Stjarnan - 01.04.1946, Side 2

Stjarnan - 01.04.1946, Side 2
26 STJARNAN upprisinn á þriðja degi eftir ritning'unum.” 1 Kor. 15: 3-4. I Galatabréfinu 1: 8-9 segir sami postuli: “Þó að vér eða engill frá himni boðaði yður náðarlærdóminn öðruvísi en eg hef kent yður, hann sé bölvaður . . . ef nokk- ur kennir yður annan náðarlærdóm, en þann sem þér hafið numið, hann sé bölv- aður.” Þetta eru sterk og alvarleg orð sem ekki verða misskilin. Svipuð hugsun felst í orðum þeim er Jesús talar um þá er ekki meðtaka orð hans; “Sá sem forsmáir mig og meðtekur ekki mín orð, hefir þann sem dæmir hann; það orðið sem eg hef talað mun dæma hann á efsta degi.” Jóh. 12: 48. Þeir aftur á móti sem trúa Guðs orði og fylgja Jesú, þeir koma ekki til dóms, heldur hafa stigið yfir frá dauðanum til l(fsins. Jóh. 5: 24. “Sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og varðveita það.” Lúk. 11: 28. S. Johnson. XVI. — I Getsemane Til þess að gera sér ljóst, með hverju móti Jesús gat veitt syndinni mótstöðu, verðum vér að athuga framkomu hans. Líf frelsarans hér á jörðunni var líf bænarinnar. Hann var oft margar stundir einn í samfélagi við guð, og sendi innilegar bænir upp til síns himneska föður. Það veitti honum vísdóm og þrek til að vinna hans ætlunarverk og verndaði hann frá því, að falla fyrir freistingum Satans. Eftir að Jesús hafði etið. páskalambið með lærisveinum sínum, fór hann með þeim til grasgarðsins Getsemane, þangað sem hann svo oft hafði farið með þeim til að biðja. Á leiðinni talaði hann við þá og upp- fræddi þá, en er þeir nálguðust grasgarð- inn varð hann hljóður. Jesús hafði lifað alt líf sitt fyrir augliti föður síns. Guðs andi hafði stöðugt verið leiðtogi hans. Hann gaf Guði ætíð dýrðina af öllum sínum verkum hér á jörðunni, og hann sagði: “Ekki megna eg að gjöra neitt af sjálfum mér.” Jóh. 5, 30. Vér megnum ekki að gjöra neitt af sjálfum oss. Það er einungis með því, að vér gefum oss á Jesú vald og öðlumst styrk frá hon- um, að vér getum sigrað og gjört vilja hans hér á jörðunni. Vér verðum að bera sama einlæga, barns- lega traustið til hans, og hann bar til föður síns. Kristur sagði: “Án mín getið þér alls ekkert gjört.” (Jóh. 15, 5). Sálarangistin, sem frelsarinn leið, þessa óttalegu nótt í Getsemane, byrjaði, þá er hann nálgaðist grasgarðinn. Það var alveg eins og hann væri nú bú- inn að missa þann viðhaldskraft frá föð- urnum, sem hann ávalt hafði haft. Hann byrjaði að skilja, hvað það var að vera útilokaður frá Guði. Kristur varð að bera synd heimsins, og þegar hún nú var lögð á hann, leit það út fyrir að vera meira en hann gæti borið. Syndasektin var svo óttaleg, að hann freistaðist til að hugsa, að guð væri hættur að elska hann. Hann fann hina miklu misþóknun, sem guð hefir á syndinni og hann sagði: “Sál mín er sárhrygg alt til dauða.” Jesús hafði látið alla lærisveinana verða eftir, nálægt grasgarðshliðinu, nema Pétur, Jakob og Jóhannes, þá þrjá tók hann með sér inn í garðinn. Þeir voru honum hand- gengnastir og hann gat borið mest traust til þeirra. En samt var honum ómögulegt, að láta jafnvel þá, vera vitni að þeirri sálarkvöl, sem hann varð nú að líða. Hann sagði við þá: “Bíðið hér og vakið með mér ” (Matt. 26, 30). Og hann gekk lítið lengra áfram, og féll fram á ásjónu sína. Hann fann að syndin skildi hann frá föður hans, og þetta djúp, sem komið var milli þeirra, fanst honum svo stórt og dimt, að hann titraði við að hugsa um það. Kristur leið ekki fyrir sínar, heldur fyr- ii syndir heimsins. Hann fann til mis- þóknunar guðs á syndinni, alveg á sama hátt og syndarinn mun finna á hinum mikla degi dómsins. í angist dauðans, kraup Jesús niður að kaldri jörðunni og frá hinum fölu vörum hans hljómuðu þessi sáru orð: “Faðir minn, ef mögulegt er, þá fari þessi bikar fram

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.