Stjarnan - 01.08.1946, Page 3

Stjarnan - 01.08.1946, Page 3
STJARNAN 59 toga, 'þá stefnir hann stöðugt upp á við og mun að lokum verða með konungi konung- anna í hans dýrðarríki. Hin alyarlega spurning er þessi: “Hvert stefnir þú?” Þegar þú kemur til enda leiðarinnar þá verður annaðhvort glötun eða eilíft líf hlutskifti þitt. Það er alt undir því komið hvort þú hafnar Jesú Kristi eða meðtekur hann sem frelsara þinn og leiðtoga. Ó, meðtaktu hann, viðurkendu hann opin- berlega og fylgdu honum, þá verður fagn- aðarrík heimkoma fyrir þig að lokum. Charles T. Everson. XIX. - Júdas Foringjar, öldungar og fræðimenn Gyð- inga, sóttust rnjög eftir að fá Jesú á sitt vald, en þeir þorðu ekki að taka hann opinberlega, því þeir óttuðust uppreist meðal lýðsins. Þeir leituðu því að ein- hverjum, sem væri fús til að koma honum leynilega á þeirra vald, og þar sem Júdas, einn af hinum tólf lærisveinum var, fundu þeir einmitt þann, sem vildi taka að sér þetta svívirðilega verk. Júdas var að eðli mjög ágjarn, en hann hafði ekki alla tíð verið svo spiltur og óguðlegur, að hann gæti gjört slíkt verk sem þetta. Hann hafði gengið í félags- skap með lærisveinunum. þegar hann sá hinn mikla mannfjölda, sem daglega þyrptist kringum Jesú, hvar sem hann fór. Hann sá, að hinir veiku, höltu og blindu og hinir dauðvona voru lagðir fyrir fætur hans. Þá fanst honum að kenning Krists tæki fram öllu því, er hann hefði nokkurn tíma áður heyrt. Og hann elskaði þenna mikla kennimann, en óskaði þó, að hann breyttist í hegðun og hugarfari, því hon- um geðjaðist ekki að hinni hógværu og látlausu framkomu frelsarans. Jesús rak Júdas ekki frá sér, heldur lét hann fá sæti meðal hinna tólf lærisveina. En Júdas komst aldrei svo langt, að hann yrði sameinaður Kristi. Hann gat ekki losnað við sína veraldlegu metorðagirnd og ágirnd, lastmælgi -og ýmsir aðrir lestir fóru sívaxandi hjá honum. Hann hélt áfram að elska hinn illa anda ágirndarinnar, þangað til að hann var búinn að fá yfirráðin í hjarta hans, og nú var hann kominn svo langt, að hann gat selt herra sinn fyrir þrjátíu silfurpen- inga, það var þrælsverð (2. Mós. 21:28—32). Já, nú gat hann svikið frelsarann með kossi í Getsemane. ) Hann fylgdi Jesú eftir, al'la leið frá grasgarðinum og til þess staðar, sem yfir- heyrslan átti að fara fram. Hann ímynd- aði sér ekki að frelsarinn mundi leyfa Gyðingum að ráða sig af dögum, eins og þeir höfðu þó hótað að gjöra. Hvert augnablik, vonaðist hann eftir að sjá ihann bjarga sér með guðdómlegu valdi. En eftir því sem lengra leið og hann sá að Jesús tók með ró og stillingu móti öllum mótgjörðum, sem honurn voru sýnd- ar, þá greip hann skelfilegur ótti fyrir því, að hann hefði framselt meistara sinn í dauðann. Þegar yfirheyrslunni var næstum lokið, gat Júdas ekki lengur þolað ásakanir hinn- ar vondu samvizku sinnar. Skyndilega tók undir í réttarsalnum af hárri röddu, það fór hrollur um alla er viðstaddir voru og þeir urðu mjög óttaslegnir: “Hann er saklaus! Væg honum, ó, Kaífas! Hann hefir ekki gjört neitt, sem yerðskuldar dauða!” Og Júdas ruddist áfram gegnum hinn forviða mannfjölda. Andlit hans var fölt sem nár, og augnaráðið tryllingslegt, á enni hans voru stórir svitadropar. Hann stökk fram að dómarasætinu og kastaði þeim þrjátíu silfurpeningum, er hann hafði fengið sem borgun fyrir að svíkja herra sinn, niður á gólfið fyrir framan æðsta prestinn. Hann greip í klæði Kaífasar og grát- bændi hann um að láta Jesúm lausan, og fullvissaði hann um, að hann hefði ekkert ilt aðhafst. En Kaífas hratt honum frá sér í reiði og sagði með kaldri fyrirlitningu: “Hvað varðar oss um það? Þú verður sjálfur að sjá fyrir því.” (Matt. 27:4). Þá kastaði Júdas sér niður fyrir fæ.tur frelsarans. Hann viðurkendi, að hann væri sonur Guðs og bað hann um að frelsa sjálfan sig frá óvinunum. Jesús vissi að iðrun Júdasar var ekki einlæg. Þessi falslærisveinn, óttaðist að

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.