Stjarnan - 01.10.1948, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.10.1948, Qupperneq 3
STJARNAN 75 um skýring á leyndardómi draumsins, því líf hans var einnig í hættu. Guð svaraði bæn Daníels og sýndi honum bæði draum- inn og þýðingu hans. Nú dyrfðist hann að biðja um áheyrn hjá konungi. Það er auðvelt að ímynda sér gleðitilfinningar konungs þegar hann loks gat endurkallað draum sinn. Þetta var undra vert. Óþektur unglingur, fangi frá Jerúsalem að koma fram sem spekingur og ráða fram úr því sem hinir vitrustu menn landsins höfðu engan skilning á. í raun og veru þar það ekki þessi ungl- ingur sem réði gátuna. Það var Guð, hann átti hér hlut að máli í sambandi við stór- kostlegt og undravert augnamið, eins og Daníel sjálfur viðurkendi er hann sa.gði við konunginn: “En sá Guð er á himnum sem opinberar leynda hluti, og hann hefir kunngert Nebúkadnezar konungi það er verða mun á hinum síðustu tímum.” Dan. 2:28. Það er auðséð að leyndarmálið um líkn- eskið var leyndarmál framtíðarinnar; efni þess var það: “hvað verða mundi eftir þetta” vers. 29. Það var skýring sögunnar um ókomnar aldir, hverfulleik þjóðanna og stjórnarvaldanna þangað til um síðir að Guð tæki í taumana og stjórnaði sjálfur. Þegar hinn ungi maður hafði sagt draum- inn byrjaði hann að gefa ráðningu hans. Konungur hallaði sér áfram hlustaði ná- kvæmlega og horfði með opnum undrandi augum á Daníel til að missa ekki eitt einasta orð af þessari undursamlegu opin- berun. Daníel byrjaði mál sitt á þessa leið: “þú konungur, yfirkonungur konunganna, sem Guð himnanna hefir gefið valdið, ríkið, máttinn og tignina; þú sem hann hefir mennina á vald selt, hvar sem þeir búa, dýr merkurinnar og fugla himinsins, og sett þig, dratnara yfir því öllu, þú ert gull- höfuðið”. Konungur var ánægður yfir þessum mikla heiðri; það hefðu allir verið. En það var eins og skuggi liði yfir andlit hans þeg- ar Daníel hélt áfram á þessa leið: “En eftir þig mun hefjast annað konungsríki, minni háttar en þitt, og þriðja konungsríkið úr eiri, sem drotna mun yfir allri veröldu. Þá mun hefjast fjórða ríkið sterkt sem járn, því að járnið sundurbrýtur og mölvar alt. Og eins og járnið molar sundur eins mun það sundurbrjóta og mola öll hin ríkin.”' Svo Babýlon átti þá ekki að standa að eilífu. Annað konungsríki átti að koma á eftir henni, og svo annað og enn annað, als fjögur. Þau áttu að verða hvert öðru lélegra, frá gulli til silfurs, frá silfri til eirs, frá eiri til járns, en eftir því sem efnið varð lélagra átti það að verða hlutfallslega sterkapa. En hvað átti að segja um hina einkennilegu blöndun járns og leirs í fótun um og tánum? Daníel tók aftur til máls á þessa leið: “En þar er þú sást fæturna og tærnar að sumt var af pottara leiri, sumt af járni, það merkir að ríkið mun verða skift, þó mun það nokkru í sér halda af hörku járns ins, þar sem þú sást járnið blandað saman við deigulmóinn. En þar er tærnar á fótun- um voru sums kostar af járni og sums kost- ar af leiri, þá mun það ríki að nokkru leiti verða öflugt og að nokkru leiti veikt. Og þar er þú sást járnið blandað saroan við deigulmóinn þá munu þeir með kvon- föngum samanblandast og þó ekki sam- þýðast hvorir öðrum, eins og járnið sam- lagar sig ekki við leirinn.” Þetta voru und- arleg orð. Nebúkadnezar hlýtur að hafa skilið að þau boðuðu einhvers konar óróa í landinu. En hvað á þessi leyndardóms- fulli steinn að þýða sem brotnaði eða losn- aði án þess að nokkur mannshönd snerti hann? Steinninn sem féll á líkneskið og mölbraut það. Hvað átti *alt þetta að tákna. Daníel hélt áfram: "En á dögum þessara konunga, mun Guð himnanna hefja ríki, sem aldrei skal á grunn ganga, og það ríki skal engri annari þjóð í hendur fengið verða, það mun knosa og að engu gjöra öll önnur ríki, en sjálft mun það standa að eilífu. Þar sem þú sást að steinn nokkur losnaði úr fjállinu án þess að nokkur mannshönd kæmi við hann, og mölvaði járnið, eirinn leirinn, silfrið og gullið, Mik- ill Guð hefir tilkynt konunginum hvað hér eftir muni verða. Draumurinn er sannur og þýðing hans áreiðanleg”. Alt í einu birtust konunginum og spá- manninum myndir als þess, sem átti að ske í framtíðinni og þeir störðu á þær. með hinni mestu undrun. Þeir sáu að þrjú stór- veldi mundu koma hvert eftir annað á eftir gullna stórveldinu sem yfir stóð.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.