Stjarnan - 01.08.1953, Page 6
62
STJARNAN
að taka bíl, sem aðrir áttu. Hann var
settur í fangelsi. Meðan hann var þar kom
húsbóndi hans Mr. Brown að heimsækja
hann og spurði hvernig þetta hefði at-
vikast. Þá sagði Joe honum alla söguna
hvernig það hefði byrjað, þegar hann
hafði ætlað að biðja hann um gas og borga
fyrir það.
Joe varð ekki þjófur alt í einu. Hann
ætlaði ekki að stela í fyrsta sinni, sem
hann tók gasið. En þetta er satans aðferð
til að svíkja bæði unga og gamla.
—S. S. W.
---------------------
Fátækur, blindur og nakinn
„Þú segir: Ég er ríkur og er orðinn
auðugur og þarfnast einkis — og þú veist
ekki að þú ert vesalingur og aumingi og
fátækur, blindur og nakinn.“ Op. 3:17.
Fá Ritningarorð eru alvarlegri en þessi,
og þau eru hin mest áríðandi fyrir kristna
menn á yfirstandandi tíma, því hinn Trúi
votturinn sendir þennan boðskap sérstak-
lega til lærisveina sinna, sem uppi eru á
síðustu dögum heimsins. í fimm orðum
lýsir hann hinu voðalega ástandi, sem ein-
kennir játendur kristindómsins á vorum
tíma.
Hér er lýsingin á þeim: Vesalingur,
aumingi, fátækur, blindur og nakinn.
Nakinn, ekki fáklæddur heldur klæðlaus.
Hvað er synd þessa safnaðar? Það er varla
hægt að ímynda sér verra ástand. Fátækur,
þegar oss stendur til boða hinn yfirgnæf-
anlegi dýrðarríkidómur Guðs. Nakinn,
þegar hver sem vill meðtaka, getur öðlast
réttlætis skykkju Krists. Blindur, sér ekki
né skilur sitt eigið ástand, tákn tímanna,
né tækifæri þau er bjóðast eða skyldur
sem á honum hvíla. Vesalingur og aum-
ingi, vegna skorts á andlegum krafti og
skilningi, álítur sig ríkan, er hrokafullur
og holdlega sinnaður, óhæfur fyrir Guðs
ríki, en veit ekki að svo er.
Getur þetta verið rétt lýsing? ‘Því miður
er hún rétt. Það er sorgleg hálfvelgja og
alvöruleysi hjá fjöldanum sem þó játa
kristna trú. Hjá miljónum manna er guðs-
þjónustan orðin kraftlaus, alvörulaus
venja. Of víða hafa heimilisguðsþjónustur
verið lagðar niður, og of sjaldan taka
menn tíma til að biðja í einrúmi. Of
margir safnaðarmenn eru að bíða þess að
Guð gjöri eitthvað sérstakt fyrir þá, meðan
Guð bíður þess að þeir snúi sér alvarlega
til hans. Alt of margir vor á meðal nota
pappírspeningana fyrir sjálfan sig, en
fórna Guði smápeningunum. Alt of margt
virðist vera oss kærara og taka upp meiri
tíma í hugum vorum heldur en endurkoma
Krists í dýrð og veldi. Hjá mörgum eru
guðræknisiðkanir aðeins frítímavinna. í
ræðustólnum og á ráðstefnum kirknanna
er of mikið af því mannlega og jarðneska,
en of lítið af því sem Guðs er. Oft eru þar
framborin áheyrileg orð manna, en ekki
orð innblásin af heilögum anda. Of margir
þjónar líkjast Ahimas, sem fór í sendi-
ferð, en hafði engan boðskap að flytja.
Menn hafa metið lítið sannindi kristin-
dómsins og dregið blæju fyrir hið dýrð-
lega ljós fagnaðarerindisins. Margir dauf-
heyrast við áminningum og áhrifum
heilags anda. Efasemdir í trúarefnum og
eftirsókn eftir jarðneskum munum hefir
komið 1 stað heilagrar alvöru og sannrar
guðrækni.
Athugum nú þetta alvarlega. Slíkir
lifnaðarhættir undirbúa oss ekki undir
Guðs ríki. Með þessari aðferð verður ekki
lokið við starf Guðs á jörðunni. Þar þarf
meira til. Vér verðum að ganga með Guði,
lifa í nánu samfélagi við hann. Það heimt-
ar fullkomna undirgefni undir Guðs vilja
og miklu meiri fórnfýsi en vér höfum
ennþá sýnt.
Þrátt fyrir hið sorglega ástand í heim-
inum þá hefir Guð trúa þjóna sem út-
dreifðir eru meðal allra þjóða, tungumála
og fólks. Þeir eru nemendur í skóla sorgar
og erfiðleika. Þeir líða ofsóknir og þján-
ingar. Líf þeirra er reynsla erfiðleika eyði-
merkurinnar. En fremur öllum öðrum
hefir Guð auga á þeim og annast þá.
Vinur minn, hver sem þú ert, hvar sem
þú ert, hvaða stöðu sem þú hefir, þá kallar
Guð þig til að lifa í hreinleika postula
Drottins, og í krafti hans heilaga anda
eins og honum var úthelt á hvítasunnu-
daginn. Guð úthellir fyllingu síns heilaga
anda í ríkara mæli en nokkru sinni fyr
yfir alla þá sem vilja meðtaka hann. Vilt
þú meðtaka þennan endurlífganda kraft,
sem mun undirbúa Guðs útvöldu fyrir að
verða ummyndaðir eftir Jesú dýrðarmynd.
—SANFORD T. WHITMAN