Stjarnan - 01.04.1949, Page 8
32
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjðrn og afgreiðslu arinast:
MISS S. JOHNSON, Lundar, Man., Can.
því og einn þeirra sagði það væri víst
ekkert pardusdýr inni, þetta væri alt
ímyndun. “Lánið mér ljós og ég skal sýna
ykkur að það er ekkert pardusdýr inni.”
Honum var fengið ljós. Hann gekk öruggur
inn og leit til hægri handar. En áður en
hann gekk annað fet var ráðist á hann frá
vinstri hlið. Með skelfingarópi fór maður-
inn afturábak út um dyrnar aftur og
pardusdýrið hékk á honum. Báðir flæktust
í netinu og þeir sem næst stóðu réðust á
pardusdýrið með bareflum sínum og stein-
um. Sum höggin lentu á manninum, en
það var vonlaust um líf hans hvort sem var
því mjöðm hans og hlið var upprifin og
étin. Loks tókst að drepa pardusdýrið og
rétt í þessu kom kennarinn út frá því, sem
fyrir hann var í sannleika “dauðans
skuggadalur.”
“Kennarinn, kennarinn er lifandi,”
æptu þorsbúar. Sumir þeirra föðmuðu
hann að sér aðrir tóku í hönd hans.
“Þótt ég gangi gegn um dauðans
skuggadal, skal ég enga ógæfu hræðast
því þú ert með mér.” Þessi orð sem skrifuð
voru fyrir mörgum öldum síðan eru jafn
veruleg fyrir Guðs börn enn í dag. Minn-
umst þess með þakklátum hjörtum að Guð,
Veist þú að Sjöunda dags Aðventistar
starfa í 226 löndum?
Hafa 167 lækningastofnanir?
Starfrækja 290 háskóla og miðskóla
með 28,240 nemendum?
Sendu út 359 nýja trúboða, lækna,
hjúkrunarkonur, kennara og prédikara
síðastliðið ár?
Sendu burtu yfir 3,000,000 pund af fatn-
aði. Meir en 10,000,000 dollara virði af mat
og fatnaði síðan stríðið hætti?
Hafa sent þess háttar hjálp til 40 landa
og að þeir munu nota 14,000,000 dollara til
alheims starfsins yfirstandandi ár?
hinn alvitri og almáttugi eilífðarinnar
faðir er vor Guð og Faðir, vor verndari og
vort athvarf. Ó að þeir sem finna sig varn-
arlausa gætu öðlast þann frið og öryggi
sem þessi þekking ,veitir Guðs börnum.
Afríka kvelst af hjátrú og hræðslu. Frið-
ur er náðargjöf Guðs kæleika. Þú, sem nýt-
ur þessa friðar, vilt þú ekki styðja starfið
sem vinnur að því að flytja fagnaðarboð-
skap friðarins til þeirra sem í myrkrunum
sitja? Sierra Leone og mörg önnur pláss
biðja, vona og bíða eftir að heyra gleði-
boðskapinn. MRS A. M. HOWARD
Kona skólastjórans í
Bo, Sierra Leone.
-------------*-------------
Hvað peningar þínir geta gjört í dag
5,000 dollarar geta keypt uppskurðar-
verkfæri og allan annann umbúnað sem
þarf fyrir uppskurðarstofu fyrir sjúkra-
húsið í Rio de Janeiro í Brazilíu.
2,500 dollarar nægja til að kaupa meðul
fyrir skipaflotann á Amazon fljótinu, sem
flytur læknishjálp til þúsunda manna, sem
þjást af hitaveiki og öðrum sjúkdómum
í héraðinu fram með fljótinu.
1,000 dollarar geta veitt 100 holdsveik-
um mönnum læknishjálp á holdsveikra-
hælinu í Mið-Afríku.
500 dollarar geta veitt tveimur nemend-
um mentun á unglingaskólanum í Beirut
á Sýrlandi.
50 dollarar nægja til að kaupa skó
fyrir 10 kristindóms starfendur í Austur
Evrópu.
18 dollarar og 80 cent halda uppi líkn-
arstarfi voru út um heiminn í eina mínútu.
Guð elskar glaðan gjafara.
v ------------*-------------
Jesús er við föðursins hægri hönd og
biður fyrir okkur. Fyrir hans verðskuldun
stendur oss til boða að verða synir og dæt-
ur hins lifanda Guðs, hans sem er konung-
ur konunganna og Drottinn drotnanna.
Fyrir Jesú forþénustu höfum vér þetta
dýrmæta loforð: “Hvers þér biðjið Föð-
urinn í mínu nafni, það mun ég veita, svo
Faðirinn vegsamist fyrir Soninn.”
Vinir mínir, notið ykkur tilboð Drottins
og einkaréttindi ykkar. S.J.