Fréttablaðið - 18.02.2019, Side 39

Fréttablaðið - 18.02.2019, Side 39
LIND FASTEIGNASALA Auglýsir eftir fasteignasölum til starfa. Reynsla af sölu fasteigna skilyrði. Áhugasamir sendi tölvupóst og ferilskrá á hannes@fastlind.is Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ / Uppspretta ánægjulegra viðskipta Hlynur Halldórsson, Löggiltur fasteignasali Björt og falleg fjögurra herbergja endaíbúð á efstu hæð í þessu vinsæla fjölbýli misvæðis í Hafnarfirði, glæsilegt útsýni, tvennar svalir. Íbúðin er skráð 106,2 fm en þar af er mjög góð geymsla í snyrtilegri sameign 9,7 fm, vel staðsett sér stæði í upphitaðri bílageymslu innangengt. Verð 56.9 millj. Allar frekari uppls veitir Hilmar Þór Bryde löggiltur fasteigna- sali í síma 892-9694, hilmar@hraunhamar.is Hilmar Þór Bryde Lög iltur teignasali. Hringbraut 2a, 220 Hafnarfjörður Mjög góð eign miðsvæðis í bænum, fallegt útsýni. Opið hús: Mánudag 17:30-18:00 OPIÐ HÚS Bikarúrslit karla Stjarnan 84-68 Njarðvík (41-32) Stjarnan: Brandon Rozzell 30, Hlynur Bæringsson 13/14 fráköst, Antti Kanervo 11, Collin Pryor 9, Ægir Þór Steinarsson 8/8 stoðs. Filip Kramer 7, Tómas Þórður Hilmarsson 4, Magnús Bjarki Guð- mundsson 2. Njarðvík: Mario Matasovic 19, Jeb Ivey 12, Eric Katenda 11, Elvar Már Friðriksson 8/8 fráköst/7 stoðs., Logi Gunnarsson 7, Ólafur Helgi Jónsson 6, Kristinn Pálsson 3, Maciek Baginski 1, Snjólfur Marel Stefánsson 1. KÖ R F U B O LT I St jör nu mönnu m líður hvergi betur en í Laugardals- höllinni. Þar hafa þeir aldrei tapað leik og Höllin er vettvangur stærstu stundanna í körfuboltasögu Stjörn- unnar. Á laugardaginn vann Stjarnan sinn fjórða bikarmeistaratitil í karlaf lokki eftir sigur á Njarðvík, 84-68. Fyrsti bikarmeistaratitilinn vannst 2009 og Stjarnan hefur því orðið bikarmeistari fjórum sinn- um á síðustu ellefu árum. Aðeins KR (12), Njarðvík (8), Kef lavík (6) og Grindavík (5) hafa unnið f leiri bikarmeistaratitla en Stjarnan. Ekki amalegt hjá liði sem lék fyrst í efstu deild tímabilið 2001-02. Stjarnan réði ferðinni í bik- arúrslitaleiknum gegn Njarðvík og sigurinn var sanngjarn. Vörn Garðbæinga var lengst af afar öflug og hún lagði grunninn að sigrinum. Bakverðir Njarðvíkinga, þeir Jeb Ivey og Elvar Már Friðriksson, skor- uðu aðeins samtals 20 stig og nýttu fimm af 26 skotum sínum. Antti Kanervo skoraði aðeins eina körfu í leiknum en spilaði hörkuvörn á Ivey. Ægir Þór Steinarsson fékk svo það hlutverk að gæta hins eldfljóta Elvars og gerði það frábærlega. „Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég er að eltast við Elvar heilan leik og það er ekkert grín. Það þarf að hrósa Njarðvík, þeir spiluðu vel í dag og maður var alltaf á nálum að þeir tæku áhlaup og settu þrjá þrista í röð á okkur,“ sagði Ægir í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn. „Þeir eiga það til að snúa leikjum sér í hag með stemmingskörfum og við vorum meðvitaðir um það að halda áfram og sækja körfur í von um að slökkva á þeim,“ bætti Ægir við. Hann skoraði átta stig