Stjarnan - 01.09.1948, Síða 8

Stjarnan - 01.09.1948, Síða 8
72 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. No papers are sent out except on paid subscription Ritstjðm og afgreiðslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man„ Can. verður unt að nota það sterkasta afl sem þessi heimur á til — það afl er siðferðis styrkur.” Ef menn gæfu sig algerlega Guði á vald þá yrði mikil breyting til hins betra. Eins og afturhvarf einstaklingsins lyftir honum á miklu hæra stig hér í lífi, göfgar allar hugsanir hans og öll hans verk, þannig er það ekki, síður með heildina. Þegar fólkið í heild sinni snýr sér til guðs þá hækkar það og lifir göfugra lífi þá er virðing borin fyrir dygðum en glæpir fyrirlitnir. Poli- tísk svik yrðu útlæg og als konar spilling. Ef heilar þjóðir sneru, sér þannig til Guðs mundu þær fyllast heilögum eldmóði og hinar stoltustu þjóðir eða afskektustu keppast hver við aðra í sjálfsafneitun og göfugum verkum á svo háu stigi að þær sjálfar undruðust og frelsuðu ef til vill aðr- ar þjóðir frá glötun. Því miður er þesskonar endurfæðing þjóða á andlegan hátt ekki líkleg. Fáir þeirra sem prédika um hana trúa því verulega að hún muni eiga sér stað. 'Það er að vísu satt að sumt fólk snýr sér til Guðs og gefur sig honum á vald. Með því náðarboðskapurinn er kunngjörð- ur hverri þjóð kynkvísl tungumáli og fólki, þá verða þeir margir hér og þar sem með- taka hann og snúa sér til Drottins. Hjarta- hreinir hlusta og hlýða en þeir endurfæð- ast einn og einn í senn. Það væri óviturlegt að vænta þess að gerbreyting yrið svo víðtæk að hún nægði til að breyta núverandi ósamræmi eða koma því til vegar að hægt væri að stofna alþjóðastjórn, þá breyting sem næði' yfir allan heim breyting sem útlægði hið illa um afdur og æfi og leiddi til alþjóða friðar - og réttlætls, hún yrði að styðjast við þá guðlegu meðalgöngu, sem svo mikið hefir verið spáð um í Biblíunni, og miklu lofað í sambandi við — þegar Kristur kemur aftur í allri sinni dýrð. Þá loksins myndast alþjóðastjórn, því veldi hans mun, ná frá hafi til hafs, og frá fljótinu til endimarka jarðarinnar. Sak. 9:10. Einnig á þeim degi segja spádómarnir að “ríki vald og máttur allra konungsríkja, sem undir himninum eru mun gefið verða heilögum lýð hins hæðsta. Ríki hans mun verða eilíft ríki og öll veldi munu þjóna því og hlýða”. Dan. 7:27. “Og á hans herðum skal höfðingjadóm- urinn hvíla. Nafn hans kal kallað Undra- ráðgjafi, guðhetja, eilífðar faðir, friðar höfðingi. Mikill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn engan enda taka á há- sæti Davíðs og í konungsríki hans til þess að reisa það og efla með réttvísi og réttlæti héðan í frá og að eilífu.” Jes. 9:6.7. Nú ættum vér að vænta þessa dýrðlega ríkis með endurnýjaðri von og gleði og það því fremur sem vér sjáum að dagurinn nálgast og látum oss ekki slá á frest undir- búningi vorum, því það er orðið framorðið. Tíminn er svo sluitur. A. S. Maxwell Smávegis Meðlimir mótmælenda safnaða í Italíu hafa fjölgað um átta hundruðustu síðan stríðinu linti. + + + Nú eru steinsteypu hús bygð á eyjunni Guam í vestur Kyrrahafinu handa sjóher- mönnum Bandaríkjanna og fjölskyldum þeirra. Gjört er ráð fyrir að þessi hús standi hvirfilbylji, jarðskjálfta og bruna, ög nagdýr eða maurar geti ekki eyðilagt þau. + + + Samkvæmt stjórnarskýrslum eru gjafa pakkar frá Ameríku til almennings í Þýskalandi mánaðarlega sendir um 10 miljón dollara virði. Frá fyrsta júní, 1946 til fyrsta maí, 1948 var sent um 150,000,000 dollar virði í matvöru fatnaði, meðulum og öðrum nauðsynjum. Þrír fjórðu hlutar af þessum sendingum veru til þess fólks sem er undir umsjón Bandaríkjanna og Breta. + + + Næst þegar þú heimsækir dýragarð þá minstu þess hve mikils virði skepnurnar eru. Nýfæddur fíll frá Suður Afríku er 4,000 dollara virði. Fyrir stríðið kostaði Orangutan api 3,000 dollara. Tveir gíraffar 7,000 dollara.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.