Stjarnan - 01.12.1956, Síða 3

Stjarnan - 01.12.1956, Síða 3
STJARNAN 91 Hvernig lýsir nútíma rithöfundur sannri iðrun? „Guðs andi bendir á vanþakklæti manns- hjartans þegar hann hefir lítilsvirt og hrygt frelsara sinn með því að hafna frelsun hans, svo syndarinn kemur iðrandi og niðurbrotinn til krossins. Jesús er særður að nýju með hverri synd sem framin er, og þegar vér lítum á hann sem vér höfum sært, þá hryggjumst vér yfir að hafa valdið honum sársauka með synd vorri. Þetta leiðir oss til að snúa frá synd? inni.“ D.A. Hvaða dæmi upp á sanna iðrun finnum vér í Biblíunni? „Af því hjarta þitt komst við og þú auð- mýktir þig fyrir Drotni þá þú heyrðir hvað ég hafði talað gegn þessum stað og hans innbyggjendum, að þeir skyldu verða að eyðileggingu og bölvan, og af því þú reifst þín klæði og grétst fyrir mér, þá hefi ég bænheyrt þig segir Drottinn . . . . þú skalt komast í þína gröf í friði.“ (Jósía konungur) 2. Kon. 22:19. Davíð — Sálm 51. „Miskunna mér Guð eftir þinni gæzku og afmá mínar yfir- troðslur eftir þinni miklu miskunnsemi. Þvo mig hreinan af minni misgjörð og hreinsa mig af minni synd. Ég þekki mína yfirtroðslu og mín synd er ætíð frammi fyrir mér.“ Job — Job 42:1.—6. „Þá anzaði Job Drotni og sagði: Því hefi ég viðbjóð á sjálfum mér og iðrast í dufti og ösku.“ ísrael á dögum Esra. Esra 10:1. „Og sem nú Esra bað og játaðist grátandi og féll fram fyrir framan Drottins hús safnaðist til hans mikill skari ísraelsmanna, karlar, konur og börn og grét þá fólkið mikilega.“ Hvaða tvenns konar iðrun nefnir Páll postuli? „Sú hrygð sem er eftir Guði aflar sálu- hjálplegrar betrunar sem enginn iðrast eftir, en veraldleg hrygð veldur dauða.“ Hvaða tvö dæmi höfum vér í Biblíunni upp á veraldlega hrygð eða falska iðrun? Balam — Mós. 22. kapítula, og Júdas, sem sveik Jesúm. Matt. 27. kap. Hvernig getum vér vitað hvort iðrun vor er sönn eða fölsk? „Sá sem felur yfirsjónir sínar mun ei verða lánsamur, en sá sem meðgengur þær og lætur af þeim mun miskunn hljóta.“ Orðskv. 28:13. Hvaða samband er milli sannrar iðrunar og svars upp á bæn? „Ef mitt fólk auðmýkir sig . . . . og þeir biðja og leita míns auglitis og snúa sér frá sínum vondu vegum, þá vil ég heyra í himninum.“ 2. Kron. 7:14. Hrygð eftir Guði leiðir oss til að hafna synd, og veitir oss fagnaðarríka reynslu, svo vér fáum bænum vorum svarað og öðlumst stöðugt nýjan kraft til að þjóna Guði. Hata ég synd af því hún stríðir á móti Guði? Hef ég sýnt í verkinu, með því að snúa frá syndinni, að ég í sannleika iðrast hennar? —S. T. ------------☆------------- „Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf sinn eingetinn son til þess að hver sem á hann trúir ekki glatist heldur hafi eilíft líf.“ Jóh. 3:16. ☆ ☆ ☆ „Hvers krefur Drottinn þinn Guð af þér nema þess, að þú óttist Drottinn þinn Guð, svo að þú gangir á öllum hans vegum, elskir hann og þjónir honum af öllu hjarta þínu, og haldir hans boðorð.“ ------------■☆■----------- Guð svarar spurningu mannsins Hef ég ábyrgð gagnvart Guði? „Þess vegna mun sérhver of oss standa Guði reikningsskap af sjálfum sér.“ Róm. 14:12. Veit Guð um alt sem ég aðhefst? „Engin skepna getur falist fyrir honum, en alt er opið og öndvert fyrir augum hans, sem vér hér tölum um.“ Hebr. 4:13. Er oss tilreiknuð synd? „Ritningin hefir innilokað alt undir synd.“ Gal. 3:22. Mun hann hegna fyrir syndina? „Laun syndarinnar er dauði.“ Róm. 6:23. „Hver sá maður sem syndgar hann skal deyja.“ Ez. 18:4. Hlýt ég þá að glatast? Guð „vill ekki að nokkur fyrirfarist heldur að allir komist til sinnisbetrunar.“ 2. Pét. 3:9. Hvernig get ég frelsast? „Trúðu á Drottinn Jesúm Krist, þá verður þú hólp- inn.“ Post. 16:31. Getur hann frelsað stórsyndara eins og

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.