Fréttablaðið - 13.02.2019, Side 10
Hveitibrauðsdagarnir búnir
Paris Saint-Germain vann 0-2 sigur á Manchester United í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi. Þetta var fyrsta
tap United undir stjórn Ole Gunnars Solskjær. Þetta var jafnframt fyrsti sigur fransks liðs á Old Trafford í Evrópukeppni. Presnal Kimpembe og
Kylian Mbappé skoruðu mörk PSG með sjö mínútna millibili í seinni hálf leik. Paul Pogba var rekinn af velli undir lok leiksins. NORDICPHOTOS/GETTY
Fram - ÍBV 39-27
Markahæstar: Þórey Rósa Stefánsdóttir 8,
Ragnheiður Júlíusdóttir 8/4, Unnur Ómars-
dóttir 8, Steinunn Björnsdóttir 8 - Ester
Óskarsdóttir 6, Ásta Björt Júlíusdóttir 5/1,
Greta Kavaliuskaite 5, Arna Sif Pálsdóttir 4.
Valur - Stjarnan 23-23
Markahæstar: Sandra Erlingsdóttir 5/3,
Lovísa Thompson 4, Díana Dögg Magnús-
dóttir 4, Íris Ásta Pétursdóttir 2 - Kristín
Guðmundsdóttir 10, Þórey Anna Ásgeirs-
dóttir 4, Elísabet Gunnarsdóttir 2.
Haukar - Selfoss 27-20
Markahæstar: Hekla Rún Ámundadóttir 6,
Berta Rut Harðardóttir 5/2, Maria Pereira
4, Berta Lind Jóhannsdóttir 4 - Hulda Dís
Þrastardóttir 5, Perla Ruth Albertsdóttir 5,
Sarah Sörensen 3, Carmen Palamariu 3.
Nýjast
Olís-deild kvenna
Meistaradeild Evrópu
16-liða úrslit
Man. Utd. - PSG 0-2
0-1 Presnel Kimpembe (53.), 0-2 Kylian
Mbappé (60.).
Rautt spjald: Paul Pogba, Man. Utd. (89.).
Roma - Porto 2-1
1-0 Nicolo Zaniolo (70.), 2-0 Zaniolo (76.),
2-1 Adrián López (79.).
KÖRFUBOLTI Það kemur í ljós í kvöld
hvaða lið leika til úrslita í Geysisbik-
ar kvenna í körfubolta. Þá mætast
annars vegar Breiðablik og Stjarnan
og hins vegar Valur og Snæfell. Ljóst
er að allavega eitt lið mun leika til
úrslita í keppninni í fyrsta skipti í
sögunni.
Valur, sem lék til úrslita árið 2013
og laut þá í lægra haldi fyrir Kefla-
vík, mætir Snæfelli sem er eina liðið
af þessum fjórum sem þekkir það að
vinna bikarmeistaratitil. Það gerðist
árið 2016. Þá var Baldur Þorleifsson
aðstoðarþjálfari Inga Þórs Steinþórs-
sonar, en nú er Baldur í brúnni hjá
Snæfellsliðinu.
„Það er mikill heiður að fá að stýra
Snæfelli í bikarúrslitum og það eru
forréttindi að fá að spila þennan leik.
Við erum að fara að leika við mjög
öf lugan andstæðing sem verður
erfitt að leggja að velli,“ segir Baldur
í samtali við Fréttablaðið um leikinn
í kvöld.
„Í þeim leikjum þar sem við höfum
farið eftir því leikplani sem sett
hefur verið upp hefur okkur gengið
vel. Þegar þú mætir jafn sterku liði
og Valur er, þá er ofboðslega mikil-
vægt að fara eftir leikplaninu. Það
verður lykillinn að sigrinum. Snæfell
er mikill körfuboltabær og ég er viss
um að bæjarbúar munu fjölmenna
og styðja okkur til sigurs.“
Valur mætir í þennan leik með
blússandi sjálfstraust, en liðið hefur
haft betur í síðustu tíu leikjum
sínum og fann síðast fyrir þeirri til-
finningu að tapa leik í lok nóvember
á síðasta ári. Guðbjörg Sverrisdóttir,
leikmaður Vals, segir hins vegar að
það verði dagsform og baráttuandi
sem muni ráða úrslitum.
„Ég er mjög spennt fyrir þessum
leik og það er fátt annað sem hefur
komist að í huga mér undanfarna
daga. Ég mæti til vinnu og reyni
að einbeita mér þar, en ég er mest-
megnis að hugsa um þennan leik og
leiðir til þess að vinna hann. Þetta
mun ráðast af því hvaða lið mætir
betur stemmt til leiks, nær upp betri
baráttu og hittir á betri dag. Ég finn
fyrir mikilli stemmingu og samhug
í þá átt að fara alla leið og vinna bik-
arinn í fyrsta skipti í sögu félagsins,“
segir Guðbjörg um verkefnið.
