Stjarnan - 01.09.1951, Page 2

Stjarnan - 01.09.1951, Page 2
66 STJARNAN er leyndardómurinn, svo vér þurfum engu að kvíða. Vér þurfum að muna það að Guð er elskandi. Þegar vér lesum söguna um týnda soninn, sem vel mætti kallast sag- an um hinn fyrirgefandi föður, þá ættum vér að bera meira traust til Guðs, en hafa. minni áhyggjur. Þér munið hvernig fað- irinn fagnaði komu týnda sonarins og bauð hann velkominn, það er líkt Guði. Hann veit alt um ferðalag vort vonbrigði og sorgir. Hann slcilur það alt og tekur þátt í kjörum vorum. Hann hefir kraft til að vernda oss, visku til að leiðbeina oss, og býður oss velkomna þegar vér í ein- lægri iðrun snúum oss til hans. Ef vér treystum Guði betur mundum vér hafa minni áhyggjur. Vandræðin eru, þessi að margir meðal vor bera sig að eins og enginn Guð væri til. Þeir reiða sig ekki á Guð, biðja hann sjaldan eða aldrei, og vanrækja að lesa hans heilaga orð. Vinur minn, ef þú hefir vilst af leið og hjarta þitt kvelst af kvíða og órósemi, ef ástand heimsins bakar þér áhyggjur svo líf þitt líkist vondum draumi, þá kom þú heim til Guðs. Treystu honum. Hann segir að jafnvel öll þín höfuðhár séu talin. Hann þekkir allar þínar hugrenningar álengdar Hann veit alt þér viðvíkjandi en elskar þig engu að síður. Þess vegna „skelfist ekki . . . Trúið á Guð“. Hér er önnur ástæða fyrir því að vér þurfum ekki að kvíða: „Trúið á Guð og irú- ið á mig." Ef vér trúum á Krist þá munum vér ekki kvíða. Hann er frelsari heimsins. Vér verðum að trúa því að hann dó á krossinum fyrir vorar syndir. Ef vér erum áhyggjufullir yfir syndum vorum eftir að vér höfum viðurkent þær og snúið frá þeim þá sýnir það að vér trúum ekki að Guð hafi fyrirgefið þær. Jesús dó fyrir syndir vorar til þess Guð gæti fyrirgefið þær. Þínar og mínar syndir voru partur af þeirri byrði sem Jesús bar á krossinum. Vér lesum í 1 Jóh. 2:2, að Jesús dó fyrir als heimsins syndir, og í 1 Jóh. 1:9, stend- ur: „En ef vér játum syndir vorar er hann trúr og réttlátur svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu rang- læti.“ Ef vér höfum játað syndir vorar og látið af þeim, þá þurfum vér ekki að vera áhyggjufullir út af þeim. Jesús hefir afplánað þær allar. Blóð hans hylur þær. Jesús þekkir framtíðina, hann hefir lof- að þeim sem elska hann að þeir skuli vera þar sem hann er, og hann hefir líka lofað að vera með lærisveinum sínum alla daga alt til veraldarinnar enda. Hverju höfum vér að kvíða? Treystum Guði og frelsara vorum Jesú Kristi. Nú komum vér að þriðja læknismeðal- inu við áhyggjum og kvíða: „Eg fer burt að búa yður siað." Hugsið yður, vér höf- um engu að kvíða. Vér höfum heimili á himnum. Þetta líf hér er aðeins byrjunin. Gröfin er ekki síðasti hvíldarstaðurinn. Það eru ekki síðustu orðin sem töluð voru við gröfina. Margt sem hér var ilt og rang- látt og erfitt að skilja, verður leiðrétt og skiljanlegt í hinum komandi heimi. Bak við gröfina er land og líf. Þar munu Guðs börn sameinast. Þar munum vér mæta ástvinum Guðs og vorum, aldrei framar skiljast að. Þar verður hvorki sorg mé söknuður. Vinur minn, ef hjarta þitt blæðir af því þú heíir nýlega mist ástvin þinn, þá minstu þess að Jesús hefir heimili tilbúið handa þér þar sem þú sameinast ástvinum þínum aftur, þar verður hvorki sorg né sársauki framar. Biblían segir að vér mun- um þekkja hver annan. Jesús mun um- mynda oss eftir sinni mynd. „Vér munum verða honum líkir því vér munum sjá hann eins og hann er“. (1 Jóh. 3:2) Páll postuli segir að vér munum þekkja eins og vér erum þektir. (1 Kor. 13:12) „Hjörtu yðar skelfist ekki.“ Trúið á Guð. Trúið á Jesúm. Trúið að Jesús hefir heimili tilbúið fyrir yður. Þegar Marco Polo, hinn nafnkunni ferðamaður þrettándu aldarinnar kom heim aftur og sagði frá ýmsu undraverðu sem hann hafði séð, þá voru fáir sem trúðu sögu hans. Seinna þegar hann lá fyrir dauðanum var hann alvarlega hvattur til að afturkalla hinar fölsku frásagnir sínar um Kína og önnur austurlönd, þá svaraði hann: „Eg hef ekkert að afturkalla. Eg hef ekki sagt helminginn af því sem ég hef séð.“ Það er ómögulegt að lýsa himninum eins og hann er. Mannleg orð geta ekki lýst dýrð hans. Fyrir nokkru síðan var ég staddur á járnbrautarstöð í Ómaha, Nebraska og varð vottur að endurfundum hermanns

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.