Stjarnan - 01.12.1951, Blaðsíða 3
STJARNAN
91
trúi því að það er svo, ekki af því ég finni
það heldur af því að Guð hefir lofað því“.
Nýlega voru nokkrir háskólanemendur
sem rannsökuðu þennan kapítula ná-
kvæmlega. Nokkrum dögum seinna sagði
einn af nemendunum frá því að hann hefði
það kvöld farið heim með nýja vön og
nýjar hugsjónir. Hann játaði syndir sínar
einlæglega og alvarlega, eins og hann
hafði gjört oft áð.ur. Þegar hann stóð upp
frá bæninni fann hann enga breyting á
tilfinningum sínum. Hið sama hafði oft
átt sér stað áður.
Svo sagði hann við sjálfan sig: „Ég veit
syndir mínar eru fyrirgefnar og afmáðar,
ekki vegna tilfinninga minna á nokkurn
hátt, heldur af því Jesús hefir lofað því“.
Rétt í þessu bili fann hann slíka rósemi,
fögnuð og frið í sálu sinni, sem hann hafði
aldrei fundið til áður. Og hvers vegna?
Ekki af því Guð hefði gjört nokkuð yfir-
náttúrlegt fyrir hann, heldur af því hann
loksins tók Guð á orðinu og trúði loforði
hans. Nú var loforðið uppfylt fyrir hann
og það verður eins fyrir þig ef þú trúir
því. „Finnið og sjáið að Drottinn er góður,
sæll er sá maður er leitar hælis hjá hon-
um“. Sálm. 34:8.
Þú hefir ef til vill séð einhvern takast
verk á hendur, sem þú efaðist um að
mundi lánast og sagt: „Ég trúi því þegar
ég sé það“. Sýnishorn er miklu meira virði
heldur en frásögn um hlutinn eða mál-
efnið. Þú veist sítrónur eru súrar af því
þú hefir bragðað þær. Glas af köldu vatni
sannfærir betur um að það slekkur þorsta,
heldur en löng lýsing á eðli vatnsins og
áhrifum þess. Beztaíýsingin á trúarreynslu
þinni er hvað hún framkvæmir í lífi þínu.
Páll postuli gefur ágætan mælikvarða
fyrir kristilegt líferni í Galatabréfinu
5:22—23. „En ávöxtur andans er kærleiki,
gleoi, friður, langlyndi, gæzka, góðvild,
trúmenska, hógværð, bindindi, gegn slíku
er ekkert lögmál“. Sama hugmyndin kem-
ur fram hjá Jesú í Matt. 7:18.—20. „Gott
tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki
heldur skemt tré borið góða ávöxtu . . . . af
avöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá“.
Sannkristið líf er svo fullokmlega um-
myndað að það ber góða ávexti ætíð og
undir öllum kringumstæðum. Ef kristin-
dómur þinn er veruleiki þá ert þú vin-
gjarnlegur, hugsunarsamur, hluttekning-
arsamur gagnvart óskum og þörfum ann-
ara. Þá ert þú eins kurteis á heimili þínu
eins og meðal ókunnugra, þá er ekki létt að
erta þig til reiði, og þú finnur ekki til
sársauka og gremju, þó þú getir ekki kom-
ið vilja þínum fram. Ef Jesús stjórnar
lífi þínu, þá nýtur þú friðar og ró-
semi, sem ekki truflast af hinum erfið-
ustu kringumstæðum. Þú treystir honum
til að leiða þig þann veg, sem veitir mesta
blessun að lokum. Þá ert þú hógvær eins
og Móses, laus við allan hroka, og heldur
rólegur stefnu þinni hvort heldur þú
stjórnar eða ert undir annara stjórn. $
Eini vegurinn til að lifa sigursælu lífi
er að meðtaka kraft frá Guði. Allur sá
kraftur sem Kristur átti kost á þegar hann
lifði flekklausu lífi hér á jörðinni stendur
líka þér til boða. Áður en Jesú sté til him-
ins sagði hann: „Alt vald er mér gefið á
himni og jörðu“. Svo gaf hann þetta lof-
orð: „Og sjá, ég er með yður alla daga alt til
enda veraldarinnar“. Matt. 28:18.—20. Vér
tilheyrum Kristi. Alt vald er hans. Það
sem er hans það er vort. Alt vald hins al-
máttuga Guðs stendur oss til boða, svo
að við getum sigrað allar meðfæddar synd-
ir og allar aðrar syndir og freistingar.
Hann mundi heldur senda hvern einasta
engil sinn þér til hjálpar, þegar þú ákallar
hann um hjálp heldur en að sjá þig falla
fyrir freistingu. En samt sem áður er hann
ekki einn að verki með þetta, þú átt að
vera samverkamaður hans.
Vilji þinn sameinaður vilja Guðs er sá
kraftur sem satan sjálfur getur ekki sigr-
að. Gegn um bæn og Biblíulestur opinber-
ar Guð þér vilja sinn, og um leið öðlast þú
kraftinn til að lifa samkvæmt Guðs vilja
þegar þú hefir gefið honum vilja þinn.
Þú getur valið. Þú verður að kjósa að
þjóna Guði. Ef þú notar vilja þinn rétti-
lega þá getur líf þitt orðið gjörbreytt. Ef
þú gefur Jesú vilja þinn þá sameinast þú
þeim krafti sem er öllu æðri. Þú öðlast
kraft frá Guði til að varðveita þig stöðug-
an í trúnni, og með sífeldri undirgefni
undir Guðs vilja fær þú kraft til að lifa
nýju lífi, lífi trúarinnar. Þetta er eins
verulegt og verzlunarviðskipti.
Setjum svo að þú eigir erfitt með að
stjórna hugsunum þínum. Þú ert freist-
aður til að hugsa um það sem þú veist að