Stjarnan - 01.04.1949, Page 1
STJARNAN
APRÍL, 1949 — Innsöfnunarblaðið LUNDAR, MANITOBA
Alheims trúboðstarf
Sjöunda dags Aðventistar taka hjartan-
lega og með miklum áhuga á móti skipun
Krists að fara út um allan heim og kunn-
gjöra gleðiboðskapinn allri skepnu. Áform
vort sem einstaklingar, og sem söfðnuður
trúaðra manna er, að framkvæma þessa
skipun. Vér helgum þessu starfi sjálfa oss
tíma vorn, krafta, hæfilegleika og fé.
Um leið og vér prédikum fagnaðar
erindið notum vér stórfé til að útvega
fæði og klæðnað fyrir þá sem líða hungur
og kulda 1 ýmsum löndum heimsins. Söfn-
uðir vorir hafa líknarfélög, sem annast um
að útvega fatnað, mat og peninga fyrir þá
sem líða skort. Vér æfum lækna og hjúkr-
unarfólk og sendum það út til að lina
þjáningar fólks svo þúsundum skiftir þar
sem þörfin er mest fyrir hjálp.
Vér höfum starf í öllum löndum heims-
ins. Frá Hammerfest nyrstu borg heimsins
til Punta Arenas syðstu borgarinnar, og á
öllum meginlöndum og helstu eyjum
heimsins.
Tækifærin til að starfa hafa margfald-
ast síðan stríðinu linti. Aldrei hefir þörfin
verið meiri en nú eða beiðnin um hjálp
meira knýjandi. Nú eru bestu tækifæri til
að flytja fagnaðar erindið.
Á seinni árum hafa fundist nýir frum-
þjóðaflokkar á miðbiki Nýju Guineu.
Þetta fólk er farið að veita góða eftirtekt
þegar það á kost á að heyra gleðiboðskap-
inn. Þeir eru farnir að biðja um kennara og
prédikara til að starfa meðal þeirra. Ný-
lega höfum vér sent 8 fjölskyldur auk
þeirra sem fyrir voru til að starfa meðal
þeirra og þar að auki 70 innlenda kennara.
En þetta nægir ekki. Vér þurfum hundruð
fleiri guðelskandi starfsmenn til að senda
þessu fjölmenna fólki.
Það er sagt að síðan á dögum postul-
anna hafi, ekki verið eins gott tækifæri og
nú fyrir kristilegt starf í Japan. Aldrei
fyr hafa Japanar haft svo mikinn áhuga
fyrir að heyra gleðiboðskapinn. Vér
höfum útlenda trúboða þar og einnig
fjölda innlendra starfsmanna, sem
vinna við heilbrigðisstarf, uppeldisstofn-
anir og prentsmiðjur þar sem kristileg rit
eru prentuð. En vegna þess hvað fólkið er
áhugasamt og tækifærin góð, þá þurfum
vér að senda miklu fleiri menn og meira fé
til starfsins, í þessu landi sólaruppkomunn-
ar.
Frá Indlandi kemur innileg beiðni um
hjálp til að flýta boðskapnum. Þar er nýr
dagur runninn upp. Menn eru að yfirgefa
hjátrú og gamlar venjur, en snúa sér til
Krists. Hið sama á sér stað í Kína.
Alt meginland Afríku er í svipuðu ást-
andi. Fleiri starfsmenn, meira verkefni er
nauðsynlegt til að styrkja starfið og hjálpa
fjöldanum sem kemur til að taka á móti
fagnaðar erindinu.
Frá Norður og Suður Ameríku, Indon-
esíu, Filippaeyjunum, Indo Kína, Siam,
Burma, frá allri Evrópu, og fjölda eyja í
Atlantshafinu, Kyrrahafinu og Indlands-
hafi koma bænaskrár um að flýta sigurför
fagnaðar erindisins.
Til að mæta þörfum og nota tækifæri
yfirstandandi tíma fórna Sjöunda dags
Aðventistar sjálfum sér og öllu sínu til
Guðs til að hjálpa fólki að undirbúa sig
fyrir hið dýrðlega komandi ríki Drottins
vors og frelsara Jesú Krists. Vér notum
líka þetta tækifæri til að þakka öllum
fjölda vina vorra, sem ásamt oss leggja
fram af fé sínu til að styðja þetta alheims
trúboðstarf.
J. L. McELHANY