Stjarnan - 01.04.1946, Blaðsíða 1
STJARNAN
APRÍL 1946 LUNDAR, MAN.
“Trúðu á Drottinn Jesúm
Kriát þá verður þú hólpinn.”
Guði sé lof fyrir hverja sál, sem trúir á
Jesúm, og fylgir kenningum hans. Jesús
segir oss að “Svo elskaði Guð heiminn að
hann gaf sinn eingetinn son, til þess hver
sem á hann trúir ekki glatist, heldur hafi
eilíft líf.” Jóh. 3: 16. “Sannlega segi eg
yður, hver sem heyrir mitt orð og trúir
þeim sem mig sendi, hefir eilíft líf og
kemur ekki til dóms, heldur hefir stigið
yfir frá dauðanum til lífsins.” Jóh. 5: 24.
Jesús kom til að frelsa sitt fólk frá þess
syndum, og hann segir ennfremur: “Eg er
góði hirðirinn, eg þekki mína og mínir
þekkja mig, eins og eg þekki föðurinn og
faðirinn þekkir mig. Og eg gef út lífið
fyrir sauðina.” Jóh. 10: 14-15.
Það er vissulaga Guði þóknanlegt að
vér fylgjum kenning Krists, að þáð sem
vér viljurn að mennirnir gjöri oss, það
skulurn vér og þeim gjöra. En Þetta er
ekki nóg manninum til sáluhjálpar. Eg
gæti jafnvel í eigingjörnum tilgangi reynt
að koma mér vel við nágranna mína. En
Guð sér hver tilgangur vor er. Hann lítur
á hjartað. Alt vort framíerði verður að
spretta af kærleika til Guðs og manna ef
það á að vera Guði Þóknanlegt. Ef vér
óskum að öðlast eilíft líf með Jesú í hans
dýrðarríki, þá verðum vér að trúa vitnis-
burði hans' um sjálfan sig og afstöðu hans
gagnvart Guði Hann sagðist vera Guðs
sonur. Jóh. 10: 36. í bæn sinni til Föður-
sins sem vér lesum í Jóh. 17. kap. segir
hann: “Gjör mig nú vegsamlegan Faðir
hjá sjálfum þér, með þeirri dýrð sem eg
hafði hjá þér áður en heimurinn var. Jóh.
17: 5. Jesús sagði ennfremur um sjálfan
sig: “Eg em upprisan og lífið.” Eg em
vegurinn, sannleikurinn og lífið, enginn
kemur til Föðursins nema fyrir mig.” Jóh.
11: 25 og 14: 6.
Jesús sagði við Gyðingana forðum: “Ef
þér trúið ekki að eg sé sem eg er munuð þér
deyja í yðar sjmdum.” Jóh. 8: 24. “Ekki
dærnir Faðirinn nokkurn, heldur hefir hann
falið syninum á hendur allan dóm, svo að
allir heiðri soninn, eins og þeir heiðra
Föðurinn. Hver sem ekki heiðrar soninn,
sá heiðrar ekki Föðurinn sem sendi hann.”
Jó'h. 5: 22-23.
Samkvæmt þessu er það nauðsynlegt
oss til sáluhjálpar að vér trúum því að
Jesús er Guðs sonur frá eilífð, að hann dó
fyrir oss, að hann er sá sem dæma mun lif-
endur og dauða, og oss ber að heiðra hann
sem Guð.
Páll postuli talar um soninn “Fæddan af
sæði Davíðs eftir holdinu. Kröftuglega
auglýstan Guðs son eftir anda heilagleik-
ans, rneð upprisunni frá dauðum, Jesús
Krist Drottinn vorn.” Róm 1: 3-4.
“Pétur, fullur af heilögum anda, sagði
við þá: Þér höfðingjar þjóðarinnar og
öldungar ísraels . . . þá sé yður öllum
vitanlegt og öllum ísraelslýð að í nafni
Jesú Krists frá Nazaret, sem þér kross-
festuð, en Guð uppvakti frá dauðum, að
af hans völdum er það orðið að þessi
stendur heilbrigður fyrir yðar augum . . .
Af engum öðrum er hjálpræðis að vænta,
því meðal manna gefst ekki nokkur annar
undir himninum fyrir hvers fulltyngi oss
sé ætlað hólpnum að verða.” Post. 4: 8-12.
Páll postuli segir: “Eg kendi yður fyrst
og fremst þann lærdóm, sem eg hef með-
tekið, að Kristur væri dáinn vegna vorra
synda eftir ritningunum, og grafinn og