Fréttablaðið - 18.02.2019, Page 12
Þeir eru í fullum
rétti til þess að
krefjast greiðslunnar eins og
þeir hafa gert.
Páll Kristjánsson hæstaréttar
lögmaður
Audi Q7 e-tron er umhverfismildur
tengiltvinnbíll sem sameinar krafta
dísilvélar og rafmagnsmótors með
drægni allt að 56 km. (skv. NEDC).
Verð frá 10.990.000 kr.
Audi Q7 e-tron quattro
Rafmagnaður
Eigum nokkra Audi Q7 e-tron quattro
hlaðna aukahlutum á einstöku tilboðsverði.
Til afhendingar s
trax!
FÓTBOLTI Knattspyrnuheimurinn
er enn að syrgja fráfall argentínska
framherjans Emiliano Sala sem lést
í janúar síðastliðnum þegar lítil
f lugvél sem hann var um borð í
hrapaði í Ermarsund. Sala var 28 ára
þegar hann lést. Lík hans fannst 6.
febrúar en lík flugmannsins, Davids
Ibbotson, er enn ófundið.
Nú þegar sárin eru hægt og rólega
að gróa vakna upp ýmsar spurning-
ar um eftirmála þess þegar leikmað-
ur sem er nýgenginn úr einu félagi í
annað lætur lífið á leið sinni á nýjan
vinnustað.
Franska félagið Nantes, fyrr-
verandi vinnuveitandi Sala, hefur
gert kröfu á velska félagið Cardiff
City um kaupverðið á Argentínu-
manninum. Gengið hafði verið frá
félagaskiptum leikmannsins og því
var hann orðinn leikmaður Cardiff
sem hafði tekið yfir vátryggingar-
samning.
Enskir fjölmiðlar hafa greint frá
því að Cardiff hafi haft samband við
önnur félög í ensku úrvalsdeildinni
til að kanna hvort það geti komist
hjá því að greiða fullt kaupverð fyrir
Sala, sem var 15 milljónir punda.
Hann er dýrasti leikmaður í sögu
Cardiff sem landsliðsfyrirliðinn
Aron Einar Gunnarsson leikur með.
Flestir eru sammála um að það
hafi verið harðneskjulegt af Nan-
tes að senda Cardiff kröfubréf með
hótunum um innheimtuaðgerð svo
skömmu eftir hinn sorglega atburð.
Páll Kristjánsson, hæstaréttarlög-
maður og fyrrverandi knattspyrnu-
þjálfari, segir hins vegar að franska
félagið sé í fullum rétti til þess að
gera það.
„Ég man ekki eftir sambærilegu
máli þar sem leikmaður lætur lífið
þegar hann er ferðast frá sínu gamla
félagi til hins nýja eftir að hafa geng-
ið í gegnum félagaskiptin. Þarna
hafa Nantes og Cardiff City hins
vegar komist að samkomulagi um
kaupverð á Sala og leikmaðurinn
búinn að skrifa undir leikmanna-
samning við velska félagið,“ segir
Páll um málið.
„Þegar þannig er í pottinn búið þá
er hann orðinn leikmaður Cardiff
City sem hefur yfirtekið allar þær
skyldur sem því fylgja. Í raun bara
hefðbundið vinnuréttarsamband
þeirra á milli sem byggir á samningi
aðila. Af því leiðir að Nantes hefur
engar skyldur gagnvart leikmann-
inum og í þessu tilfelli þarf Cardiff
að tryggja sig fyrir öllu mögulegu
tjóni. Það kemur yfirleitt fram í
leikmannasamningi hvers leik-
manns hver vátryggingarfjárhæð
leikmannsins er og það er sam-
komulagsatriði hverju sinni milli
félagsins og vátryggingarfélags þess
hversu há möguleg vátryggingar-
fjárhæð er,“ segir hann enn fremur.
