Stjarnan - 01.12.1956, Blaðsíða 7

Stjarnan - 01.12.1956, Blaðsíða 7
STJARNAN 95 „Svo áminni ég yður, bræður, að þér vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram líkami yðar að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn, og er það skynsamleg guðsdýrkun af yðar hendi. Hegðið yður eigi eftir þessari öld, heldur takið háttaskipti með endur- nýjungu hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna“. „Hvort sem þér því etið eða drekkið, eða hvað helzt sem þér gerið, þá gerið það allt Guði til dýrðar“. „Framgöngum sómasamlega eins og á degi, ekki í ofáti né ofdrykkju“. Viðvíkjandi einum mesta skaðvaldi mannlegrar vellíðunar — áhyggjunum, gildir þetta: „Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gerið 1 öllum hlutum óskir yðar kunnugar Guði með bæn og beiðni ásamt jjakkargerð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skiln- ingi, mun varðveita hjörtu yðar og hugs- anir í samfélaginu við Krist Jesúm“. F r iðar boðskapur Svo eru hin altæku ákvæði: „Allt sé hjá yður í Kærleika gert. Elskan sé flærðar- laus, hafið andstyggð á hinu vonda, en haldið fast við hið góða. Verið í bróður- kærleikanum ástúðlegir hver við annan og verið hver öðrum fyrri til að veita hin- um virðingu“. „Allt sem þið viljið, að aðrir menn geri yður, það/skuluð þér og þeim gera“. „Slíðra þú sverð þitt“. — Þetta er hið konunglega boð til stríðandi þjóða heims- ins og hin eina raunhæfa friðarhreyfing. Kristur er betri fyrirmynd og leiðtogi en allir „isma“höfundar nútímans. Honum valdi spámaðurinn heitið „friðarhöfðingi“. — Kveðjuorð hans til lærisveinanna voru: „Frið læt ég eftir hjá yður, minn frið gef ég yður“. — „Hann er vor friður“. — „Friður sé með yður“, var kveðjuávarp hans. Siðaboð kristninnar eru róttækari og betri en allar lagabækur heimsins. Hvað myndi gerast hér, ef við yrðum allir kristnir menn? Eigum við að gera tilraun? —EINING ------------☆------------ Cairo á Egyptalandi lagði 140,000 nýja talsímavíra árið 1955 Eina pundið hennar Margaret Sangster segir frá konu einni, sem var hvorki ung, falleg né hraust, ómentuð og ekki sérlega fullkomin. Hún giftist. Hún, fann til þess hve mjög hún stóð neðar manni sínum, sem var vel gef- inn mikilhæfur maður. „Ég hef ekki einu sinni eitt pund, sem ég get vafið innan í sveitadúk,“ sagði hún. En maður hennar elskaði hana og hún elskaði hann og ásetti sér með Guðs hjálp að gjöra hann hamingjusaman. „Það er þó eitt, sem gleður mig. Ég get gjört hús- verk,“ hugsaði hún með sér. Hún mat- reiddi góðar, nærandi og lystugar mál- tíðir, og hélt húsinu hreinu, þó ekki alveg skínandi. Það var aðlaðandi fyrir mann hennar að koma þreyttur heim að hvíla sig og fylla alt upp með bókum og blöðum. Þegar hann kom heim með verk sitt frá skrifstofunni, þá sat hún hjá honum með bros á vörum og vingjarnlegt orð til hans, ef hann leit upp. Einn dag sagði maður hennar við hana: „Þú hefir eitt pund fram yfir alla aðra í beiminum, elskan mín, þú hefir ætíð nógan tíma til alls.“ Heimili hans var eins og útjaðar Paradísar. Þaðan fór hann til að mæta samkepni og skyldum lífsins, og gekk alt vel, hvað sem hann tók sér fyrir hendur, Kyrláta konan hans, sem hafði tíma til að elska hann, taka þátt í áhuga- málum hans, hlusta á ráðagjörðir hans og gjöra hann hamingjusaman átti vissulega meiri þátt í velgengni hans heldur en hann vissi. Það er sjaldgæft á þessum tímum að finna manneskju, sem er fullkomlega ró- leg, sem getur með þolinmæði hlustað á aðra, glaðst með glöðum og hryggst með hryggum. Þessi kona varði sínu eina pundi vel. Hún varð til mikillar bfessunar í fé- lagslífi þorpsins. Hún kendi mörgum stúlkum í bekk hvíldardagaskólans. Við og við hafði hún skemtun og veitingar fyrir verksmiðjustúlkur þorpsins, sem voru bæði þreyttar og fátækar. Með um- hyggju sinni, vináttu og kristilegu eftir- dæmi verndaði hún þær frá skaðlegum íélagsskap. Hún áleit eins mikið kristin- dómsstarf að hjálpa stúlkunum að varð-

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.