
trú á frelsarann og í samfélagið við hann?
S. J.
Biðjið án afláts
Guðs börn hafa þau einkaréttindi að
mega biðja hann um hjálp og leiðbeiningu
í öllu starfi sínu. Bóksölumenn vorir segja
oft frá reynslu sinni og frelsun frá ýmis-
konar hættum þegar þeir eru að ferðast
um til að flytja fagnaðar erindið út um
bygðir og bæi- Eftirfylgj andi er ein slík
frásögn sunnan úr ríkjum.
“Einu sinni vann eg allan daginn til
klukkan þrjú eftir hádegi, án þess að fá
eina einustu pöntun. Eg féll á kné á skugg-
anum af stóru tré og bað til Guðs, fór
svo heim að húsi einu skamt í burtu. Þegar
eg kom að dyrunum leit konan snöggvast
á mig og skelti svo aftur hurðinni. Hún
hélt eg væri Jehova vitni. Eg fór burt en
hún kallaði upp lögregluna og lýsti fyrir
þeim útliti mínu. Lögregluþjónn var send-
ur til að vita hvað um væri að vera. Hann
sá mig fara inn í hús og kom upp á vegg-
svalirnar og hlustaði á meðan eg lýsti bók-
inni fyrir þeim sem inni voru.
Þrjár konur voru þarna inni, þær voru
systur, ein frá Kansas, önnur frá Missouri,
þær voru að heimsækja systur sína sem
hér bjó. Eg lýsti fyrir þeim bákinni sem
eg var að selja, það var Deilan mikla. Eg
fékk pöntun hjá þeim öllum. Húsmóðirin
hafði fjóra syni í hernum, en hinar systurn-
ar höfðu þar tvo syni hver. Eg kvaðst
mundi vera glöð að biðja til Guðs með
þeim, og tóku þær því vel. Eg fann
til nálægðar Guðs er eg bað fyrir þessum
mæðrum og sonum þeirra.
STJARNAN kemur út einu sinni á
mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist
fyrirfram. Publishers: The Canadian
Union Conference of S. D. A.,
Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can.
Þegar eg kom út úr húsinu mætti eg
lögregluþjóninum við dyrnar. Tárin stóðu
í augum hans. Hann heilsaði mér með
handabandi og bað mig skrifa sitt nafn
fyrir bókinni, sem eg væri að selja. Eg
gjörði það. Svo stakk hann upp á að eg
færi inn í bílinn hans og kæmi með hon-
um. Hann keyrði með mig til konunnar
sem skelti hurðinni móti mér- Hann heils-
aði henni og bað leyfi til að koma inn, og
að hún hlustáði á hvað eg hefði að segja,
aðeins fáeinar mínútur. En fyrst fullviss-
aði hann hana um að eg væri ekki Jehova
vitni. Eg byrjaði með því að benda á flagg-
ið með fjórum stjörnum á, og kom það þá í
ljós að hún átti tvo syni og tvo sonar-
syni í stríðinu. Svo lýsti eg Deilunni miklu
fyrir henni, og Guð hneigði hjarta hennar
til að gefa mér pöntun fyrir bókinni. Svo
höfðum við bæn. Eftir það sagði hún mér
að sér þætti leiðinlegt að hún skyldi hafa
kallað lögregluna. Eg sagði henni það væri
gleðiefni fyrir mig að hún hefði gjört það,
því nú hefði eg fengið fimm pantanir í
staðinn fyrir eina. Eg er búin að skila öll-
um þessum bókum og konan sem kallaði
lögregluna er í þann veginn að fara að
halda hvíldardaginn.
Mér geðjast vel að starfi mínu og vona
það verði mörgum til blessunar.
M. C. Graves.
Smávegis
Bandaríkjaherinn framleiðir nú 3000 rit-
vélar á mánuði í þýzkri verksmiðju sem
var útbúin til að framleiða vélar fyrir öll
algeng núverandi tungumál, þar á meðal
kínversku, hebresku, persnesku og Siamese.
Allar vélar, sem nú eru búnar til þar eru
með enskum bókstöfum, og eru þær send-
ar til hermannastöðvanna-