Stjarnan - 01.07.1954, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.07.1954, Blaðsíða 8
56 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa Ontario. Ritstjórn og afgreiSslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can. á hann trúir ekki glatist, heldur hafi ei- líft líf“. Jóh. 3:16. „í því birtist kærleikur Guðs á meðal vor, að Guð hefir sent sinn eingetinn son í heiminn, til þess að vér skyldum lifa fyrir hann“. 1. Jóh. 4:9. „Af því þekkjum vér kærleikann, að hann lét lífið fyrir oss“. 1. Jóh. 3:16. „í þessu er kærleikurinn, ekki að vér elskuðum Guð, heldur að han elskaði oss, og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir vorar syndir“. 1. Jóh. 4:10. ☆ ☆ ☆ Það er aðeins 8 klukkutímaferð frá París til Istanbul á Tyrklandi, en 20 klukkutíma ferð frá New York. ☆ ☆ ☆ Það er ekki þörf á því fyrir nokkurn mann að ákveða hvað hann mundi gjöra ef hann væri ríkur, hefði nógan tíma, góða mentun og þægilegar kringumstæður, heldur hitt, hvað hann vill gjöra við það, sem hann hefur. —MISSIONARY TIDINGS ☆ ☆ ☆ Á að gizka 50,000 Ameríkumenn sofa í Pullman svefnvögnum á hverri nóttu. ☆ ☆ ☆ Þegar menn koma til Guðs í bæn ættu þeir að koma eins og sjúklingar til læknis til að láta rannsaka sig, og svo fylgja ná- kvæmlega fyrirsögn þeirri, sem þeim er gefin. —NATIONAL VOICE ☆ ☆ ☆ Það eru tvær aðferðir, sem menn hafa er þeir biðja til Guðs, önnur er sú, að biðja um það sem þeir vilja fá, hin er að finna út hvað Guð vill þeir fái. —CHRISTIAN INDEX ☆ ☆ ☆ Fyrsta slökkvivél, sem gekk fyrir gufu- krafti var notuð í Cincinati, Ohio, árið 1853. Páfagaukur einn hefir verið í eign sömu fjölskyldunnar gegn um þrjá ættliði. Nú eru farin að sjást ellimörk á honum. Eftir því sem Mrs. Roy Lambrecht í Fremont, Nebraska, getur komist næst, er páfa- gaukurinn að minsta kosti 117 ára gamall. ☆ ☆ ☆ National Geographic Society segir, að hafskip geti gengið 2000 mílur upp eftir Amazon fljótinu, frá Atlantshafinu til Iquitos, Peru. ☆ \) ☆ ☆ Bells talsímafélag annast um fjóra fimtu af öllum talsímum Bandaríkjanna. ☆ ☆ ☆ Brezkur maður, O. A. Denly, fór nýlega yfir Alpafjöllin á reiðhjóli með þremur hjólum, sem knúð var áfram með véla- krafti. Denly hafði verið yfirmaður í sjó- hernum, en meiddist svo hann gat ekki gengið. ☆ ☆ ☆ Maður nokkur að nafni D. C. Culbertson hefir keypt eyju í Potomac-fljótinu fyrir 23,750 dollara. Eyjan er kölluð Jenkins eyja. Á henni er búgarður og 6 herbergja steinsteypuhús. Als er eyjan 250 ekrur að stærð. ☆ ☆ ☆ Bihar ríkið hefir haft hið versta flóð, sem komið hefir fyrir á Indlandi. Ríkið hefir 40 miljónir íbúa. Tvær miljónir urðu heimilislausir. Eyðilegging á uppskeru er metin að vera 120 miljónir dollara. ☆ ☆ ☆ Af öllum fuglum Evrópu og Norður- Ameríku virðist andarhaukurinn að vera sá hraðfleygasti. Hann getur flogið frá 165 til 180 mílur á klukkutíma. ☆ ☆ ☆ Árið sem leið seldi Cuba út úr landinu yfir tólf og hálfa miljón dollara virði af tóbakslaufum, vindlum og vindlingum, og það á aðeins fjórum mánuðum. ☆ ☆ ☆ Miami Beach, Florida, er einkennilegt þorp. Þar er enginn grafreitur, engin flug- vélastöð, engin járnbraut og engar verk- smiðjur. En það bendir á velmegun þorps- búa, að síðastliðin 20 ár hafa menn að tiltölu bygt þar á hverjum mánuði eitt veitingahús og fjórar byggingar, sem rúma margar fjölskyldur hver.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.