Stjarnan - 01.10.1948, Side 8
80
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
No papers are sent out- except on paid
subscription
Ritstjórn og afgrei'ðslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar, Man„ Can.
i Katólsku landi
Presturinn er að tala við litla stúlku og
skipar henni að vera viðstödd trúarbragða-
kenslu. Litla stúlkan segist ekki geta það
því faðir sinn banni það.
“Þú átt að hlýða mér en ekki föður þín-
um,” segir prestur.
“Herra minn, Biblían segir: Heiðra föður
þinn og móður.”
“Þú hefir engan rétt til að lesa Biblíuna,”
svaraði presturinn.
“En herra minn, Jesús segir: Rannsakið
Ritningarnar.”
“Þetta var sagt við Gyðinga en ekki við
börn,” segir prestur aftur. “Þú skilur ekki
þetta.”
“En Páll sagði við Tímóteus: “Frá barn-
æsku er þér kunnug Heilög Ritning.”
“Tímóteus var mentaður til að verða
biskup og yfirmenn kirkjunnar kendu hon-
um”.
“Nei herra minn. Móðir hans og amma
kendu honum.”
Nú gramdist presti svo hann sagði: “Þú
ert nógu kunnug Biblíunni til að geta
^eitrað heilt prestakall. C.O.G.
Einu sinni kom maður inn í blómabúð
og keypti blómvönd og sagði: “Þetta eru
uppáhaldsblómin ko'nunnar minnar”.
Stúlkan sem seldi blómin lét í ljósi sam-
hygð sína yfir veikindum konu hans.
“Veikindum,” sagði maðurinn undrandi.
“Konan mín er eins frísk og þú.” Auðvitað
afsakaði stúlkan misskilning sinn og
sagði: “Fyrirgefðu mér, en satt að segja
þá bíða ménnirnir oftastnær þangað til
konan verður veik, eða er dáin, áður en
þeir kaupa blóm handa henni.”
L. & H.
+ ■ + +
Allir erfiðleikar vorir í heiminum
spretta af því að vér leyfum sjálfum oss að
fótumtroða hina gullnu reglu, að elska ná-
ungann eins og sjálfan sig, þó vér heimt-
um af öðrum að þeir fylgi henni.
Mikið af því sem gengur undir nafni
kristindómsins er ekki fagnaðar erindi
Krists og getur því ekki frelsað þá sem
glataðir eru.
Velgengni kemur ekki til manna á silf-
urdiski heldur gegn um staðfestu við erfiði
og áreynslu.
LIBERTY
Smávegis
Fjögra ára gamall drengur í Atlanta
Georgia gleypti nagla. Ásamt fæðu sem
honum var gefin var hann látinn renna
niður lítilli ögn af seglustáli sem var fest
við endann á taug. Eftir 6 klukkustundir
sagði drengurinn að hann heyrið hljóð
niðri í sér. Læknirarnir drógu nú taugina
upp mjög gætilega og upp kom segulstálið
með naglann hangandi neðan í því.
+ + +
Meir en þriðjungur íbúa heimsins skilja
ensku.
+ + +
Það eru aðeins fáeinar mílur milli hæsta
og lægsta blettsins í Ameríku. Fjallið
Whitney er 14,500 fet yfir sjáfarmál, og
Death Valley, dauða dalurinn er 280 fet
fyrir neðan sjáfarmál.
+ + +
Yfir 60 miljónir manna í Bandaríkjunum
tilheyra engri kirkju. Protestant Episcopal
kirkjan ætlar að gjöra tilraun til að lag-
færa þetta. Hún setur auglýsingar í frétta-
blöð og tímarit, auglýsingar gegn um víð-
varpið, gegn um hreifimyndir og á götun-
um.
+ + +
Verkamenn í bifreiða verksmiðjum eru
40 hundruðustu fleiri heldur en fyrir stríð-
ið. Vinnulaun þeirra á viku hverri eru um
44 miljónir dollara eða helmingi meira en
árið 1941.
+ + +
Þegar Alaska kemur til að teljast eitt
af ríkjum bandaríkjanna þá sleppir innan-
ríkisstjórnin umráðum yfir 22 miljón ekr-
um af landi sem einstaklingar fá tækifæri
til að kaupa.