Stjarnan - 01.02.1954, Síða 6

Stjarnan - 01.02.1954, Síða 6
14 STJARNAN Alt í einu skygði ský fyrir tunglið, fjöllin sáust ekki lengur. Alt var svo dimt, og það var svo langt til sólaruppkomu. Hún dróg niður gluggablæjurnar, gekk að rúmi sínu og opnaði Biblíuna, sem lá þar á borðinu; fyrir henni urðu þessi orð: „Sól þín mun ekki framar ganga til viðar, og tunglið mun ekki verða byrgt, því Drott- inn er þér eilíft ljós, og sorgardagar þínir hafa enda tekið“. María lokaði augunum og andvarpaði: „Það er svo ósköp dimt í heiminum. Bíða eftir sólaruppkomunni, bíða, bíða.“. Þúsundir manna hafa svipaða reynslu og María. Lífið sýnist gleðisnautt, þú virð- ist ekki hafa neina tryggingu fyrir fram- tíðinni, ekkert sem þú getur reitt þig á, lífið framundan er eins og ráðgáta. Vinur minn, minstu umhyggju Guðs og kærleika hans. Hann hefir auga á þér. „Dimman hylur ekkert fyrir honum, því nóttin er eins björt og dagur. Fyrir honum er eng- inn munur á myrkri og birtu“. Á sorgar og reynslustundum vorum þurfum vér að hafa hugfastan þann sann- leika að „Grátur varir aðeins næturstund, en gleðin kemur með morgninum“. Upp- runi sólarinnar mun framleiða ljós sem veitir oss skilning á ýmsum erfiðleikum lífsins, sem vér höfum mætt, Ijós, sem al- drei mun dvína eða daprast. Heimurinn bíður uppkomu sólarinnar. Ert þú vakandi, bíðandi og biðjandi? Bráð- um munum vér sjá himininn opnast, Jesús vinur vor og frelsari kemur til að taka okkur heim til sín. Hann er vort eilíft ljós. „Dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til“. Op. 21:4. —STANLEY COMBRIDGE -----------☆------------ Leyndardómur framtíðarinnar Alstaðar spyrja menn hvers þeir megi vænta næst. Hvað liggur framundan? Hvernig verður ráðið úr vandamálum heimsins. Hvað verður Rússum leyft að fara langt? Munu þeir ná Evrópu undir sig? Er heimurinn á barmi glötunar og eyðileggingar? Hvenær uppfyllist vonin um frið og hamingju í heiminum? Ég skal ekki reyna að svara þessum spurningum frá mínu eigin brjósti, heldur benda á hvað Guð hefir opinberað oss í orði sínu. í Daníel 2:31.—35. er lýst líkneski úr ýmiskonar efni, sem Nebukaðnesar var sýnt í draumi. Höfuð líkneskisins var af skæru gulli, brjóst og handleggir af silfri, kviður og lendar af eiri, og fæturnir sumt af járni og sumt af leir. Svo féll steinn úr lausu lofti og hitti fætur líkneskisins og braut það alt í sundur, svo vindurinn feykti því í burtu svo líkneskið var ekki lengur til. En það undraverðasta var að steinninn stækkaði, svo hann varð að fjalli sem huldi alla jörðina. Þetta var merkilegur draumur, útlegg- ing hans finnur þú í Dan. 2:38.—44. Þar getur þú skilið, að með þessum draum gaf Guð táknmynd af sögu heimsins alt frá dögum Daníels til tímans enda, eða frá 600 fyrir Krist alt til 1953 og þaðan til enda heimsins. í 38. versi skýrir spámaðurinn frá að gullhöfuðið merkir Babýlonar ríki, sem þá var undir stjórn Nebúkaðnesars. í 39. versi er bent á að brjóstið og hándleggirnir af silfri táknaði næsta alheims ríki, sem fylgdi eftir Babýlon. Sagan sýnir að það ríki var Medo Persía. Svo skýrir spámaðurinn frá að hið þriðja ríki af eiri muni stjórna heiminum. Hversu einfalt og auðskilið þetta er. Sag- an sýnir að þirðja ríkið sem kom næst eftir Persíu var Grikkland. Takið svo eftir hvað Daníel segir að járnleggirnir þýði: „Þá mun hefjast fjórða ríkið, sterkt sem járn“. Er ekki þetta auð- skilið. Járnleggirnir táknuðu rómverska ríkið. Skóladrengirnir geta vitnað um áreiðanleika þessara spádóma Biblíunnar. Þeir geta sagt þér að Persía kom næst eftir Babýlon, og Grikkland kom á eftir Persaríki, og Róm næst á eftir Grikklandi. En svo voru fæturnir og tærnar, sumt af járni og sumt af leir. í 41. versi segir Orðið oss: „En þar er þú sást fæturnar og tærnar að sumt var af pottaraleiri, sumt af járni, það merkir að ríkið mun verða skift“. Þannig bendir Daníel á að fjórða ríkið muni sundurliðast í fleiri smáríki.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.