Fréttablaðið - 18.02.2019, Qupperneq 2
Veður
Norðan 10-18 m/s fyrri part dags,
hvassast SA-til, og éljagangur,
en léttskýjað sunnan heiða.
SJÁ SÍÐU 18
Grjótglíma
Þessi unga stúlka spreytti sig á erfiðri klifurleið á Íslandsmeistaramótinu í klifri
sem fram fór í húsakynnum Klifurfélags Reykjavíkur í gær. Einbeitingin skein úr
augum hennar eftir því sem hún fikraði sig ofar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGURARI
Gul Gata
skerpingehf.is þjónusta við tré- og málmiðnað í 36 ár
og
fræsi-
hausar
fyrir
tré
Formfræsitennur
VIÐSKIPTI Stjórn-
endur WOW air
hafa beðið um
frest fram í miðj-
an mars til að
gera upp ógreidd
lendinga- og far-
þegagjöld á erlendum
flugvöllum, samkvæmt heimildum
Túrista, en vefurinn greindi fyrst
frá málinu. Skúli Mogensen, for-
stjóri WOW, vildi ekkert tjá sig um
málið við fjölmiðla í dag.
Í frétt Túrista segir að flugfélagið
hafi sent bréf til viðkomandi f lug-
valla þar sem kemur fram að félag-
ið óski eftir vilyrði fyrir því að
notendagjöld f lugfélagsins verði
greidd í næsta mánuði en ekki nú í
lok febrúar eins og ráð var gert fyrir.
Þá kemur fram að erfitt sé að
leggja mat á upphæðirnar en bent
er á að notendagjöld WOW air á
Kef lavíkurf lugvelli, fyrir janúar,
hafi verið á bilinu 250 til 300 millj-
ónir króna.
Í lok febrúar mun fresturinn
sem eigendur skuldabréfa í WOW
air veittu Indigo Partners og Skúla
Mogensen til að ná samkomulagi
um kaup félagsins á stórum hluta í
íslenska flugfélaginu renna út. Upp-
lýsingar hafa ekki fengist um stöðu
viðræðnanna en gert er ráð fyrir
því að flugfélagið sendi yfirlýsingu
um stöðuna í síðasta lagi þann 28.
febrúar.
Auk þess er ekki ljóst hvort WOW
verði heimilt að hætta við tólf ára
leigusamning á fjórum nýjum Air-
bus A330 breiðþotum, en leiguverð
á einni slíkri er hátt í 100 milljónir
króna á mánuði og eru tvær þotur
af fjórum nú tilbúnar með merkj-
um WOW við verksmiðju Airbus
í Frakklandi. WOW gæti þurft að
greiða á bilinu 300 til 500 milljónir
króna til að losna undan leigusamn-
ingi á hverri og einni breiðþotunni
og því um umtalsverðar upphæðir
að ræða. – oaeg
WOW air
óskar eftir
greiðslufresti
Fleiri myndir af mótinu er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
VIÐSKIPTI Pálmi Haraldsson, fjár-
festir og fyrrverandi eigandi Fons,
er orðinn stærsti einstaki einkafjár-
festirinn í hluthafahópi Icelandair
Group með rúmlega eins prósents
eignarhlut. Þrjú félög í eigu Pálma,
sem var áður aðaleigandi flugfélags-
ins Iceland Express, áttu samanlagt
um 51,3 milljónir hluta, jafnvirði
um 423 milljóna króna miðað við
núverandi gengi bréfa Icelandair, í
lok síðustu viku, samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins.
Eignarhlutur Pálma í Icelandair
er meðal annars í gegnum eignar-
haldsfélögin Sólvöll og Ferðaskrif-
stofu Íslands en það fyrirtæki rekur
ferðaskrifstofurnar Sumarferðir,
Úrval Útsýn og Plúsferðir. Pálmi
var á sínum tíma stór hluthafi í Icel-
andair og sat í stjórn flugfélagsins á
árunum 2003 og 2004.