og gaf átta stoðsendingar í úrslitaleiknum. Liðsheild Stjörnunnar var sterk og fyrir utan kaf la í 3. leikhluta voru Garðbæingar með góða stjórn á leiknum. Mario Matasovic var eini Njarðvíkingurinn sem náði sér almennilega á strik í sókninni. Annað lokaði Stjörnuvörnin á. „Þetta var verðskuldað. Okkur tókst að gera þeim erfitt fyrir í öllum sóknaraðgerðum og halda vel aftur af bakvarðasveitinni þeirra. Það losnaði aðeins um Mario en okkar markmið var að gera Elvari erfitt fyrir. Að mínu mati getum við svo gott sem kæft lið varnarlega þegar við spilum okkar bestu vörn eða allavega gert þeim mjög erfitt fyrir,“ sagði Hlynur Bæringsson, fyrirliði Stjörnunnar. Hann skilaði sínu og gott betur; skoraði 13 stig og tók 14 fráköst. Hlynur varð einnig bikarmeistari með Snæfelli 2008 og 2010. Í Stjörnusókninni bar mest á Brandon Rozzell sem var valinn maður leiksins. Þessi 29 ára Banda- ríkjamaður skoraði 30 stig og setti niður fjölmörg stór skot. Arnar Guð- jónsson vissi alveg hvað hann var að gera er hann náði í Rozzell um ára- mótin enda störfuðu þeir saman hjá Svendborg Rabbits í Danmörku. Rozzell hefur reynst algjör happa- fengur fyrir Stjörnuna og gert gott lið enn betra. Stjörnumenn hafa unnið 14 leiki í röð í öllum keppnum og eru langt frá því að vera hættir. „Þetta gengur vel þessa dagana en við getum enn gert betur. Það eiga mörg lið eftir að bæta sig og við verðum að gera það líka ef við ætlum að vinna alla titlana. Við ætlum okkur að vinna alla þrjá,“ sagði Hlynur. ingvithor@frettabladid.is Óstöðvandi í Höllinni Frábær vörn skilaði Stjörnunni fjórða bikarmeistaratitlinum síðan 2009. Stjörnumenn hafa verið óstöðvandi að undanförnu en ætla ekkert að slaka á. Hundrað prósent árangur í Höllinni Karlalið Stjörnunnar í körfu- bolta hefur leikið fimm bikar- leiki í Laugardalshöllinni, fjóra úrslitaleiki og einn undanúr- slitaleik, og unnið þá alla. Stjarnan varð bikarmeistari í fyrsta sinn 2009 eftir sigur á KR, 78-76. Fjórum árum síðar varð Stjarnan bikarmeistari í annað sinn eftir sigur á Grindavík, 91- 79. Þriðji bikarmeistaratitilinn kom svo í hús 2015 eftir sigur á KR, 85-83. Á fimmtudaginn vann Stjarnan ÍR, 87-73, í undanúr- slitum bikarkeppninnar í Höll- inni og á laugardaginn bar liðið svo sigurorð af Njarðvík, 84-68, í úrslitaleiknum. – iþs Hlynur Bæringsson, fyrirliði Stjörnunnar, hefur bikarinn á loft eftir sigur Garðbæinga á Njarðvíkingum, 84-68, í úr- slitaleik Geysisbikars karla. Bikarhefð hefur skapast hjá Stjörnunni á síðustu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 15S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M Á N U D A G U R 1 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 HVER VANN? Sportið á frettabladid.is færir þér allar nýjustu fréttirnar úr heimi íþróttanna. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook 1 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 5 7 -D F E 0 2 2 5 7 -D E A 4 2 2 5 7 -D D 6 8 2 2 5 7 -D C 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.