Stjarnan - 01.10.1948, Side 1
STJARNAN
OKTÓBER, 1948 LUNDAR, MANITOBA
Hið eina nauðsynlega
Hlýðni sú sem Guð krefst af mönnum
leiðir þá til að lifa réttlátu lífi og veitir
þeim andlegan auð. Heimspekin hefir ekk-
ert slíkt að bjóða. Það var Jesús, Guðs sonur
sem opinberaði þennan sannleika fyrir
heiminum, að leyndardómurinn við hinn
blessunarríka vilja Föðursins innifelst í
orðinu hlýðni.
í “Hugleiðingum fyrir hvers dags líf,”
eftir M. D. Babcock stendur þessi grein:
“Menn segja þegar þeir þekki þá muni
þeir gjöra, en Jesús segir: Sá sem gjörir
mun þekkja. Jesús hefir aldrei lofað að
opinbera sig fyrir þeim sem dreyma eða
kappræða, heldur fyrir þeim sem halda
hans boðorð. Sæði sannleikans festir rætur
í jarðvegi hlýðninnar. Orð Krists í hjarta
hins óhlýðna eru engu frjósamari heldur
en hveitikornin vafin innan í líkklæði upp-
þornaðs mannslíkama. Til þess að þekkja
kraftin í kenningum Krists verðum vér
með ákveðnum ásetningi að gjöra vilja
hans. Siðferðisleg óhlýðni er andlegt myrk-
ur, en að gefa honum vilja vorn til þess
trúlega að hlýða hans boðum opnar hjörtu
vor og hugskot fyrir ljósi sannleikans."
Ákveðin hlýðni við Guðs vilja er helsta
nauðsyn lífsins. Þekkingin ein nægir ekki
til að veita þann frið og öruggleik sem
mannshjartað þráir “Fullkomnum inn-
rætisins er ekki innifalin í þekkingu, eða
viðurkenningu þess hvað rétt sé, heldur 1
hlýðni.’ Guðs orð bendir skýrt á að hlýðni
er meira áríðandi heldur en þekking. “Ef
þér skiljið þetta þá eruð þér sælir ef þér
breytið eftir því,” sagði Jesús.
Það er fjöldi manna og kvenna sem fús-
lega kannast við grundvallar atriði kenn-
inga Krists, en breyta als ekki eftir þeim,
heldur lifa eins og kristindómurinn væri
aðeins þekkingar atriði. Þeir gleyma því
að menn geta vitað hvað rétt er þó þeir
lifi í synd. “Djöflarnir trúa líka og skelf-
ast”. Þó þeir þekki Guðs orð veitir það
þeim enga von og engan frið. Menn geta
haft talsverða þekkingu á Biblíunni þótt
kenningar hennar ummyndi ekki lífernið.
Á þann hátt svifta menn sjálfa sig hinni
dýrmætustu blessun.
Sumir menn fylgja sínum eigin vilja,
aðrir láta leiðast af Guðs vilja eins og hann
er opinberaður í orði hans. Til eru þeir
sem viðurkenna reglur réttlætisins, en það
er aðeins játning varanna og nær ekki til
lífernis þeirra. Aðrir leitast við að gjöra
Guðs vilja en þekking þeirra er takmörkuð,
en þeir eru af öllu hjarta með Guði til að
gjöra hans vilja og eru því sannkristnir
menn.
Kærleikurinn veldur því að hlýðni verð-
ur gleðiefni. Jesús hafði löngun til að gjöra
vilja Föðursins, það var hans yndi. í byrj-
un starfs hans lýsti hann því yfir að hinn
minsti “bókstafur eða titill lögmálsins”
mundi ekki undir lok líða heldur skyldi
sýnd fullkomnari hlýðni með því að fylgja
anda þess, fremur en öllum þeim ytri sið-
um, sem Gyðingar höfðu bætt við frá sjálf-
um sér. Réttlæti lögmálsins átti að uppfyll-
ast hjá lærisveinum hans, “sem ekki ganga
eftir holdinu heldur eftir andanum.”
Kærleikurinn gjörir hlýðnina sjálfsagða
og eðlilega. Jesús sagði: “Ef þér elskið mig
þá haldið þér mín boðorð”. “Sá sem hefir
mín boðorð og heldur þau hann er sá sem
elskar mig”: “Sá sem elskar mig hann mun
varðveita mitt orð”. Þannig lagði Jesús
áherslu á hið allra nauðsynlegasta, hlýðn-
ina sem ávöxt kærleikans.
Lögmálið er erfitt og óvelkomið fyrir
þann sem ekki elskar Guð. Á heimili því
hvar kærleikurinn ríkir er reglum heimili-
sins fúslega hlýtt.
Samfélag vort við Guðs son breytir af-