Stjarnan - 01.12.1956, Qupperneq 8

Stjarnan - 01.12.1956, Qupperneq 8
96 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price Jl.OO a year. Publishers: The Can. Unlon Conferenoe of S. D. A., Oshawa Ontario. Ritstjórn og afgreiCslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can. veita óflekkað mannorð eins og að leiða á réttan veg þær, sem fallið höfðu fyrir freistingu. Að endingu bætir Mrs. Sangster við, er hún segir frá konu þessari: „Þegar ég hugsa um sjúklingana, sem hún heimsótti, hjartasorgir, sem hún hefir mýkt, trúnað- armál, sem hún hefir þagað yfir, heimilið, sem hún gjörði svo hamingjusamt, og alt annað gott, sem hún gjörði í kyrþey, þá er ég sannfærð um, að eina pundið hennar ber mikinn ávöxt fyrir Meistarann. —Sunday School Lesson Illustrator --------------☆------------- Hvernig notar þú frjálsræði þitt? Þú verður að taka ákvörðun þína um að verða lærisveinn Krists og fylgja honum ef þú vilt innganga í Guðs ríki. Það er ákvörðun eða ásetningur, sem þú verður að gjöra sjálfur, enginn getur gjört það fyrir þig. Ert þú frelsaður frá synd? Synd er lagabrot, yfirtroðsla Guðs boðorða, og minstu þess, að sá sem brýtur eitt boðorð er sekur við þau öll. Ef yþú óskar að ferðast til New York þá verður þú að fara ofan á járnbrautar- "'töðina, kaupa farseðil og fara inn í lest- ina sem fer til New York, eða þú verður að hafa annan nauðsynlegan undirbúning til að komast þangað. Óskin ein um að komast í Guðs ríki nægir ekki, þú verður að trúa á Jesúm Krist, að hann dó fyrir þínar syndir. Þú verður að gefa þig honum á vald ásetja þér og kjósa að fylgja honum, láta leiðast af hans orði og anda. Þetta er einstaklings ábyrgð sem enginn getur af þér létt. —D. L. M. ------------☆------------- Ein bílaverksmiðja þarf aðeins 28 klukkutíma til að framleiða fullgjörðan automobíl. „Verið ekki fávísir heldur vísir" Það voru hinir ógleymanlegu dagar þegar Frakkland hafði sigrað óvini sína, þá skrifaði hermaður einn heim til sín og sagði: „Við höfum verið á hraðri ferð og mætt mörgum þýzkum, sem voru fagn- andi yfir því að vera teknir til fanga. Þeir voru orðnir svo þreyttir á stríðinu, þó voru einstakir meðal þeirra sem voru gramir og geðvondir. Einn þessara manna var særður mjög, svo hann þurfti að fá innsprauting af blóði og læknirinn sagði honum það. „Verður það Breta-blóð?“ spurði sjúkl- ingurinn. „Já, bezta tegund af brezku blóði“, sagði læknirinn, og bætti svo við mjög alvöru- gefinn: „Ef þú hafnar því þá deyr þú.“ „Ég vil þá heldur deyja,“ svaraði þýzk- arinn. Stuttu seinna var hann borinn út örendur. Alstaðar finnast tveir flokkar manna. Hinn fyrri veit að þeir eru dauðasekir og snúa sér til Krists til að fá fyrirgefning synda sinna og meðtaka gjöf eilífs lífs. En svo er annar flokkur manna, sem líkist hinum hrokafulla sjúklingi, sem áður er nefndur. Þeir vita að þeir eru glataðir syndarar. Þeir vita einnig að Jesús kom til að leita þess sem glatað var og frelsa það, en þeir hafna frelsun hans og van- rækja að leita hans sér til hjálpar. Hví- líkir heimskingjar. —X. X. ------------☆------------ Þella einiak, desember 1956, er hið sein- asia sem kemur úi af STJÖRNUNNI. Ég hef í liðugan f jórðung aldar hafi þá ánægju að vinna við blaðið. Nú er því starfi lokið. Innilegl hjartans þakklæii iil ykkar allra, sem á einn eða annan háii hafið léil undir með mér. Guð launi ykkur ali sem þið hafið unnið og gefið iil að flýia fluin- ingi fagnaðarerindisins nær og fjær úi um heiminn. Blessun Drollins hvíli yfir ykkur öllum. Mæiið mér í Guðs ríki, vinir mínir. —SIGRÍÐUR JOHNSON ------------------------- „Sá sem hefir soninn hefir lífið, sá sem ekki hefir Guðs son hefir ekki lífið.“ Jóh. 5:12.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.