Fréttablaðið - 18.02.2019, Page 9
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust™
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Tímarnir eru áhuga-verðir. Á sama tíma og maður upp-lifir það að kynin séu stundum við það að fara endanlega í hár
saman, og maður skynjar veröld-
ina endrum og eins sem einhvers
konar kynjastríð, þá virðist þögul
og mögnuð bylting eiga sér stað
undir niðri. Við erum að upp-
lifa þá tíma, að hin hefðbundni
dilkadráttur mannkyns í karla
og konur er að verða í meira lagi
óskýr. Sífellt f leiri vilja ekki bera
þá takmörkuðu kynjamerkimiða
sem samfélagið úthlutar. Á sama
tíma og hefðbundnu kynin kýta,
er því að molna undan tilveru
þeirra. Nýjustu tíðindin í þessum
efnum eru þau, að forsætisráð-
herra hyggst leggja fram frumvarp
um kynrænt sjálfræði og flugfélög
úti í heimi eru farin að opna fyrir
skráningu á mun fleiri kynjum
heldur en bara karli og konu.
Sem áhugamanni um hrun
hugtakakerfa verð ég að segja að
mér finnst þetta ferlega bitastætt.
Frumvarp forsætisráðherra gerir
ráð fyrir að gerður verði skýr
greinarmunur á kynlegum ein-
kennum — eins og þeim að mann-
eskja sé með typpi — og hins vegar
kyni. Fólk, hvernig sem það er úr
garði gert líkamlega, mun öðlast
rétt til þess að skrá sig sem það
kyn sem því sýnist. Og þá líka sem
ekkert kyn.
Litaskalinn
Ég fagna þessu. Ég hef lengi verið
þeirrar skoðunar að veröldin
sé ekki svarthvít. Ég á í miklum
erfiðleikum með þessa stóru
merkimiða sem eru notaðir í
umræðunni, til þess að skipta fólki
upp í alls konar risastóra hópa sem
eiga sér í raun ákaflega litlar stoðir
í raunveruleikanum. Mannkynið
skiptist ekki í karla og konur, nema
á einhvern fáránlega takmarkaðan
og þýðingarlítinn hátt. Veröldin
er litaskali. Allir eru bæði karl og
kona, eða hvorugt, í mismiklum
mæli. Allir eru sérstakir. Fyrst og
fremst erum við einstaklingar,
hver með einstaka reynslu og
einstaka manngerð. Kannski væri
best af öllu að afnema skráningu
á kyni algjörlega? Hvaða þýðingu
hefur hún í raun?
Allir vita
Ég skil þá spurningu eftir í loftinu.
Hliðarnar á þessu eru margar og
vangavelturnar óteljandi. Sam-
kvæmt frumvarpinu getur karl
orðið ófrískur og fætt barn, enda
með kynleg einkenni til þess. Og
kona getur gert það sem „karlar“
hafa hingað til bara gert: Slegist á
sveitaböllum og átt erfitt með að
hafa stjórn á vindgangi snemma á
morgnana.
Er ástæða til að hafa áhyggjur?
Fer ekki allt í kalda kol og enginn
veit lengur í hvaða búningsklefa
hann/hún/það á að fara í sund-
laugunum? Verða kannski margir
búningsklefar? Og lendir fólk sem
ber augljós einkenni karla, eins og
sítt skegg, skósíðan pung, fílseyru
og nefhár, ekki í vandræðum á
landamærum þeirra ríkja sem eru
meira í boxinu en við, þegar það
sýnir vegabréf sem segir að það sé
kona?
Jú jú, kannski. Kannski verður
alls konar vesen og margir verða
ringlaðir í kollinum við að reyna
að fatta öll þessi kyn, og að kyn sé
ekki lengur tengt hvaða kynfæri
manneskja er með, og svo fram-
vegis. En svona er þetta: Það er
langt síðan allir vissu að mann-
eskja sem fæddist með pung væri
ekki endilega karl. Og það er langt
síðan allir vissu að manneskja með
leg væri ekki endilega kona.
Meiri svona víðsýni
Hér stendur til að aðlaga lögin
veruleikanum. Það er gleðiefni.
Fólk fær að vera það sjálft. Um
leið og ég gleðst yfir þessu get ég
þó ekki orða bundist yfir öðru.
Ég get ekki neitað því að ég vildi
óska þess að álíka framsækni og
víðsýni gætti á öðrum sviðum. Að
byltingar tíðarandans rötuðu inn í
aðra mikilvæga lagabálka líka. Ég
ætla að nefna tvennt.
Það mun skjóta skökku við,
hljóti frumvarpið brautargengi,
að fólk sem breytt hefur kynja-
skráningu sinni muni ekki vera
sjálfráða um það að velja sér sitt
eigið nafn. Við hljótum að leggja
niður mannanafnanefnd. Það er
varla lagaleg kvöð nokkurs háns
að viðhalda íslenskri nafnahefð.
Nefndin mun falla saman um leið
og umsagnir um nöfn í hvorug-
kyni fara að berast henni í stríðum
straumum. Hver getur mótmælt
nöfnum eins og Sólskin eða Blóm?
Hitt er svo þetta: Megi þessi
hressandi víðsýni, þessi fagri
vilji ríkisstjórnarinnar til þess að
horfast í augu við breytta veröld
og aðlaga lögin að henni, verða til
þess að löggjafinn drífi loksins í
því að breyta líka barnalögum. Í
þeim er sú blekking höfð að grund-
vallaratriði að börn skuli einungis
búa á einu heimili, en allir vita að
þau búa ákaflega oft á tveimur. Ef
löggjafinn getur viðurkennt mörg
kyn, og að karl geti verið ófrískur,
hlýtur hann að geta viðurkennt
þetta líka og breytt lögum til sam-
ræmis við veruleikann í öllum
sínum margbreytileika.
Alls kyns kyn
Fer ekki allt í kalda kol og
enginn veit lengur í hvaða
búningsklefa hann/hún/það
á að fara í sundlaugunum?
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
1
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
5
7
-E
4
D
0
2
2
5
7
-E
3
9
4
2
2
5
7
-E
2
5
8
2
2
5
7
-E
1
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K