Stjarnan - 01.07.1951, Side 7

Stjarnan - 01.07.1951, Side 7
STJARNAN 55 Bæði faðirinn og allir synir hans pönt- uðu bókina og borguðu hana fyrir fram. Þegar maðurinn kom til að skila bókun- um gaf hann' þeim Biblíulestur og þeir innrituðust í Biblíu bréfaskólann. Nokkru seinna frétti hann að þeir væru farnir að halda öll Guðs boðorð. í Dominican lýðveldinu voru 5 manns sem meðtóku frelsarann eftir að hafa lesið Deiluna miklu, og skamt þaðan meðtóku 6 manns frelsarann eftir að lesa „Eftir- sókn aldanna“ og einn eftir að lesa bók- ina „Þessi alvarlegi tími“. —C. O. G. -----------☆------------ Samkvæmt miskun sinni „Þá frelsaði hann oss ekki vegna rétt- iætisverkanna, sem vér höfum unnið, heldur samkvæmt miskun sinni fyrir iaug endurfæðingarinnar og endurnýjun- ur heilags anda“. Títus 3:5. Aftur og aftur er þessi dýrmæti sannleikur um frelsun af Guðs náð í Jesú Kristi endurtekinn í Biblíunni. „Þeir réttlætast án verðskuld- unar af náð hans, fyrir endurlausnina sem er í Jesú Kristi“. Róm. 3:24. „Af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú, og það er ekki yður að þakka heldur Guðs gjöf“. Efes. 2:8. Guð sá það mundi þörf á að endurtaka þennan dýrðlega sannleika, því menn uiundu vera í þeirjji hættu, annaðhvort að hyggja von sína um frelsun á góðverk- Um sínum og stæra sig eins og faríseinn, eða hann mundi faíla í örvænting yfir syndum sínum og veikleika. Ekki fyrir réttlætisverk sem vér höf- um unnið fæst frelsun. Hinn hrokafulli farísei leit á aðra með fyrirlitningu, en þakkaði Guði fyrir að hann var ekki eins °g aðrir menn, og taldi svo upp góðverk sm og hlýðni við lögmál Móse. Hann hélt sig réttlátan og fann enga þörf fyrir náð eða réttlætingu, og öðlaðist hana því ekki. Hversu margir líkjast þessum farísea, halda sig betri en aðra, og telja svo upp góðverk sem þeir hafi gjört, og finna enga þörf fyrir að biðja Guð um náð. Vér þurfum að skilja að kærleiki Guðs til vor og náð hans er ekki endurgjald fyrir góðverk vor. Langt frá því. Guð leitaði oss uppi og með miskun sinni lað- aði oss að sér. Af náð sinni afmáir hann syndir þeirra sem til hans koma. Hann sendir oss sinn heilaga anda, til að skapa í oss nýtt hjarta, og gefur oss af náð sinni von um eilíft líf. „Maðurinn getur ekki séð Guðs ríki nema að hann endurfæðist“. Af miskun sinni mætir Guð þörfum hans og gefur honum nýtt hjarta og nýtt líf. Sumir berjast við gagnstæðar öfgar, vegna þess hve freistaðir og syndugir þeir eru, þá örvænta þeir um að geta fengið inngang í Guðs ríki. Kvein þeirra er: „Ég er ekki nógu góður til að komast inn í Guðs ríki“. Auðvitað erum vér ekki nógu góðir fyrir himnaríki. Hefði maðurinn ver- ið það þá hefði Jesús ekki þurft að deyja fyrir hann. Þegar vér finnum til slíks vonleysis, þá kallar Guð til vor: „Komið nú og eigumst lög við, segir Drottinn, þó að syndir yðar séu sem skarlat, skulu þær verða hvítar sem mjöll. Þó þær séu rauð- ar sem pUrpuri skulu þær verða sem ull“ Jes. 1:18. Vér þurfum ekki að örvænta þó vér séum syndugir, því Jesús kom til að frelsa syndara. „Guð auðsýnir kærleika sinn til vor þar sem Kristur er fyrir oss dáinn, meðan vér enn vorum í syndum vorum“. Róm. 5:8. Játum syndir vorar fyrir Guði. Treyst- um náð hans, sem lofað hefir: „Ef vér viðurkennum vorar syndir þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu rang- læti“. lJóh. 1:9. Fyrirgefning og frelsun er vor ef vér meðtökum hana sem gjöf frá Guði. Það er undravert kraftaverk Guðs náðar að endurskapa og ummynda oss eftir sinni mynd. Vér erum hreinsaðir og ummynd- aðir samkvæmt miskun Guðs „fyrir laug endurfæðingarinnar og endurnýjunar hei- lags anda“. Synd er útrýmt úr hjörtum vorum, en Guðs andi fyllir þau guðræki- legum hugsunum og áformum. Þá sannast á oss að „Hver sem er í Kristi er ný skepna“. Vér erum helgaðir Guði. Lít til Jesú en ekki á sjálfan þig. Hann, sem læknaði sjúka, lífgaði dauða og rak út djöfla, meðan hann umgekst hér á jörðinni, hann er enn í dag sami voldugi frelsarinn, og hann segir: „Þann sem til mín kemur mun ég alls ekki burt reka“. Jóh. 6:37. Jerry Lien

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.