Stjarnan - 01.09.1947, Qupperneq 8
80
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Offíce Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publíshers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjórn ogf afgreiðslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundaj\ Man., Can.
Konur kaupa 69 hundruðustu af öllum
vindlingum sem seldir eru.
♦ + -t-
Ársgjaldið fyrir “Tákn tímanna” sem
prentað er í Shanghai, Kína, kostar 20
þúsund kínverska dollara.
♦ ♦ ♦
Árið 1946 dóu 87.777 menn og 93.723
konur úr krabbameini í Bandaríkjunum.
♦ ♦ ♦
, *
Nafn Franklins D. Roosevelts eða mynd
af honum stendur nú á um 40 frímerkjum
í 10 löndum utan Bandaríkjanna, en að-
eins 8 lönd hafa mynd Georgs Washing-
tons á frímerkjum sínum.
♦ ♦ ♦
William Duncan í Columbia, Suður
Carolína, misti annað eyrað í bílslysi. —
Hann fann eyrað þar sem það lá á jörð-
inni, tók það upp og keyrði til næsta
sjúkrahúss, þar var eyrað saumað á hann
aftur.
♦ ♦ ♦
í stórborgum Bandaríkjanna, þar sem
unglingar gjöra alskonar spellvirki, þá er
það eftirtektarvert að kínversk börn og
unglingar koma sjaldan fyrir réttinn. Það
sýnir að þeim er kent að virða foreldra
sína og hegða sér vel.
♦ ♦ ♦
Hjónaskilnaður í Canada hefir fimm-
faldast síðastliðinn 20 ár. 1926 voru rúm-
lega 9 hjónaskilnaðir fyrir hvert þúsund
giftinga, en 1945 höfðu hjónaskilnaðir
verið 49.6 af þúsundi hverju.
♦ ♦ ♦
Nærri 8 biljón dollarar voru borgaðir
fyrir áfenga drykki í Ameríku árið 1946.
Þessi fjárupphæð hefði nægt til að
byggja miljón heimili, sem mesta þörf var
fyrir, þó hvert þeirra hefði kostað 8000
dollara, segir Mrs. D. L. Colvin, formaður
kristilegs bindindisfélags kvenna. Hún
leiðir athygli að því, að þörf er fyrir 15
miljón ódýr heimili, og mintist um leið
á að ein áfengisframleiðslustofnun hefði
stært sig af því nýlega í auglýsingum sín-
um, að vegna aukinnar framleiðslu, tæki
verksmiðja þeirra nú yfir 70 “city
blocks”.
♦ ♦ ♦
Áhugi Ameríkumanna fyrir því að tala
við hina dauðu, leita frétta af framliðn-
um, kostar þá um 50 miljón dollara á ári,
segir Willard Chevalier, varaforseti
McGraw Hill prentfélagsins.
♦ ♦ ♦
Árið 1946 fluttu loftskipafélög Banda-
ríkjanna 14 miljón farþega yfir 7 biljón
mílur. Þótt nokkur slys kæmu fyrir, þá
reyndist það að flugferðirnar voru hættu
minni en áður. Aðeins einn maður fórst
að meðaltali fyrir hverjar 60 miljón míl-
ur á fluginu.
♦ ♦ ♦
Það er pláss á skipum yfir Atlantshafið
aðeins fyrir einn af tíu af þeim sem biðjá
um far.
♦ ♦ ♦
Frá 1859 til 1941 framleiddu Bandaríkin
63 hundruðustu af allri olíu sem notuð var
í heiminum. Nú er aðeins einn þriðji af
olíubirgðunum í Norður-Ameríku.
♦ ♦ ♦
Brezkir þegnar sem borguðu tekjuskatt
fyrir fjárhagsárið ’45-’46 voru 13. 750.000,
en aðeins 3.450.000 höfðu nógu háar tekjur
til að borga tekjuskatt árið 1936.
♦ ♦ ♦
Appelsínur voru einu sinni notaðar í
Vestur-Indversku eyjunum til að pólera
gólf. Rómverjar í fornöld álitu sítrónur
góðar til að verjast mel.
♦ ♦ ♦
Bushman, gorilla-api, sem vigtar 550
pund, er í Lincoln Park dýragarðinum í
Chicago, sagt er hann sé stærstur af
sinni tegund og verðmætasta skepna sem
finnst í nokkrum dýragarði. Hann er 18
ára gamall.
♦ ♦ ♦
Einstakir hlutir finnast sem ekki hafa
hækkað í verði á þessum árum. Gömul
kona ein kom á járnbrautarlestina í.Roch-
elle, New York og afhenti 10 centa far-
seðil, hann hafði verið stimplaður í sept.
1898. Hann var tekinn gildur, því ekkert
tímatakmark var á honum, og farið frá
Rochelle til Larchmont er ennþá 10 cent.