Stjarnan - 01.04.1946, Qupperneq 5
STJARNAN
29
hætta við áform mitt. Þegar ekkert dugði,
kvaðst hún mundi loka húsinu og fara
heim til foreldra sinna, ef eg færi til
kirkju næsta laugardag.
Eg var hryggur í huga er eg fór til
kirkjunnar þann hvíldardagsmorgun. Eg
gat séð heimili mitt gegn um glugga á
kirkjunni. Guð heyrði bænir mínar, svo
þegar eg kom heim frá kirkjunni var
konan mín þar. í nokkrar vikur vann hún
ekki á hvíldardögunum, en vildi þó ekki
korna til kirkju. Svo einn hvíldardag fór
hún að vinna, en með mótmælum sam-
vizku sinnar. Litlu seinna var hún hættu-
lega veik. Þá kom Mr. Kime, presturinn
okkar, og bað fyrir henni. Hún játaði
syndir sínar og lofaði að hlýða Guði.”
Aron og kona hans hafa unnið saman
til eflingar Guðsríkis og flutt mörgum á
Sumatra fagnaðarboðskap friðarins.
Menan Diredga
Java er álitinn ein hin fegursta of Aust-
ur Indversku eyjunum. íbúatalan er um
40 miljónir. Það er þé'ttbygðasta plássið
í heiminum. Svo telst til að 823 íbúar séu
á hverri ferhyrningsmílu.
Menan Diredga ólst upp í Múhameðstrú
eins og flestir á Java. Meðan hann var
unglingur snerist hann til kristinnar trú-
ar á mjög undraverðan hátt. í nágrenninu
bjó Sjöunda dags Aðventisti sem Menan
kom oft að heimsækja. Einu sinni er hann
var í heimsókn hjá þessum kunningja sín-
um, sá hann sendibréf skrifað á Malaya
máli, rifið í parta í ruslakörfunni. Þetta
vakti forvitni hans, og er hann sá sér færi,
þegar enginn var viðstaddur, tók hann
bréfsneplana og fór með þá heim til sín,
setti þá saman og las bréfið. Það var bréf
frá Petra Tunheim, sem var ein af fyrstu
trúboðum vorum til Java. Hún bað og
hvatti þann sem bréfið var til, að lifa
sannkristnu lífi og vera reiðubúinn að
mæta Jesú frelsara sínum þegar hann
kæmi. Menan komst við. Hann fann þörf
á hjálp. Hið fyrsta sem hann gjörði til að
öðlast frið við Guð og samvizku sína, var
að skila bréfinu sem hann hafði stolið og
jata yfirsjón sína. Honum var nú gefin
Biblía á Malaya máli, sem hann las í leyni,
því enginn Múhameðstrúarmaður er ó-
hultur um líf sitt ef það vitnast að hann
lesi Biblíuna.
Nú byrjaði hann brátt að halda hvíld-
ardaginn heilagan og þannig fann faðir
hans að hjarta sonarins var fult af hinni
hötuðu kristnu trú. Menan hljóp í burtu
á hvíldardaga skólann og fór ekki heim
af'tur um kvöldið. í þrjár nætur lá hann
úti og var auk þess matarlaus. Svo heim-
sótti hann einhverja kristna vini sína og
þeir réðu honum til að fara heim aftur og
það gjörði hann. En þegar heim kom
kannaðist enginn við hann sem meðlim
fjölskyldunnar lengur. Þetta var þung
reynzla, en hann stóðst hana og hefir
reynzt trúr. Hann fór alfarinn heiman
þennan dag, og hefir aldrei komið heim
síðan.
Kristnir vinir hjálpuðu honum að kom-
ast á skóla vorn í Singapore. Að loknu
námi fór hann strax að starfa sem trú-
boði. Seinna var hann kallaður til vinnu
að útgáfu kristilegra rita. Hann hefir í
mörg ,ár verið ritstjóri Malaya blaðsins
Tákn Tímanna, og auk þess ritað margar
bækur, sem eru sérstaklega hentugar að
nota meðal Múhameðstrúarmanna.
C. O. G.
Kona ein, á búgarði í Síberíu, sem hélt
uppá 117. afmælisdag sinn nýlega, af-
þakkaði ellistyrk frá stjórninni af því hún
sagðist hafa vanist við að vinna alla sína
æfi, og færi ekki að hætta þeim vana. Hún
kvaðst heldur ekki þurfa að vinna ein-
sömul, því 90 ára gamall sonur hennar
vinnur landið með henni.
4-4-4-
Samkvæmt áreiðanlegum skýrslum á
sjöunda hver fjölsky-lda í Bandaríkjunum
hlut í bílaverksmiðjum, svo þeim stendur
hreint ekki á, sama um verkföllin víð þann
iðnað. Bílaverksmiðjurnar nota þrjá-fjórðu
af gleri því og gúmmí sem þjóðin fram-
leiðir, 67 hundruðustu af leðri, 33 hundr-
uðustu af tini, 20 -hundruðustu af stáli, og
10 hundruðustu af kopar.