Stjarnan - 01.12.1951, Page 7

Stjarnan - 01.12.1951, Page 7
STJARNAN 95 a<5 greiða úr flækjunni svaraði Kleuker: „Ef ég gæti hjálpað þér yfir þessi vand- rseði mundu önnur fljótt koma í þeirra stað. Það er til betri, styttri og öruggari vegur til að sigra efasemdirnar. Meðtaktu Jesúm sem Guðs son og frelsara þinn, höf- und hins eilífa lífsins. Ef þú stendur ör- nggur á þessum trúargrundvelli, þá munu engin auka-atriði raska rósemi þinni. Ljósið frá Kristi mun hrekja alt myrkur °g efa í burtu“. Svo lásu þeir orð Páls postula: „En hon- um, sem eftir þeim krafti sem í oss verkar, megnar að gjöra langsamlega fram yfir alt það sem vér biðjum eða skynjum". Letta hjálpaði D’Aubigné yfir alla erfið- leikana. Eftir að lesa versið bað hann til Guðs þessu viðvíkjandi. „Þegar ég stóð upp frá bæninni í her- berginu í Kiel“, segir þessi nafnkunni niaður, „þá fanst mér að vængir mínir væru endurnýjaðir eins og arnarinnar. Upp frá því varð mér ljóst að röksemda- leiðsla var gagnslaus, en Jesús gat fram- kvæmt alt fyrir mig með sínum krafti, svo ég hélt mér stöðugt við kross hans . . . Eg varð heldur ekki fyrir vonbrigðum. Allar efasemdir mínar hurfu, ég var ekki aðeins frelsaður frá þeirri hjartans angist, sem að lokum hefði yfirbugað mig hefði Guð ekki bjargað mér, heldur veitti hann ^nér einnig djúpan innilegan frið. Þegar ég segi frá þessu þá er það ekki einungis mín eigin reynsla, heldur margra ungra nianna á Þýzkalandi og annarstaðar, sem hafa orðið að berjast við hinar voðalegu bylgjur efnishyggjunnar. Margir hafa, því miður liðið skipbrot á trú sinni, og sumir hafa í örvæntingu stytt sér stundir“: Þessi lærdómsríka frásögn bendir á að vörn hins kristna móti árásum vantrúar °g falskrar speki er fremur innifalin í lifandi trú á Guðs son heldur en veraldleg- um vísindum. Auðmjúk bæn verður sterk- ari til að varðveita oss í sannleika kristin- úómsins, heldur en nokkur röksemda- leiðsla. Sá sem fyrir Guðs anda er styrktur 1 sínum innra manni og líka rótfestur og grundvallaður í kærleikanum, hann er miklu betur fær um að standa móti fals- henningum, heldur en sá sem mætir þeim með veraldlegri vizku. Röksemdafærsla hygð á sannleika, til varnar trúnni er mikilsverð, en það er lífskraftur Krists í hjarta hins trúaða sem er betri vörn móti efasemdum og veitir meiri sigur, heldur en beztu tilraunir málsvara kristindóms- ins. Lestur Guðs orðs og bæn, sem þroskar heilagt hugarfar eru bezta vörnin gegn öllum afvegaleiðslum og falskenningum. —ERNEST LLOYD ----------☆---------- Rétt í tíma Ég notaði eftirmiðdaginn til að heim- sækja námumennina og gefa þeim kristi- leg smárit. Þeir voru úti í sólskininu að njóta hreina loftsins eftir að hafa unnið alla vikuna í hinu óheilnæma lofti niðri í námunum. Ég var nú á heimleið og gekk beint yfir völlinn sem lá næst heimili mínu, þá mætti ég tveimur ungum mönnum senv gengu í hægðum sínum. Ég staðnæmdist er ég mætti þéim og valdi tvö smárit meðal þeirra fáu sem eftir voru og gaf þau sitt hvorum þeirra. Þeir tóku móti þeim og þökkuðu mér fyrir. Annar þeirra, stór, hraustlegur ungur maður um 25 ára að aldri staðnæmdist og las fyrirsögnina: „Rétt í tíma“. Ég fann til djúprar alvöru, leit á hann og sagði: „Já, vinur minn, Guð gefi þú verðir rétt í tíma til að öðlast hans dýrð- lega ríki“. Þegar ég kom heim bað ég fyrir þess- um manni: „Drottinn frelsaðu hann“. Tveimur dögum seinna þegar ég var rétt komin í rúmið var barið hranalega að dyrum, svo ég opnaði gluggann og hrópaði: „Hver er þar?“ „Herra minn, ert þú maðurinn sem gafst ungum manni smárit á sunnudaginn með fyrirsögninni: „Rétt í tíma?“ Ég kannaðist við það. Þá bað hann: „Gjörðu svo vel að koma strax“. Ég klæddi mig í flýti og fór með mann- inum. Á leiðinni sagði hann mér að vinur sinn hefði orðið fyrir slysi niðri í nám- unni, bringubeinið væri brotið og hann gæti naumast dregið andann. Hann þjáðist ákaflega og var rétt fyrir dauðans dyrum. Þegar fylgdarmaðurinn hafði lokið sögunni vorum við komnir að heimili

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.