Stjarnan - 01.12.1956, Síða 5

Stjarnan - 01.12.1956, Síða 5
STJARNAN 93 verðugir að standa frammi fyrir mannsins syni þegar hann kemur í dýrð sinni til að gefa sérhverjum eftir því sem hans verk verða. —C. L. TORREY -------------------------- Eftir 50 ár Martin Hover frá Binghamton, New York, hafði heimsótt borgina New York árið 1904. Næst þegar hann kom þangað var 1954. Hann talaði lítði um marglyftu byggingarnar, en honum varð starsýnt á bifreiðarnar. Þetta er auðskilið, því þegar hann kom til borgarinnar 1904 þá sá hann aðeins einn vagn, sem enginn hestur var fyrir, því hann var knúður áfram með rafmagni. Mr. Hover hafði verið trésmiður. Nú fékk hann ferðina til New York sem af- mælisgjöf, er hann var 100 ára gamall. Þrátt fyrir stutta dvöl í borginni, þá veitti hann nákvæma eftirtekt öllu sem fyrir augun bar. Sérstaklega vajð honum star- sýnt á bifreiðarnar', um þær sagði hann: „New York er ekki eins falleg nú eins og hún var árið 1904. Maður getur ekki séð borgina, hún er svo þakin bifreiðum. Hugsið yður allar þessar bifreiðar síðan.“ Þetta hraðfleyga tímabil, sem við lifum á, þar sem allir eru að flýta sér eins og líf liggi við, það var sagt fyrir í heilagri Ritn- ingu fyrir 2500 árum. Það er allt innifalið í áformi Guðs. „Og þú Daníel, geym þú spádóminn og innsigla bókina alt þar til endirinn kemur, þá munu margir rann- saka hann og verða vísari hins sanna.“ Dan. 12:4. Þegar þú undrast yfir bifreiðunum, flug- vélunum, járnbrautarlestunum og hinum mörgu rafmagnstækjum og alskonar nú- tíðar uppfyndingum, sem eru of margar til að nefna, þá minstu þess að alt þetta er uppfylling spádómanna. Um þúsundir ára fyrir vorn tíma var lítil eða engin framför í vísindum eða upp- götvunum. Jafnvel fyrir einum hundrað árum, þá lifðu menn og störfuðu á sama hátt og gjört var um margar liðnar aldir. Menn notuðu samskonar verkfæri og áður, unnu og ferðuðust á svipaðan hátt og for- feður þeirra. Svo varð breyting alt í einu. Það var eins og íbúar heimsins vöknuðu af dvala og nýtt tímabil rann upp. Þetta var tími endisins, þegar þekkingin átti að vaxa og menn ferðast með hraða aftur á bak og áfram. Menn uppgötvuðu alskonar vísindi, bjuggu til áhöld til að létta vinn- una og flýta henni. Samgöngur urðu fljót- ar og greiðfærar. Framfarir eru undraverðar. Guð veitti mönnum vizku og skilning. Hann hafði vissan tilgang með að flýta samgöngum vorra daga. Jesús sagði að eitt táknið upp á nálægð tilkomu hans mundi verða útbreiðsla fagnaðarerindisins út um allan heim: „Kenningin um Guðs ríki mun um gjör- vallan heim boðuð verða til vitnisburðar fyrir öllum þjóðum og þá mun endirinn koma.“ Matt. 24:14. Trúboðar ferðast nú til yztu endimarka jarðar, þangað sem ómögulegt vár að kom- ast fyrir einum mannsaldri síðan. Ferða- tæki nútímans flýta fyrir flutningi fagnað- arerindisins út um allan heim og flytja mönnum þau fagnaðartíðindi að Jesús kemur bráðum. Innan skamms verður náðartíminn á enda. Menn munu halda áfram með vísindi og uppgötvanir, en slíkt kemur þeim að engu gagni á degi dómsins. Dýrðarljómi Krists verður eyðilegging fyrir þá, sem ekki hafa búið sig undir komu hans, hverr- ar þjóðar sem þeir eru. Þeir sem af Guðs náð eru frelsaðir fyrir trú á Jesúm Krist; og hafa látið stjórnast af Guðs lifandi orði og anda, þeir verða borgarar hins dýrðlega nýja heims, þar sem réttlætið mun búa. Til allra kemur í dag þessi áminning heilags anda: „Leitið Drottins meðan hann er að finna. Kallið á hann meðan hann er nátógur. Hinn óguðlegi láti af sinni breytni og illvirkinn af sinni hugsun og snúi sér til Drottins, þá mun hann misk- unna honum og til vors Guðs, því hann er fús á að fyrirgefa.“ Jes. 55:6.—7. —D. W. McKAY ------------------------- Hinar fyrstu 50 stúlkur munu útskrifast sem rafmagnsfræðingar frá skólanum í Semarang í Indónesíu þetta yfirstand- íandi ár.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.