Stjarnan - 01.10.1948, Qupperneq 7
STJARNAN
79
Afturhvarf
andatrúarmannsins
Sagan af bróður Bique á eyjunni Guade-
oupe sýnir kraft fagnaðar erindisins. Menn
af öllum stéttum, bæði ríkir og fátækir
leituðu til Bique þegar aðrir andatrúar-
menn gátu ekki svarað spurningum þeirra.
Hann virtist hafa vald yfir fleiri öndum
og geta kallað þá fram með nafni hvern
eftir annan. Það leit út eins og hann gæti
altaf mætt kröfum viðskiftamanna sinna.
Mr. Bique hafði verið andatrúarmaður í
40 ár. Einu sinni greip hann sú löngun að
standa framar öllum andatrúarmönnum.
Hann vildi fá að komast í samband við
hinn æðsta anda, sem hefði skapað alla
hluti. Andinn sem hann nú talaði við varð
þögull og fór hjá sér, en Bique skipaði hon-
um að hlýða. í örvæntingar róm sagði nú
andinn: “Vinur minn, þú setur mig í
vandræði. Það sem þú heimtar í dag er
ómögulegt. Ef -eg reyndi að fullnægja
þessari ósk þinni þá væri úti um okkur
báða”, þá sagði Bique við andann: “þú ert
djöfull, þú hefir svikið mig í langan tíma.
Nú hefir komist upp um þig. Þú veist eg
hef altaf skipað þér en þú skalt ekki skipa
mér.”
Upp frá þessu fékk Bique meiri og meiri
löngun til.að þekkja hinn sanna Guð. Einn
dag gekk hann fram hjá litlu bænahúsi
þar sem hann heyrði fólkið vera að tala
við Guð. Hann staðnæmdist snöggvast fyrir
utan húsið gekk svo inn og settist niður.
Guðs orð, sem hann heyrði lesið þar snerti
hjarta hans. Er hann kom heim bað hann
Jesúm að senda sér bók, sem gæti leitt
hann á sannleikans veg. Frá því hann var
17 ára hafði þessi maður þjónað satan, en
nú bað hann til Guðs í fleiri daga.
Svo kom einhver til hans og gaf honum
bókina: Ljós spádómanna fyrir vora daga.
Hann' las hana með mestu eftirtekt. Sér-
staklega var hann hrifinn af skýringunum
yfir Dan. 2 og 7 kapítula. Hann sannfærðist
um að þetta var sannleikur og kom nú til
kirkju vorrar. Hann gaf Guði hjarta
sitt. Svo var hann eitt ár í Biblíuskóla og
hvíldardagaskóla til að búa sig undir skírn.
Daginn sem hann var skírður kom hann
uieð allar andatrúarbækur sínar og annað
sem tilheyrði svarta skóla. Hann bar þetta
ofan að sjáfarströndinni þar sem skírnin
átti að fara fram. Hann kom líka með
þuran elidvið sem hann hlóð upp, lét bæk-
urnar þar ofan á og brendi altsaman í við-
urvist 12 hundruð manna sem viðstaddir
voru. Að því loknu var hann skírður ásamt
ellefu öðrum. WESLEY AMUNDSEN
Gagngjör breyting
Það var þung reynsla fyrir Aðventista
söfnuðinn í Japan þegar stjórnin lokaði
kirkjum þeirra á stríðstímanum. Verst af
öllu var þó að 42 af safnaðastjórum og leik-
mönnum voru settir í fangelsi. I Tokyo
héraðinu var yfirmaður lögreglunnar lát-
inn kynna sér safnaðastarf vort. Þannig
kyntist hann boðskapnum um endurkomu
Krists til að stofna sitt eilífa ríki, en það
var alveg gagnstætt skoðun Japana um
að konungsætt þeirra mundi eilíflega sitja
að völdum. Nú er þessi lögreglumaður stöð-
ugt á samkomum vorum í Tokyo, og dóttir
hans vinnur á sjúkrahúsi voru.
Einn af starfsmönnum vorum Tagaki,
gefur nú tvo Biblíulestra í fangelsinu, þar
sem hann var fangi, annan fyrir nokkra af
eftirlitsmönnum fangelsisins, enn hinn fyr-
ir fanga sem hann kyntist meðan hann var
þar. Annar starfsmaður, Hasegawa mætti
svipaðri reynslu. Hann var ákærður fyrir
trú sína, ákærandinn gjörði alt sem í hans
valdi stóð til að fá dóm feldan yfir honum
svo hann yrði settur í fangelsi. Seinna
þegar Hasagawa hafði fengið frelsi sitt þá
var ákærandi hans meðal hinna fyrstu sem
kom að heimsækja hann. Þessi maður hafði
orðið hrifinn af framkomu bróður vors
fyrir réttinum og hvernig hann svaraði
spurningum þeim sem fyrir hann voru
lagðar þegar hann var yfirheyrður. Svo
þessi fyriverandi ákærandi hans kom nú
til að fá meiri þekkingu á boðskap þeim,
sem hann fyrst hafði kynst í réttarsalnum.
Nú fær hann reglubundna tilsögn í
sannindum Biblíunnar.
W. P. BRADLEY
Sagt er að svo miklar saltnámur séu í
Nýju Mexico, að þær mundu nægja til að
framleiða salt handa öllum íbúum Vestur-
heims um þúsundir ára, ef notkun salts
væri hin sama og nú er.