Stjarnan - 01.07.1951, Blaðsíða 5

Stjarnan - 01.07.1951, Blaðsíða 5
STJARNAN 53 skulu allir undir lok líða, segir Drottinn“. Jes. 66:16.—17. 6. Alvarleg aðvörun er gefin gegn áfengi. „Vínið er spottari, sterkur dykkur glaumsamur, hver sá sem drukkinn reikar er óvitur“. „Hver æjar? Hver kveinar? flver á í deilum? Hver kvartar? Hver fær sár að þarflausu? Hver rauð augu? Þeir sem sitja við vín fram á næt- ur, þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum. Horf þú ekki á vínið hve rautt það er, hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður. Að síðustu bítur það sem höggormur og spýtir eitri sem naðra“. Orðskv. 20:1. og 23:29.-32. 7. Allur vondur vani ætti að vera lagður niður. „Þar eð vér höfum þessi fyrirheit elskaðir, þá hreinsum sjálfa oss af allri saurgun á holdi og anda, svo svo að vér náum fullkomnum heilag- leik með guðsótta“. 2Kor. 7:1. X. Hvernig geiur maður lifað verulega hófsömu lífi? „Sérhver sem tekur þátt í kappleikj- um er bindindissamur í öllu. Þeir til þess að hljóta forgengilegan sigur sveig, en vér óforgengilegan. Þess vegna hleyp ég þá ekki eins og upp á óvissu. Ég berst eins og hnefa- leikamaður sem enginn vindhögg slær, en ég leik líkama minn hart og gjöri hann að þræli mínum, til þess að ég, sem hef prédikað fyrir öðrum, skuli ekki sjálfur verða gjörður rækur“. lKor. 9:25.—27. 1. Lærið gott að gjöra. „Þvoið yður, hreinsið yður, takið ilskubreytni yðar burt frá augum mínum. Látið af að gjöra ilt. Lærið gott að gjöra leitið þess, sem rétt er, hjálpið þeim sem fyrir ofríki verður, rekið rétt- ar hins munaðarlausa og verjið mál- efni ekkjunnar“. Jes. 1:16.—17. 2. Guðs dýrð á að vera vort helzta. áhugamál. „Hvort sem þér því etið eða drekkið, eða hvað sem þér gjör- ið þá gjörið það alt Guði til dýrðar“. lKor. 10:31. 3. „Alt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gjörir“. Fil. 4:13. 4. Gleymum því liðna. Keppum að takmarkinu. „En eitt gjöri ég, ég gleymi því sem að baki er en seilist eftir því sem fyrir framan er, og keppi þannig að markinu til verðlaunanna, sem himinköllun Guðs fyrir Krist Jesúm býður mér“. Fil. 4:14. 5. „Látum oss því .... létta af oss allri byrði og viðloðandi synd, og þreyt- um þolgóðir skeið það, sem fyrir oss er sett, og beinum sjónum vor- um til Jesú, höfundar og fullkomn- ara trúarinnar, til hans, sem 1 stað þeirrar gleði, sem hann átti kost á, leið þolinmóðlega á krossi, mat smán einkis, og hefir sest til hægri handar hástóli Guðs. Virðið því fyrir yður þann, sem þolað hefir slík andmæli gegn sér af syndurum, til þess þér þreytist ekki lémagna á sálum yðar. í baráttu yðar við syndina hafið þér ekki ennþá staðið í gegn svo blóð hafi runnið“. Hebr. 12:1.—4. ---------A----------- „Ef þú hefðir séð það sem ég sá" Fyirir nokkrum árum starfaði undirrit- aður í Arkansas og Lousiana. í söfnuði vorum þar sem ég bjó var ein af trú- systrum vorum sem afsagði alveg að fara hús úr húsi með smárit til að gefa fólk- inu. Nafn hennar var Hulsa. Hún var svo hrædd við að heyra mótmæli eða háðs- yrði þeirra, sem hún mætti. Aðrir safn- aðarmenn og konur fóru út með blöð og smárit og það veitti þeim verulega á- nægju. En blöðin sem Mrs. Hulsu var ætlað að fara með söfnuðust saman viku eftir viku. Mr. Hulsa var vélstjóri á járnbrautar- lest. Yfirmenn hans höfðu ámint hann aftur og aftur um að hætta að drekka, en árangurslaust, en nú var honum vísað í burtu. Þetta vakti hann upp svo hann hætti að drekka. En félagið sem hann hafði unnið hjá vildi ekki taka hann í vinnu aftur. Þeir höfðu áður gefið honum svo mörg tækifæri. Hann sagði nú konu sinni að hann ætlaði til California, þar sem hann var óþektur og sækja um vinnu hjá

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.