Stjarnan - 01.07.1954, Blaðsíða 2

Stjarnan - 01.07.1954, Blaðsíða 2
50 STJARNAN beit saman og kálfar og húnar liggja hvorir hjá öðrum; og ljónið mun hey éta sem naut“. Jes. 11:6.—9. Ibúar hinnar nýju jarðar hafa ekkert að óttast. „Ég mun gjöra friðarsáttmála við þá og reka öll illdýri úr landinu, svo að þeir skulu óhultir búa mega í eyðimörk- inni og sofa í skógunum“. Ez. 34:25. í þessum heimi þjáumst við af vesöld og volæði, líðum söknuð og sársauka, en þar munu allar vorar óskir verða upp- fyltar. Þar verður aldrei kvíði né órósemi, og enginn verður sjúkur. „Þá munu augu hinna blindu uppljúkast og opnast eyru hinna daufu; þá mun hinn halti létta á sér sem hjörtur og tunga hins mállausa fagna lofsyngjandi, því að vatnslindir spretta upp í eyðimörkinni og lækir á öræfunum“. Jes. 35:5.—6. Munum vér þekkja vini vora? Vissu- Íega. Þeir munu hafa einstaklings einkenni sín. „Nú er þekking mín í molum, en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er sjálfur gjörþektur orðinn“. „Þér elskaðir. Nú erum vér Guðs börn, og það er ennþá ekki orðið bert, hvað vér munum verða. Vér vitum, að þegar hann birtist, þá munum vér verða honum líkir, því að vér munum sjá hann eins og hann er“. 1. Jóh. 3:2. Hve dýrðlegt það verður á lifenda landi, laus við öll saknaðartár. Með söng á vör- um og hörpu í hendi, að hitta ástvinina þar. Höfuðborg þessa lands verður ímynd fegurðar og fullkomleika. „Og ég sá borg- ina helgu, nýju Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði búna sem brúði, er skartar fyrir manni sínum. Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu, er sagði: Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna, og hann mun búa hjá þeim, og þeir munu vera folk hans, og Guð sjálfur mun vera hjá þeim Guð þeirra“. Op. 21:2.—3. Imyndið yður borgina, sem bygð er í íerhyrning, 375 mílur á hverja hlið, og tekur yfir nær því einst stórt svæði eins og Californíu-ríkið. Hugsið yður borgar- veggina að skærum jasper steini um- hverfir alla borgina, sem er 1500 mílur umhverfis, og hinir 12 undirstöðusteinar borgarinnar eru skreyttir alskonar dýr- mætum gimsteinum, litfegurðin skarar fram úr fegurð regnbogans. Borgarhliðin eru 12, þrjú á hverri hlið borgarinnar, og hvert borgarhlið er ein perla. Op. 21: 12,—21. Hvílík unun það verður að ganga um hin konunglegu stræti lögð skýru gulli, gagnsæ eins og gler. Ibúar borgarinnar þurfa hvorki kerti, lampa, rafmagnsljós né radíum geisla, því dýrð Guðs uppljómar hana og lambið er hennar ljós. Fyrir utan borgina mun sól og tungl skína með skærari birtu heldur en nokkru sinni fyr. „Þá mun tunglsljósið verða sem sólarljós, og sólarljósið sjöfaldast, eins og sjö daga ljós, þann dag er Drottinn bindur um sár þjóðar sinnar og græðir hennar krömdu undir“. Jes. 30:26. Postulinn lýsir fegurðinni umhverfis hásæti Guðs á þennan hátt: „Og hann sýndi mér móðu lífsvatnsins, skínandi sem kristall, og rann hún frá hásæti Guðs og lambsins, á miðju stræti borgarinnar og beggja vegna móðunnar var lífsins tré, sem ber tólf sinnum ávöxt, á mánuði hverj- um gefur það ávöxt sinn, og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum“. Op. 22:1.—2. Þetta eftirvænta heimilisréttarland vort veitir oss fögnuð og tækifæri langt fram yfir það sem oss getur í hug komið. Ár eilífðarinnar munu stöðugt leiða í ljós nýja dýrð og fegurð. „Auga hefir ekki séð né eyra heyrt hvað Guð hefir fyrirbúið þeim, sem hann elska“. 1. Kor. 2:9. Hér getum vér orðið hrifnir af hinum tignarlegu fjöllum, fegurð hafsins, útsýn- inu og skrautlegum byggingum, en í þess- um heimi hefir auga ekki séð neitt, sem kemst í samjöfnuð við dýrð og fegurð hinnar nýju jarðar. Hér getum vér glaðst af að skoða fegurstu listaverk, heyra hljóð- færaslátt og samsöng æfðra söngmanna, en hér hefir ekki eyra heyrt neitt, sem jafnast á við þann fögnuð, sem Guð heíir fyrirbúið börnum sínum. Yér getum lesið um borgina helgu, strætin úr gulli og veggi úr jasper, með perluhlið, fljót lífs- vatnsins og glersjóinn, en hér er ómögu- legt fyrir oss að skilja undrafegurð þessa framtíðarheimilis Guðs barna. Skilyrðin fyrir borgararétti og inn- göngu í þessa dýrðlegu borg eru skýrt fram sett í Op. 22:14. og Op. 21:27. „Sælir eru þeir, sem breyta eftir hans boðorðum, svo þeir nái að komast að lífs-

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.