Stjarnan - 01.05.1946, Blaðsíða 3

Stjarnan - 01.05.1946, Blaðsíða 3
STJARNAN 35 verið í uppreisn gegn Guði kærleikans, þar mun að lokum verða friðsamt heim- kynni hinna frelsuðu. Lítill drengur hafði mikla löngun til og vonaði sá dagur mundi koma að hann gæti eignast bát að leika sér með. Hann var mjög fátækur og oft horfði hann með eftirlöngun á það sem var til sýnis út í búðargluggana. En það var altaf gler á milli. Skyldi hann aldrei geta eignast bát? Einu sinni varð hann fyrir slysi á stræt- inu. Han-n meiddist mikið, var tekinn á sjúkrahús og lá þar fleiri mánuði. Vin- gjarnlegur maður sem heimsótti sjúkra- húsið gekk fram hjá rúmi hans og talaði við hann litla stund. Næst þegar hann kom á sjúkrahúsið færði hann drengnum pakka. Þegar búið var að taka umbúð- irnar utan af, stóð þarna í rúminu einmitt sami báturinn, sem hann hafði svo oft dáðst að í búðarglugganum. Var það mögu- legt? Litli drengurinn horfði þegjandi á bátinn um stund, rétti svo út hendina hálf- hikandi til að snerta hann og sagði fagn- andi um leið: “Það er ekkert á milli, ekk- ert gler á milli.” Báturinn var hans. Hann átti hann sjálfur. “Einhvern daginn mun hin kærleiks- ríka rödd frelsarans heyrast er hann segir: “Komið ástvinir föður míns og eignist ríkið, sem yður var fyrirbúið frá upphafi veraldar.” Matt. 25:34. öll synd og af- leiðingar hennar verða afmáðar að eilífu. Vér munum sjá Guð augliti til auglitis. Ekkert mun standa á milli. Himininn er verulegt pláss. Jesús sagði: “Eg fer að tilbúa yður stað.” Jóh. 14: 3. Sá staður verður þar sem Guð sjálfur hefir bústað sinn, “Fyrir því blygðast Guð ekki þeirra vegna að kallast þeirra Guð, því hann hafði tilreitt þeim borg.” Hebr. 11:16. Borgin er hin nýja Jerúsalem, höfuðborg hinnar nýju jarðar, og til þeirrar himnesku borgar munu allir hinir frelsuðu koma og tilbiðja hann, sem elskaði þá og gaf sjálfan sig út fyrir þá. Þessi dýrðlega borg, með gegnsæu jasper veggina og göturnar úr gulli, er mjög svo ólík hinum syndspilltu sóttkveikju- borgum heimsins, sem vér þekkjum. Þessi borg hefir alt fagurt og aðlaðandi. íbúar hennar verða heilagar, himneskar verur og ,bezt af öllu, Jesús sjálfur, hinn góði hirðir verður þar og leiðir fólk sitt til uppsprettu lifandi vatns. Þar mun menn hvorki hungra né þyrsta framar. í stað hins rykuga fatnaðar píla- grímsins fær maður skrúða dýrðlegrar fegurðar. Frá hásæti hins eilífa flýtur straumur lífsins vatns og á bökkunum vex í slíkri fegurð, sem mannlegt auga aldrei fyr hefir séð, lífsins tré með hinum líf- gefandi ávöxtum, og sígrænu laufum sem eru til lækningar þjóðunum.” Op. 22: 1-2. Þá verða öll sár eftir stríð, hatur og áverka fullkomlega læknuð, “þegar Drottinn græð- ir meinsemdir síns fólfcs, og læknar þess mörðu sáí.” Jes. 3: 26. Hið eina sem stendur nú milli vor og hins eilífa friðar er starf sem ekki er búið að ljúka við. Jesús sagði að þegar búið væri að prédika fagnaðar erindið út um alla heimsbygðina til vitnisburðar öllum þjóðum, þá mundi endirinn koma. Matt. 24: 14. Vilt þú hjálpa til að flytja boðskap- inn til miljóna manna sem bíða hans, og flýta þannig fyrir degi hins eilífa friðar. Gefðu oss alla þá hjálp sem þú getur. Guð mun launa þér. R. A. Anderson. Byrjun Aðventiáta átarfsins í Kína Abram La Rue, fyrverandi sjómaður, sigldi til Hong Kong 21. marz 1888. Hann var þá 69 ára að aldri. Mörg undanfarin ár hafði honum legið á hjarta að flytja fagnaðarerindi Krists til Kína, en trúboða- nefndin áleit ekki hyggilegt að senda aldraðan mann svo langt í burtu til að starfa þar sem Aðventistar ennþá höfðu enga trúboðstöð, svo honum var ráðlagt að finna starfsvið sitt til eflingar Guðs ríki heima fyrir. En hann gat ekki hrint úr huga sínum þörf Kínverja, og forsjónin opnaði veg fyrir hann að komast þangað. Hann fékk far með skipi og ásetti sér að starfa sem trúboði í Kína og sjá fyrir sér sjálfur. Hann lenti í, Hong Kong án þess að skilja neitt í kínversku, og mætti sem von var alskonar erfiðleikum. En hann var hug- rakkur og hamingjusamur, sannfærður um að hann var á réttum stað þar sem skylda

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.