Stjarnan - 01.08.1953, Side 5

Stjarnan - 01.08.1953, Side 5
STJARNAN 61 eins spámönnum Guðs. En vér höfum allir þau einkaréttindi, þrátt fyrir dauðlegt eðli vort, að vér getum komist í samband og samfélag við Guð, fundið til nálægðar hans og séð 1 anda veruleika og dýrð hins himneska ríkis, sem Guð hefir fyrirbúið þeim sem hann elska. Hvernig getur návist Guðs orðið veru- leiki fyrir oss? Fyrst og fremst með því, að vér hugsum meira um hann. Margt sem vér getum ekki séð með líkamlegum aug- um getur orðið skýrt fyrir oss, er vér heyrum lýsing á því og festum hug vorn við Iþað. Hugsanir vorar geta eins og það væri bygt brú yfir ófæra elfu. Vér getum lifað í samfélagi við Krist, þar sem hann situr til hægri handar Guði, ef vér höfum hugann á því himneska en ekki hinu jarðneska. Ef vér elskum Jesúm og þráum að eignast hlut í hans dýrðarríki, þá hljótum vér að hafa hugann hjá honum og á 'því sem hans ríki tilheyrir. Veljum það dýrðlega hlutskifti að lifa í samfélagi við Jesúm hér og ríkja svo með honum um eilífar aldir. —X. X. X. ■----------☆---------- Gætið yðar. Vakið og biðjið Listamaðurinn Leonardo da Vinci mál- aði Jesúm við kvöldmátíðarborðið með lærisveinum sínum. Hann leitaði uppi nienn sem vildu sitja fyrir honum. Hann þurfti að finna fallegan svipgóðan mann til að mynda Jesúm, en illúðlegan, ljótan ffiann til að vera Júdas. Loksins fann hann ungan mann, sak- leysislegan og fallegan, hann var söng- maður, nafn hans var Petro Bandinelli. Árin liðu og ennþá hafði listamaðurinn ekki lokið við málverk sitt. Hann gat hvergi fundið mann með nógu illilegu út- liti til að sitja fyrir sem Júdas. „Ég verð að finna spiltan mann, sem sýnir á andliti sínu hve vondur hann er,“ sagði listamaðurinn við sjálfan sig. Nokkru seinna sá hann betlara á götum Rómaborgar, sem var nógu útlitsljótur. Betlari þessi var fús til að láta hann mála mynd sína. Þegar málverkinu var lokið borgaði hann betlaranum og spurði um nafn hans. „Petro Bandinelli,“ svaraði betlarinn. „Ég sat fyrir hjá þér líka, þegar þú málaðir Kristsmyndina.“ Glæpalíf hafði svo gjörsamlega breytt útliti þessa unga manns, sem áður var ímynd sakleysis og hreinleika, en var nú orðið svo illúðlegt, að það gat mint á Júdas. Það var ekki fyrsta synd Júdasar að svíkja herra sinn. Hann hafði leyft öfund og ágirnd að búa um sig 1 hjarta hans. Honum hafði mislíkað þegar Jesús ávítaði hann fyrir eigingirni. Þetta gróf um sig þar til hann fór svo langt að hann sveik Jesúm í hendur óvinanna. Vér þurfum að biðja Guð að sýna oss ef synd býr í hjarta voru og svo biðja hann um hjálp til að útrýma henni. Unglingsdrengur einn sem gekk á skóla vann í frítímum sínum hjá bónda einum nálægt skólanum. Þeir urðu beztu vinir og treystu hvor öðrum. Eitt kvöld var pilturinn úti að keyra bíl og fann að hann hafði svo sem ekkert gas. Hann var rétt fyrir framan heimili bóndans, þetta þótti honum regluleg hepni, því hann vissi að bóndinn hafði gastunnu bak við húsið, og hann mundi fúslega selja honum gas, því gasstöðvar voru lokaðar. Hann hringdi dyrabjöllunni til að biðja um gas og borga fyrir það, því hann hafði peninga með sér. En bóndinn var ekki heima. Dreng- urinn hugsaði sig um augnablik, og sagði svo við sjálfan sig: „Ég er viss um hann gildir einu þó ég láni gas hjá honum, og segi honum svo frá því á morgun og borga fyrir það um leið.“ Hann tók gasið. Hann. fékk það aðeins að láni. Húsbóndinn hefði látið hann hafa það 'hefði hann verið heima. Næsta morgun mætti hann ekki hús- bóndanum, svo hann hafði ekki tækifæri til að segja honum frá gasinu. En næst. þegar þeir mættust hafði hann ekki pen- inga með sér, svo að hann minntist ekkert á það, svo þetta gleymdist. Svo henti það aftur að hann fékk lánað gas í fjarveru húsbóndans. Þetta kom fyrir í fleiri skipti þar til hann skuldaði Mr. Brown 5.00 dollara, en hann hafði aldrei svo mikla peninga á sér, svo ’hann sagði húsbóndan- um aldrei frá því. Einu sinni þurfti hann. olíu og tók hana. Nokkru seinna er hann var úti með fleiri drengjum tók hann gúmmí hring, sem 'hann átti ekki, og loks náði lögreglan honum meðan hann var

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.