Stjarnan - 01.12.1956, Síða 6

Stjarnan - 01.12.1956, Síða 6
94 STJARNAN Hvað myndi gerast ef við yrðum allir kristnir menn? „Við köllum okkur kristna menn, en mikið vantar á að við séum sannkristnir. Eigum við að athuga ofurlitla stund, hvaða breyting myndi verða hér á landi, ef við tækjum allir sinnaskiptum og yrðum sannkristnir menn? Fyrst af öllu yrði allt líf okkar miklu einfaldara. Minni íburður í mat og drykk, og minni lúxus í húsagerð og á ýmsum sviðum, og minni fátækt. Enginn myndi krefjast meira kaups en sanngjarnt er og nauðsynlegt til sæmilegrar afkomu í ein- földu lífi. Dýrtíð myndi minnka og hagur þjóðarinnar stórbatna. — Allir myndu vinna af stakri trúmennsku og dyggð, eins og drottinn ætti í hlut en ekki maður, at- vinnuvegir þjóðarinnar myndu bera sig ágætlega og blómgast ríkulega. Skatta- iöggjöf myndi þá verða réttlát og skattsvik hverfa. Fjársvik, okur og gróðabrall myndi hverfa gersamlega. Stéttabarátta og flokkarígur myndi líða undir lok, allur rógur og allt níð í ræðu og riti myndi hverfa, en sannleikur og hreinskilni í kærleika verða ráðandi í öllum viðskiptum manna og allri sambúð. Áfengisbölið myndi úr sögunni Fleira markvert myndi gerast. Allt áfengisböl væri þá líka úr sögunni. Enginn sannkristinn maður fengist til að selja áfengi, og engin sannkristin þjóð myndi láta sér detta slíkt í hug. Enginn myndi byrla öðrum slíkan eiturdrykk og enginn sannkristinn maður neyta hans. Slíkan böl- vald, sem áfengið er, sem rænir menn dóm- greind og viti en leiðir til glæpa, slysa og eymdar, myndi enginn sannkristinn maður styðja á neinn hátt. Þá myndu menn og kynda víða bjarta elda og bera þangað allan versta sora bóka og blaða, bera á elda öll glæpa- ritin, sorpblöðin og klámritin, hreinsa þjóð- félagið gersamlega af þessum óþverra, sem auðnuleysingjar framleiða og selja til ræktunar spillingu og glæpa. Og sama veg myndu kvikmyndaauglýsingar fara, sem nú saurga glugga og húsveggi bæja og • borga, þar sem daglega blasir við upp- vaxandi kynslóð glæpalíf og siðspilling. Við myndum þá allir lifa hreinu lífi. Kvíði, sem uppetur menn, væri þá einnig úr sögunni. Hreint líf á öllum sviðum myndi stórbæta heilsufar manna og menn verða andlega og líkamlega heilir. Mesta ánægju myndu menn finna í dag- legum skyldustörfum og því, að rækja þau af alúð og trúmennsku. Vinnusvikin gætu þá ekki átt sér stað, og enginn yrði frá vinnu sökum óreglu. Þetta myndi mjög bæta hag þjóðarinnar og hver maður una hag sínum hið bezta í friðsömu þjóðfélagi, grundvölluðu á réttlæti og kærleika. Hugsunarháffur og orðbragð Allir myndu þá kosta kapps um að breyta samkvæmt hegðunarskrá kristn- innar, og skulu talin hér aðeins nokkur ákvæði hennar. Fyrst er þá ákvæðið um hugsunarhátt og orðbragð: „Nú er þér hafið lagt af lygina, þá talið sannleikann hver við sinn náunga. Látið ekkert svívirðilegt orð líða yður af munni, heldur það eitt, sem er gott til uppbyggingar.........Látið hvers konar beiskju, ofsa, reiði, hávaða og lastmæli vera fjarlægt yður og alla mannvonzku yfirleitt, en verið góðviljaðir hver við annan, miskunnsamir, fúsir til að fyrir- gefa hver öðrum“. „Skuldið ekki neinum neitt nema það eitt, að elska hver annan“. Þetta er góður leiðarvísir í viðskiptum. „Gerið allt án mögls og efablendni“, Þannig skal gengið að hverju verki og það unnið. „Gerið ekkert af eigingirni né hégóma- girnd, heldur metið með lítillæti hver annan meira en sjálfan sig“. Þetta gildir um allt félagslíf. Á einu mesta vandamáli manna er á- kvæði kristninnar örugg lausn: „Ef vér höfum fæði og klæði, þá látum oss það nægja. En þeir, sem ríkir vilja verða, falla í freistni og snörur og marg- víslegar fýsnir og skaðlegar, er sökkva mönnum niður í tortíming og glötun, því að fégirndin er rót alls þess, sem illt er“. Heilsa og líkamsrækt Um heilsusamlegt líf og líkamsrækt er meðal annars þetta ákvæði:

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.