Stjarnan - 01.08.1946, Qupperneq 6

Stjarnan - 01.08.1946, Qupperneq 6
62 STJARNAN Lestu þau með nákvæmxi eftirtekt og muntu sjá að þau eiga alstaðar við, á öllum tímum hjá öllum kynslóðum og undir öll- ) um kringumstæðum. Engin synd er fram- in, sem ekki er bönnuð þar. Öllum dygðum er þar haldið fram. Tíu boðorðin er hinn eini lagabálkur, sem Guð sjálfur talaði til manna með eigin raust. Þau ein voru skrifuð með Guðs eigin hendi á steintöfl- ur. 2. Mós. 31:18. Ennfremur skipaði Guð fyrir hvar þau skyldu geymast, í örkinni og hún var sett í hið “allra helgasta” og það var bygt sam- 'kvæmt Guðs eigin fyrirsögn, eftirmynd hins himneska, og örkin var sem táknmynd upp á ihásæti Guðs. Á þennan hátt sýndi hinn Almáttugi að lögmiál hans var grundvallarlög hásætis hans, og eilíf mælisnúra til að sýna hvað er rétt og rangt. Það er endurskin hans guð- dómlegu eiginlegleika og grundvallarlög ríkis hans og stjórnar. Getur nokkrum dottið í hug að afnema eða endurbæta tíu boðorðin? Það væri eins létt að breyta rás sólarinnar gegn um him- inhvolfið eða koll varpa hásæti Guðs. Guð hefir aldrei, og mun aldrei afnema lögmál sitt eða leggja niður stjórn sína. “Verkin hans handa eru sannleiki og réttindi; rétt sýn eru öll hans boðorð, þau eru óbifanleg um aldur og eilífð, gjörð með sannleika og einlægni.” Sálm. 111:7. 8. “Aðal atriði efnisins þegar alt er athug- að verður þetta: Óttastu Guð og haltu hans ' boðorð, því það á hver maður að gjöra.” Préd. 12:13. — R. F. Cottrell Samkvæmt skýrslum til aðalstöðva sambandsstjórnarinnar hafa nærri 2V2 miljón byggingar verið brendar eða eyði- lagðar í Japan meðan á stríðinu stóð; 330,000 af iþeim voru herstöðvar, stjómar- byggingar eða verksmiðjur. Þótt tilgang- urinn væri aðalega að ráðast á slíkar byggingar, þá voru þó nálægt 2 miljónir svokallaðra íbúðarhúsa eyðilögð, eða 15 hundruðustu af heimilum Japana. -f + X-geislarnir hafa nú verið notaðir í sjúkrahúsum í 50 ár. . . . Sönn vinátta Þýzka skáldið Schiller segir frá gam- alli sögu um sanna vináttu. Hún er fra Grikkjum í fornöld. Þegar Grikkir réðu yfir löndunum við Miðjarðarhafið, þá ríkti vondur, grimmur konungur, Dion- ysíus að nafni, yfir nýlendunni Syracuse á Sikiley. Ungur föðurlandsvinur sem hét Moros ásetti sér að losast við harðstjór- ann og gjörði tilraun til að drepa hann en það mistókst. Hann náðist og var dæmdur til dauða. Það átti að krossfesta hann. Nú stóð svo á að systir Moros var að því komin að gifta sig, og hann var hinn eini ættingi hennar í karl legg sem gæti ■gefið hana, án hans gæti ekkert orðið af giftingunni. Hann bað konung um leyfi til að fara heim og vera burtu í þrj á daga, til að gifta systur sína og ráðstafa húsi sínu. Hann lofaði hátíðlega að svo mundi hann koma og taka út hegningu sína. Hann .sagði konungi: “Vinur minn, sem elskar mig býðst til að sitja í fangelsinu í minn stað, svo þú hafir tryggingu fyrir að eg komi aftur.” Konungur, sem fyrir löngu síðan hafði mist alt traust til þess sem væri göfugt og gott í fari manna, hló hæðnislega og svar- aði: “Heldur þú eg sé svo heimskur að trúa því að þú haldir loforð þitt.” Alt 1 einu datt honum í hug að það væri gaman að reyna, og hann gæti skemt sér með því að stríða vini hans. Svo hann sagði: “Þú mátt fara. En mundu það, að ef þú kemur ekki um eða fyrir sólarlag þriðja daginn, þá mun vinur þinn deyja á krossinum í þinn stað.” Moros svaraði: “Eg kem aft- ur.” Svo föðmuðust vinirnir með tárin í augunum og Moros hóf ferð sína, en vinur hans gekk fúslega í fangelsið. Alt gekk vel fyrir Moros á heimleið- inni. Hann leit eftir því sem hann þurfti og kvaddi harmþrungna ástvini síha. Snemma að morgni hins þriðja dags fór hann af stað áleiðis til Syracuse. Til þess að verða sem fljótastur, tók hann styttri leið gegnum eyðimörk, en hann viltist. Sólin var nú komin hátt á loft, hann var uppgefinn og dauðþyrstur. í angist sinni kastaði hann sér niður í sandinn og hróp- aði til Guðs um hjálp, svo hann gæti kom- >

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.