Stjarnan - 01.09.1951, Page 1

Stjarnan - 01.09.1951, Page 1
STJARNAN SEPTEMBER 1951 LUNDAR, MANITOBA Líttu upp Tveir fornkunningjar mættust á götu í einni af borgum Vesturríkjanna. Eftir fyrstu kveðjur kom þessi spurning: !,Hvernig er útlitið Virgil?“ Svarið var: „Ef satt skal segja er útlitið voðalegt, en það er alt gott ef litið er upp.“ Þetta er einmitt það sem vér þurfum að hafa hugfast. Hvernig sem alt lítur út umhverf- is, þá er altaf gott ef litið er upp. Fyrir nokkru síðan heimsótti ég Sistine kirkjuna í Róm og virti fyrir mér lista- verk málarans Michelangelo, sem prýða bæði veggina og hvelfinguna í þessari stóru byggingu. Eg sá í huga mínum pall- inn sem settur var upp fyrir listamanninn þar sem hann stóð og horfði upp meðan hann var að mála hvelfinguna. Það er sagt hann hafi svo lengi unnið þannig upp fyrir sig að það varð honum að vana það sem eftir var æfinnar, jafnvel þegar hann var úti á götunni að horfa altaf upp fyrir sig. Andlega talað þurfum vér altaf að horfa upp nú á dögum. Þegar vér lítum á fréttablöðin eða hlustum litla stund á víðvarpið, þá sann- f®rumst vér um að þessi gamla veröld er ekki í öllu það, sem hún ætti að vera. Hún er full af vonleysi, ótta og kvíða. Það sem hvert mannshjarta þráir er framtíðarvon, öruggleiki og sálarfriður. Þessi eftirþráðu gæði eru vor ef vér stöð- ugt lítum upp og lifum í trú á Guðs ó- brigðulu fyrirheit. Það eru fjórar góðar °g gildar ástæður fyrir því að vér þurfum aldrei að vera áhyggjufullir. Þær finnast 1 Heilagri Ritningu, í hinum indæla 14. kapítula Jóhannesar Guðspjalls. „Hjarta yðar skelfist ekki, trúið á Guð °g trúið á mig. í húsi föður míns eru mörg híbýli, væri ekki svo mundi ég þá hafa sagt yður að ég færi burt að búa yður stað. Og þegar ég er farin burt og hefi búið yður stað, kem ég aftur og tek yður til mín, til þess að þér séuð og þar sem ég er.“ Þetta er læknismeðal Krists við áhyggjum og kvíða. Hann gefur fjórar á- stæður fyrir því að vér getum verið kvíðalausir. Fyrst: „Þér irúið á Guð." þá þarf hjarta yðar ekki að skelfast eða vera áhyggjufult. Sá. sem í sannleika trúir á Guð þarf ekki að kvíða. Hinn voldugi Guð alheimsins, vor himneski faðir er of vitur til að geta yfirSést, og of góður til að vera oss óvinveittur. „Hæli er hinn eilífi Guð og hið neðra eru eilífir armar.“ 5 Mós. 33:27. Hverju, skyldum vér kvíða? (Þegar þú hefir tíma þá lestu og hugleiddu Jesajas 40. kap. 28-31) - Frægur læknir einn varð að gjöra upp- skurð á lítilli stúlku án þess að svæfa hana. Hann tók 50 centa silfurpening upp úr vasa sínum gaf henni og sagði: „Þetta er handa þér, þú mátt kaupa fyrir það hvað sem þú vilt. Nú verð ég að meiða þig svolítið en það verður ekki lengi. Skoðaðu peninginn vel áður en ég byrja og haltu honum fast í hendi þinni. Meðan ég er að eiga við þig þá hugsaðu um það sem þú sást á peningnum, þá muntu ekki kenna svo mikið til.“ Þegar læknirinn hafði lokið við upp- skurðinn strauk hann hár litlu stúlkunnar og sagði: „Þú ert hugrökk lítil stúlka. Seg- ðu mér nú hvað varstu að hugsa um meðan ég gjörði uppskurðinn?“ „Ó það voru orðin“, svaraði hún. „Þú meinar ártalið á peningnum?“ spurði læknirinn. Hann mundi varla að það voru orð á honum. „Ó, nei, það voru orðin fyrir ofan. Eg hafði aldrei séð þau áður því ég hef aldrei fyrri séð 50 cent. Þessi orð „Guði treystum vér“, það er gott að hafa þau þar svo þeir sem eiga hálfan dollar geti altaf hugsað um þau.“ Já, vinir mínir. Vér treystum Guði. Það

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.