Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.02.2019, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 18.02.2019, Qupperneq 9
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Hlustaðu á hjartað þitt Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði – sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Beltone Trust™ Guðmundur Steingrímsson Í DAG Tímarnir eru áhuga-verðir. Á sama tíma og maður upp-lifir það að kynin séu stundum við það að fara endanlega í hár saman, og maður skynjar veröld- ina endrum og eins sem einhvers konar kynjastríð, þá virðist þögul og mögnuð bylting eiga sér stað undir niðri. Við erum að upp- lifa þá tíma, að hin hefðbundni dilkadráttur mannkyns í karla og konur er að verða í meira lagi óskýr. Sífellt f leiri vilja ekki bera þá takmörkuðu kynjamerkimiða sem samfélagið úthlutar. Á sama tíma og hefðbundnu kynin kýta, er því að molna undan tilveru þeirra. Nýjustu tíðindin í þessum efnum eru þau, að forsætisráð- herra hyggst leggja fram frumvarp um kynrænt sjálfræði og flugfélög úti í heimi eru farin að opna fyrir skráningu á mun fleiri kynjum heldur en bara karli og konu. Sem áhugamanni um hrun hugtakakerfa verð ég að segja að mér finnst þetta ferlega bitastætt. Frumvarp forsætisráðherra gerir ráð fyrir að gerður verði skýr greinarmunur á kynlegum ein- kennum — eins og þeim að mann- eskja sé með typpi — og hins vegar kyni. Fólk, hvernig sem það er úr garði gert líkamlega, mun öðlast rétt til þess að skrá sig sem það kyn sem því sýnist. Og þá líka sem ekkert kyn. Litaskalinn Ég fagna þessu. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að veröldin sé ekki svarthvít. Ég á í miklum erfiðleikum með þessa stóru merkimiða sem eru notaðir í umræðunni, til þess að skipta fólki upp í alls konar risastóra hópa sem eiga sér í raun ákaflega litlar stoðir í raunveruleikanum. Mannkynið skiptist ekki í karla og konur, nema á einhvern fáránlega takmarkaðan og þýðingarlítinn hátt. Veröldin er litaskali. Allir eru bæði karl og kona, eða hvorugt, í mismiklum mæli. Allir eru sérstakir. Fyrst og fremst erum við einstaklingar, hver með einstaka reynslu og einstaka manngerð. Kannski væri best af öllu að afnema skráningu á kyni algjörlega? Hvaða þýðingu hefur hún í raun? Allir vita Ég skil þá spurningu eftir í loftinu. Hliðarnar á þessu eru margar og vangavelturnar óteljandi. Sam- kvæmt frumvarpinu getur karl orðið ófrískur og fætt barn, enda með kynleg einkenni til þess. Og kona getur gert það sem „karlar“ hafa hingað til bara gert: Slegist á sveitaböllum og átt erfitt með að hafa stjórn á vindgangi snemma á morgnana. Er ástæða til að hafa áhyggjur? Fer ekki allt í kalda kol og enginn veit lengur í hvaða búningsklefa hann/hún/það á að fara í sund- laugunum? Verða kannski margir búningsklefar? Og lendir fólk sem ber augljós einkenni karla, eins og sítt skegg, skósíðan pung, fílseyru og nefhár, ekki í vandræðum á landamærum þeirra ríkja sem eru meira í boxinu en við, þegar það sýnir vegabréf sem segir að það sé kona? Jú jú, kannski. Kannski verður alls konar vesen og margir verða ringlaðir í kollinum við að reyna að fatta öll þessi kyn, og að kyn sé ekki lengur tengt hvaða kynfæri manneskja er með, og svo fram- vegis. En svona er þetta: Það er langt síðan allir vissu að mann- eskja sem fæddist með pung væri ekki endilega karl. Og það er langt síðan allir vissu að manneskja með leg væri ekki endilega kona. Meiri svona víðsýni Hér stendur til að aðlaga lögin veruleikanum. Það er gleðiefni. Fólk fær að vera það sjálft. Um leið og ég gleðst yfir þessu get ég þó ekki orða bundist yfir öðru. Ég get ekki neitað því að ég vildi óska þess að álíka framsækni og víðsýni gætti á öðrum sviðum. Að byltingar tíðarandans rötuðu inn í aðra mikilvæga lagabálka líka. Ég ætla að nefna tvennt. Það mun skjóta skökku við, hljóti frumvarpið brautargengi, að fólk sem breytt hefur kynja- skráningu sinni muni ekki vera sjálfráða um það að velja sér sitt eigið nafn. Við hljótum að leggja niður mannanafnanefnd. Það er varla lagaleg kvöð nokkurs háns að viðhalda íslenskri nafnahefð. Nefndin mun falla saman um leið og umsagnir um nöfn í hvorug- kyni fara að berast henni í stríðum straumum. Hver getur mótmælt nöfnum eins og Sólskin eða Blóm? Hitt er svo þetta: Megi þessi hressandi víðsýni, þessi fagri vilji ríkisstjórnarinnar til þess að horfast í augu við breytta veröld og aðlaga lögin að henni, verða til þess að löggjafinn drífi loksins í því að breyta líka barnalögum. Í þeim er sú blekking höfð að grund- vallaratriði að börn skuli einungis búa á einu heimili, en allir vita að þau búa ákaflega oft á tveimur. Ef löggjafinn getur viðurkennt mörg kyn, og að karl geti verið ófrískur, hlýtur hann að geta viðurkennt þetta líka og breytt lögum til sam- ræmis við veruleikann í öllum sínum margbreytileika. Alls kyns kyn Fer ekki allt í kalda kol og enginn veit lengur í hvaða búningsklefa hann/hún/það á að fara í sundlaugunum? S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 1 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 5 7 -E 4 D 0 2 2 5 7 -E 3 9 4 2 2 5 7 -E 2 5 8 2 2 5 7 -E 1 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.