Stjarnan - 01.07.1954, Blaðsíða 4

Stjarnan - 01.07.1954, Blaðsíða 4
52 STJARNAN sem setur í hættu siðmenning vorra tíma. Þegar þjóðasambandið var stofnað, stungu menn upp á ýmsu til að viðhalda friði, en ekkert dugði. Þó var ein uppástunga, sem hefði lánast ef henni væri fylgt, en henni var lítill gaumur gefinn. Uppástungan var þessi: „Reynið Jesús“. —S. T. — C. ------------------------- Hver skapaði heiminn? „í upphafi skapaði Guð himin og jörð“. Var Guð einn í sköpunarverkinu? „Og Guð sagði: Vér viljum gjöra menn eitir vorri mynd, líka oss“. Mós. 1:26. Hver var með Guði í sköpunarverkintí? „í upphafi var orðið .... Það var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir eru fyrir hann gjörðir“. Jesús var Orðið. „Orðið varð hold og bjó með oss, fullur náðar og sannleika“. Jóh. 1:14. „Hann var í heiminum og heimurinn var orðinn til fyrir hann“. 10. vers. „Guð .... hefir á þessum síðustu dög- um til vor talað fyrir soninn .... fyrir hvern hann hefir og heimana skapað“. Hebr. 1:1,—2. „Því fyrir hann er alt skapað, sem er á himni og jörðu“. Kol. 1:16. Hvernig var heimurinn skapaður? „Fyrir orð Drottins voru himnarnir gjörðir, og fyrir anda hans munns allur himinsins her“. Sálm. 33:6. „Hann talaði og það varð. Hann bauð þá stóð það þar“. Sálm. 33:9. Hvað tók sköpun heimsins langan tíma? „Á sex dögum gjörði Drottinn himin og jörð, hafið og vötnin og alt sem í þeim er.“ Hver var tilgangurinn með sköpun heimsins? „Guð hefir myndað hana svo hún væri byggileg“. Jes. 45:18. Heimili vorra fyrstu foreldra. „Og Guð Drottinn plantaði aldingarð- inn Eden . . . . og setti þar manninn, sem hann hafði myndað“. 1. Mós. 2:8. Adam rekinn burt frá heimili sínu. Vegna óhlýðni sinnar var Adam rekinn burt úr aldingarðinum. „Og hann rak manninn burt“. 1. Mós. 2:24. Afleiðing óhlýðni Adams. Guð sagði: „Þú munt vissulega deyja“. 1. Mós. 2:17. Adam lifði „níu hundruð og þrjátíu ár, þá dó hann“. 1. Mós. 5:5. „Þess vegna eins og syndin kom inn í heiminn fyrir einn mann og dauðinn fyrir syndina, og dauðinn er þannig runninn til allra manna, því allít hafa syndgað“. Róm. 5:12. Árangurinn af hlýðni Krists. „Því að eins og hinir mörgu urðu synoterar fyrir óhlýðni hins eina manns, þannig munu og hinir mörgu verða rétt- lættir fyrir hlýðni hins eina“. Róm. 5:19. „Því aðeins og allir deyja fyrir sam- band sitt við Adam, svo munu allir lífgað- ir verða fyrir samfélag sitt við Krist“. 1. Kor. 15:22. „Og þetta er fyrirheitið, sem hann gaf oss, hið eilífa lífið“. 1. Jóh. 2:25. „Náðargjöf Guðs er eilíft líf í Jesú Kristi Drotni vorum“. Róm. 6:23. „Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son,' til þess að hver sem á hann trúir ekki glatist, heldur hafi eilíft líf“. Jóh. 3:16. ------------■☆----------- Loforð um endurkomu Krists „Ég kem aftur og mun taka yður til mín, svo þér séuð þar sem ég er“. Jóh. 14:2. Kristur mun í annað sinn birtast, „til hjálpræðis þeim, sem hans bíða“. Hebr. 9:28. Hvernig mun hann koma? „Þessi Jesús, sem var uppnuminn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins“. Post. 1:11. Sj.á, hann kemur í skýjunum og hvert auga mun sjá hann“. Op. 1:7. „Því eins og eldingin, er hún leiftrar .... svo mun verða um manns soninn á degi hans“. Lúk. 17:24. Mannsins sonur „kemur í dýrð sinni og Föðursins og heilagra engla“. Lúk. 6:26. Tákn upp á nálægð endurkomu Krists. „Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum, og á jörðunni angist meðal þjóð- anna á ráðaleysi við dunur hafs og brim- gný, og menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, er koma mun yfir heimsbygðina, því að kraftar himnana munu bifast“. Lúk. 21:25.—28. Þekking og framfarir á öllum sviðum.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.