Samkvæmt heimildum blaðsins
mun Þórunn Reynisdóttir, forstjóri
Úrvals Útsýnar, bjóða sig fram til
stjórnar á aðalfundi f lugfélagsins
sem fer fram 8. mars næstkomandi
og nýtur stuðnings Pálma. Þórunn
starfaði um árabil hjá Icelandair,
meðal annars sem stöðvarstjóri
í Kaupmannahöfn og hótelstjóri
Hótels Loftleiða. Ljóst er
að breytingar verða á
stjórn Icelandair en af
sitjandi stjórnarmönnum
félagsins hefur Ásthildur Mar-
grét Otharsdóttir, sem hefur verið
stjórnarmaður frá árinu 2012,
ákveðið að gefa ekki áfram kost á
sér í stjórn.
Stærsti hluthafi Icelandair er Líf-
eyrissjóður verslunarmanna með
um 14 prósenta hlut en saman-
lagt eiga íslensku lífeyrissjóðirnir
meira en helmingshlut í félaginu.
Innlendir einkafjárfestar hafa hins
vega r löng u m
verið hverfandi
í hluthafahópi
Icelandair. Á lista
yfir tuttugu stærstu hluthafa félags-
ins er þar núna aðeins að finna fjár-
festingafélagið Væntingu, sem er í
eigu Bláa lónsins, með eins prósents
hlut og þá eiga félög í eigu Pálma
sem fyrr segir samtals um 1,03
prósenta hlut. Eignarhaldsfélagið
Traðarhyrna, sem er meðal ann-
ars í eigu Samherja og viðskiptafé-
laganna Finns Reyrs Stefánssonar
og Tómasar Kristjánssonar, átti um
skeið nærri tveggja prósenta hlut í
Icelandair í gegnum safnreikning
hjá Kviku banka en óljóst er hversu
stór hlutur félagsins er í dag.
Rekstur Icelandair Group gekk
erfiðlega á síðasta ári og nam tap
félagsins 55,6 milljónum Banda-
ríkjadala, jafnvirði um 6,7 milljarða
króna. Þá dróst EBITDA félagsins –
afkoma fyrir afskriftir, fjármagns-
liði og skatta – verulega saman á
milli ára og var 76,5 milljónir dala
borið saman við 170 milljónir dala
árið 2017.
Hlutabréfaverð Icelandair hefur
lækkað um 14 prósent frá áramót-
um og stendur nú í 8,25 krónum á
hlut. Markaðsvirði félagsins er um
41 milljarður. hordur@frettabladid.is
Pálmi í hópi stærstu
fjárfesta í Icelandair
Pálmi Haraldsson er orðinn stærsti einkafjárfestir í hlutahafahópi Icelandair.
Hlutur hans metinn á 423 milljónir króna. Þórunn Reynisdóttir býður sig
fram í stjórn flugfélagsins og hefur stuðning Pálma. Aðalfundur er 8. mars.
51,3
milljónir hluta í flugfélaginu
eru í félögum í eigu Pálma.
TÆKNI Það er góð tilfinning að spila
í einni stærstu tölvuleikjakeppni
heims, segir Finnbjörn Jónasson,
atvinnumaður í tölvuleiknum
Overwatch. Lið hans, Paris Eternal,
keppir nú í fyrsta sinn í atvinnu-
mannadeildinni Overwatch League
en annað tímabil deildarinnar hófst
um helgina. Parísarmenn unnu þá
stórsigur á meistaraliði síðasta árs,
London Spitfire.
„Við spiluðum okkar leik og
stóðum okkur mjög vel. Overwatch
League er ein stærsta tölvuleikja-
keppni í heiminum svo það er góð
tilfinning að spila í henni.“ – þea
Íslendingur
vann meistara
í Overwatch
Finnbjörn
Jónasson,
atvinnumaður
í tölvuleiknum
Overwatch.
Pálmi sat í stjórn Icelandair á árunum 2003 og 2004. MYND/KIM NIELSEN
1 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
7
-D
1
1
0
2
2
5
7
-C
F
D
4
2
2
5
7
-C
E
9
8
2
2
5
7
-C
D
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K