Stjarnan - 01.09.1948, Síða 1
STJARNAN
SEPTEMBER, 1948 LUNDAR, MANITOBA
Trúði Jesús á himnaríki?
Stundum mætum’ vér fólki sem ekki seg-
ist trúa að himnaríki sé til. En Biblían
talar um himnaríki og Jesús talaði oft um
himnaríki og hví skyldi eg þá ekki trúa að
það sé verulegleiki. Fyrsta setningin í
drottinlegri bæn er: “Faðir vor, þú sem ert
á himnum”. ,Matt. 6:9. Svo það er ekkert
efamál að Jesús vissi um himnaríki og
lét aldrei neinn efa í ljósi því viðvíkjandi.
Hann kendi oss að biðja að Guðs vilji yrði
á jörðu eins og á himni. Englarnir eru á
himnum og þeir sjá auglit Guðs. Matt.
18:10. Jesús sagði lærisveinum sínum að
laun þeirra mundu verða mikil á himnum
og hann fullvissaði þá um að nöfn þeirra
væru þegar skrifuð þar. Lúk. 6:23 10:20.
Undir ýmsum kringumstæðum er nauð-
synlegt að nafn vort sé skrifað niður hér
á jörðinni, en það er miklu meira áríðandi
að nöfn vor séu rituð á himnum. Því ef
þau eru skráð þar meinar það að vér erum
Guðs börn og eftirfylgjendur Krists.
Það er algjörlega á voru valdi hvort
nöfn vor eru skrifuð á himnum eða ekki.
Hefir þú gefið inn nafn þitt með því að
játa' trú þína á Guð og son hans Jesúm
Krist?
í Lúkas 15:7 segir Jesús oss meira um
himininn. Hann segir þar sé gleði yfir
syndurum sem bæti ráð sitt. Það sýnir
náið samband milli himins og jarðar, fyrst
viðburðir á jörðu geta orsakað gleði á
himnum.
Hugsið yður, það er gleði á himnum yf-
ir einum syndara sem iðrast. Líf, ákvörðun
og framtíð eins mans er mikils metin á
himni. Með öðrum orðum, himininn veitir
nákvæma eftirtekt því sem vér gjörum.
Það gleður íbúa himinsins þegar vér iðr-
umst synda vorra og biðjum fyrirgefning-
ar.
Jesús sagði einu sinni frá að hann hefði
komið niður frá himni. Jóh. 3:13. Himin-
inn var heimili hans. Hann kallaði það
“hús föður síns.’- Hann sagði lærisveinum
sínum að hann mundi uppstíga til himins
hvar hann áður var, svo mundi hann koma
aftur og taka þá til sín “svo þér séuð þar
sem eg er.” Jóh. 6:62 og 14:1-3.
Þegar Jesús var í garðinum Getsemane,
rétt áður en hann gaf sig í hendur óvin-
anna “kom engill frá himni sem styrkti
hann.” Lúk. 22:43.
Eftir að Jesús hafði dáið og risið upp
frá dauðum þá sté hann upp til himins.
Öll frásögn Nýja Testamentisins um líf
Krists snýst um þann verulegleika að
hann kom frá himni og fór aftur til himins.
Hann talar aftur og aftur um himininn.
Hann var honum verulegur, hann hafði
verið þar.
Jesús hvetur oss til að safna fjársjóðum
á himni og varar oss við að vér ekki fyrir-
lltum smælingjana. Því “englar þeirra á
himnum sjá jafnan auglit míns himneska
föður.” Matt. 6:20, og 18:10.
Einu sinni sagði Jesús að hann hefði séð
“satan falla frá himni eins og eldingu.”
Lúk. 10:18. Jesús sagði að sér væri gefið
alt vald á himni og jörðu, og að hann hefði
komið niður frá himni, ekki til að gjöra
sinn vilja heldur vilja föðursins sem sendi
hann. Jóh. 6:38. Hann sagði að enginn vissi
daginn eða stundina sem hann kæmi aftur
“ekki englar á himnum nema faðirinn
einn.” Matt. 24:36.
Hví skyldi eg ekki trúa á himnaríki. Eg
er kristinn og Jesús frelsari minn trúði á
himnaríki. Sá sem hafnar trú á himnaríki
hafnar hinni blessuðu von. Kenning Krists
og trú hans á himnaríki er skýr og einföld,
sá sem hafnar þeirri trú ráfar í nætur-
myrkri vonleysisins. Guði sé lof að margir
hafa öruggga sterka von og trú á himna-