„Það skiptir engu máli í þessum
efnum hvort félagið það var sem
skipulagði og útvegaði ferðakost
leikmannsins. Af þeim sökum ætti
Cardiff að greiða Nantes það kaup-
verð sem samið var um og velska
félagið á svo mögulega kröfu á
vátryggingarfélag sitt fyrir þeirri
vátryggingarfjárhæð sem samið var
um að því gefnu að allt sé eðlilegt. Ég
get verið sammála þeim sem segja
að franska félagið hefði átti að fara
mildari og manneskjulegri leið við
innheimtu sína, en þeir eru í fullum
rétti til þess að krefjast greiðslunnar
eins og þeir hafa gert,“ sagði Páll um
líklega framvindu málsins.
„Það er svo spurning hvort annað
hvort UEFA eða FIFA ætti að hafa
einhvers konar fyrirkomulag sem
gerir það að verkum að félög verði
ekki fyrir f járhagslegum skaða
þegar svona lagað gerist. Ég veit ekki
alveg hvernig væri best að útfæra
það eða hvort það sé nauðsynlegt.
Annars eru félög almennt tryggð
fyrir þess konar tjóni, sérstaklega
þegar um svo háar fjárhæðir er að
ræða eins og í þessu tilfelli,“ segir
hann enn fremur.
hjorvaro@frettabladid.is
Harðneskjulegt en sanngjarnt
Emiliano Sala var á leið frá Nantes til Cardiff City þegar hann lést. Einn af þeim öngum sem þarf að leysa
í eftirmála þessa atburðar er hvort franska félagið eigi enn heimtingu á greiðslu fyrir leikmanninn.
Jarðarför Emiliano Sala fór fram í heimabæ hans í Argentínu, Progresio, á laugardaginn. Neil Warnock, knatt-
spyrnustjóri Cardiff City, og Ken Choo, framkvæmdastjóri félagsins, voru viðstaddir. NORDICPHOTOS/GETTY
Naumt tap í
bikarúrslitum
KÖRFUBOLTI Martin Hermanns-
son og félagar í Alba Berlin töpuðu
með minnsta mun fyrir Brose
Bamberg, 83-82, í úrslitaleik þýsku
bikarkeppninnar í körfubolta í gær.
Nikolaos Zisis tryggði Brose Bam-
berg sigurinn með þriggja stiga
körfu þegar tvær sekúndur lifðu
leiks.
Martin lék í 26 mínútur í bikarúr-
slitaleiknum. Hann skoraði sex stig
og gaf sex stoðsendingar. Martin
hitti úr tveimur af fimm skotum
sínum utan af velli og nýtti bæði
vítaskotin sín. – iþs
Martin og félagar með silfurmed-
alíur um hálsinn. NORDICPOTOS/AFP
Fyrsta tapið
kom í München
FÓTBOLTI Sara Björk Gunnarsdóttir,
landsliðsfyrirliði og Íþróttamaður
ársins 2018, var á sínum stað í byrj-
unarliði Wolfsburg sem tapaði
4-2 fyrir Bayern München í þýsku
úrvalsdeildinni í gær.
Þetta var fyrsta tap Wolfsburg í
deildinni á tímabilinu en liðið hefur
aðeins unnið einn af síðustu fjórum
deildarleik jum sínum.
Wolfsburg er með 35 stig
á toppi deildarinnar, jafn
mörg og Bayern en hag-
stæðari markatölu.
Sandra María Jessen
lék sinn fyrsta leik
fyrir Bayer Lever-
kusen sem steinlá,
6-0, fyrir Freiburg.
A k u rey r ing u r inn
var í byrjunarliði
Leverkusen og lék
f y rstu 62 mínút-
urnar. Leverkusen
er í ellefta og næst-
neðsta sæti deildar-
innar með tíu stig,
jafn mörg og Werder
Bremen en lakari
markatölu. – iþs
1 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
7
-C
C
2
0
2
2
5
7
-C
A
E
4
2
2
5
7
-C
9
A
8
2
2
5
7
-C
8
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K