Stjarnan - 01.07.1954, Side 7
STJARNAN
55
Hinir eilífu armar Guðs umvefja þá
hversu breysk sem þessi sál kann að vera.
sál, sem snýr sér til hans til að fá hjálp,
Fjöllin með öllum auðæfum sínum munu
íarast, en sú sál, sem lifir fyrir Guð, mun
standast frammi fyrir honum. „Heimurinn
fyrirferst og fýsn hans, en sá, sem gjörir
Guðs vilja varir að eilífu“. 1. Jóh. 2:17.
Guðs borg mun opna hin gullnu hlið sín til
að taka á móti þeim, sem á vegferð sinni
hér á jörðunni lærðu að reiða sig á Guð,
til þess að fá hjá honum leiðbeiningu og
vizku, huggun og von í þrengingum og
missi. Hann verður boðinn velkominn
þangað með englasöng, og lífstréð mun
veita honum ávöxt sinn. „Því að fjöllin
munu færast úr stað, og hálsarnir riða,
en mín miskunnsemi við þig skal ekki
færast úr stað og minn friðarsáttmáli við
þig ekki raskast, segir miskunnari þinn,
Drottinn“. Jes. 54:10. —E. G. W.
-----------■☆•---------
„Verið þvi ekki áhyggjufuliir
um morgundaginn . . . "
Ef þú hefir gefið Guði sjálfan þig til
að vinna hans verk, þá þarft þú ekki að
vera áhyggjufullur um morgundaginn.
Hann, sem þú þjónar, þekkir endirinn frá
upphafi. Atvik morgundagsins, sem eru
hulin sjónum þínum, eru sýnileg augum
hins Almáttka.
Þegar vér leitumst sjálfir við að koma
því í verk eða framkvæmd, sem á oss
hvílir, og reiðum oss á það, að vizka sjálfra
vor og dugnaður geti hrundið því áleiðis,
þá leggjum vér á oss byrði, og reynum
að bera hana án hjálpar hans. Vér tök-
umst ábyrgð á hendur, er heyrir Guði til,
og setjum oss í rauninni í hans stað. í
slíkum kringumstæðum höfum vér í
rauninni fulla ástæðu til að vera áhyggju-
fullir og búast við háskasemdum og tjóni,
er þá mun vissulega koma. En þegar vér
í sannleika trúum því, að Guð elskar oss
og hefir í hyggju að gjöra vel við oss, þá
munum vér hætta að bera áhyggjur fyrir
íramtíðinni. Vér munum reiða oss á hann
eins og barn treystir kærleiksríkum föður
eða móður. Þá hverfa erfiðleikar vorir og
alt sem hvelur oss; því að vor vilji er
uppsvelgdur af Guðs vilja.
Kristur hefir ekki gefið oss neitt loforð
um hjálp í dag til að bera byrðar morgun-
dagsins .Hann hefir sagt: „Náð mín nægir
þér“ (2. Kor. 12:9.); en eins og Manna var
gefið á eyðimörkinni, þannig veitist náð
hans daglega, sniðin eftir þörfum' dagsins.
Eins og ísrael á eyðimerkurferðinni, get-
um vér á hverjum morgni fundið vorn
daglega forða af himna-brauðinu.
Aðeins einn dagur í einu er vor, og
þann dag eigum vér að lifa Guði. Fyrir
þennan eina dag verðum vér að leggja öli
áform vor og ráðagjörðir í Krists hönd
með heils hugar þjónustu og varpa allri
áhyggju vorri og sorg á hann, sem ber
umhyggju fyrir oss. „Því að ég þekki
þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með
yður — segir Drottinn — fyrirætlanir til
heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður
vonarríka framtíð11. Jer. 29:11. „Fyrir
afturhvarf og rósemi skuluð þér frelsaðir
verða; í þolinmæði og trausti skal styrkur
yðar vera“. Jes. 30:15.
Ef þú vilt leita Drottins og á hverjum
degi snúa við til hans, ef þú kýs það, að
vera glaður og frjáls í Guði, og ef þú
kemur til hans með glöðu geði, hlýðir náð-
arröddu hans og ber ok Krists — ok hlýðni
og þjónustu — þá munu allar harmatölur
þínar hætta, allir erfiðleikar þínir hverfa,
og úr öllum hinum miklu vandamálum,
sem þú ert nú riðinn við, leyst verða.
, —E. G. W.
------------■☆■----------
Kærleiki Guðs til manna
„Sjáið hvílíkan kærleika Faðirinn hefir
auðsýnt oss, að vér skulum kallast Guðs
börn“. 1. Jóh. 3:1.
„Varpið allri áhyggju upp á hann, þvi
hann ber umhyggju fyrir yður“. 1. Pét.
5:7. „Guð er kærleikur". 1. Jóh. 4:8.
„Dýrðina, sem þú hefir gefið mér, hefi
ég gefið þeim, til þess að þeir séu eitt
eins og við erum eitt, ég í þeim og þú í
mér, svo skulu þeir vera fullkomlega sam-
einaðir, til þess heimurinn komist að raun
um, að þú hefir sent mig, og að þú hefir
elskað þá eins og þú hefir elskað mig“.
Jóh. 17:23.
Hvernig sýndi Guð kærleika sinn til
vor?
„Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf
sinn eingetinn son, til þess að hver sem