Hinum megin eru það nýliðar
sem mætast og leika til bikarúrslita.
Liðin hafa átt ólíku gengi að fagna í
vetur, en Stjarnan er að berjast um
að komast í úrslitakeppni Domino’s-
deildarinnar á meðan Blikar verma
botnsætið. Bæði Sóllilja Bjarna-
dóttir, leikmaður Breiðabliks, og
Danielle Rodriguez, leikstjórnandi
Stjörnunnar, voru aftur á móti sam-
mála um að það sem á undan hefði
gengið í vetur skipti engu máli í
þessum leik.
„Þó svo að það hafi gengið illa í
vetur finnst okkur við hafa spilað á
köflum vel og eiga meira skilið. Við
förum fullar sjálfstrausts inn í þenn-
an leik og höfum trú á að við getum
unnið. Ég hef áður farið í höllina með
Val í meistaraflokki og það er sterkur
kjarni leikmanna í hópnum sem
hefur orðið bikarmeistarar í yngri
flokkum. Við erum því vanar þess-
ari umgjörð og stærð leikjanna og
það verður ekkert vesen að höndla
verkefnið,“ segir Sóllilja.
„Það er mikill spenningur í öllu
félaginu þar sem bæði kvenna- og
karlaliðin eru í undanúrslitum og
svo einnig nokkrir yngri f lokkar.
Við höfum aldrei komist alla leið í
úrslitin og ég hef aldrei áður leikið
bikarúrslitaleik þannig að eftirvænt-
ingin er mikil. Þetta verður hörku-
leikur og staða liðanna í deildinni
skiptir engu máli. Við verðum að
eiga toppleik til þess að vinna,“ segir
Danielle Rodriguez.
hjorvaro@frettabladid.is
Nýtt lið í úrslitum um helgina
Hér að ofan má sjá fulltrúa liðanna sem leiða saman hesta sína í undanúr-
slitum Geysisbikarsins í körfubolta kvenna og berjast um sæti í úrslitum.
Mikil körfuboltaveisla
er fram undan næstu
daga í Laugardalshöll
þar sem leikið verður
til úrslita í bikarkeppni
meistaraflokks kvenna
og karla. Þá verður líka
leikið í yngri flokkum.
Af þeim liðum sem leika
til undanúrslita er það
einungis Snæfell sem hefur
orðið bikarmeistari. Valur
hefur leikið til úrslita.
Þróttarar í
þjálfaraleit
FÓTBOLTI Gunnlaugur Jónsson
er hættur þjálfun
mei s t a r a f lok k s
karla hjá Þrótti
R. Í tilkynningu
kemur fram að
Gunnlaugur hafi
óskað eftir því að
láta af störfum af
persónulegum ástæðum og vegna
anna á öðrum vettvangi.
Gunnlaug ur tók við Þrótti
skömmu fyrir síðasta tímabil eftir
að Gregg Ryder hætti störfum.
Undir stjórn Gunnlaugs enduðu
Þróttarar í 5. sæti Inkasso-deildar-
innar. Þeir fóru á mikið f lug um
mitt tímabil, voru ósigraðir í átta
leikjum í röð og gerðu sig líklega í
baráttunni um Pepsi-deildar sæti.
Þórhallur Siggeirsson, sem var
aðstoðarmaður Gunnlaugs, tekur
tímabundið við liðinu. – iþs
Willum á leið til
BATE Borisov
FÓTBOLTI Breiðablik hefur sam-
þykkt tilboð hvítrússnesku meist-
aranna BATE Borisov í Willum Þór
Willumsson, efnilegasta leikmann
Pepsi-deildar karla í fyrra.
Willum heldur til Hvíta-Rúss-
lands á næstu dögum þar sem hann
mun skoða aðstæður hjá
BATE Borisov sem
hefur orðið meistari
í Hvíta-Rússlandi
13 ár í röð.
Willum, sem er
tvítugur, skoraði sex
mörk í 19 leikj-
um í Pepsi-
deildinni á
síðasta tíma-
bili. Hann
lék sinn
f y r s t a A-
landsleik í
síðasta mán-
uði og hefur
a u k þ e s s
leik ið f y r ir
yngri landslið
Íslands. – iþs
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
F
-0
8
0
8
2
2
4
F
-0
6
C
C
2
2
4
F
-0
5
9
0
2
2
4
F
-0
4
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K